Sigmundur tjáir sig: Ætlar ekki að ræða mál konu sinnar í fjölmiðlum

Sig­mundur Davíð segir að reynt sé að koma höggi á hann með umræðu um félag konu hans á Tortóla. Hún hafi látið hags­muni ann­arra ráða för.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son ætlar ekki að ræða mál­efni eig­in­konu sinnar eða fjöl­skyldu hennar í fjöl­miðlum. Þetta kemur fram í grein á síðu hans. Hann segir að póli­tískir and­stæð­ingar hans stökkvi nú fram og reyni að ná höggi á hann með því að ráð­ast á konu hans, og það láti hann ekki ger­ast athuga­semda­laust.

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist hafa haft það prinsipp að ræða ekki mál­efni konu sinnar eða fjöl­skyldu hennar, og ætli að halda sig við það nema sú grund­vall­ar­breyt­ing verði á íslenskum stjórn­málum að æski­legt verði talið að mál­efni maka stjórn­mála­manna séu til umræðu í tengslum við störf þeirra. „Verði sú raunin mætti spyrja margra spurn­inga um maka stjórn­mála­manna allt frá eignum að vinnu fyrir stjórn­völd á liðnum árum.“

Íhugaði að tala um að hann vildi auka tap konu sinnar

Sig­mundur seg­ist hafa sagt Önnu Sig­ur­laugu í kjöl­far hruns­ins að hún ætti ekki að gera ráð fyrir miklum end­ur­heimtum af því fjár­magni sem hún hefði lánað bönk­unum. Hann seg­ist hafa sagt við hana að hann myndi berj­ast fyrir því að engar kröfur yrðu settar á íslenskan almenn­ing og að hags­munir sam­fé­lags­ins yrðu hámark­aðir á kostnað þeirra sem ættu pen­inga hjá bönk­unum.

„Eina leiðin til að end­ur­reisa sam­fé­lagið væri að afskrifa mikið af kröfum á bank­ana og það myndi þýða að margir sem þegar hefðu tapað miklu á gjald­þroti þeirra myndu tapa enn meiru. Ég man enn hvað við­brögð hennar voru ein­læg og afdrátt­ar­laus. Hún sagði mér að ef það mætti verða til að draga úr þeim ótta og þján­ingum sem við blöstu á Íslandi ætti það að vera mark­miðið að afskrifa sem allra mest af kröfum á bank­ana.“

Sig­mundur segir að Anna hafi alla tíð síðan verið helsti hvata­maður hans í því að lág­marka tjón sam­fé­lags­ins. Hún hafi jafn­framt aldrei keypt kröfur eftir hrun, líkt og erlendir vog­un­ar­sjóðir eða hrægamma­sjóðir, heldur hafi hún tapað því sem hún lán­aði bönk­unum.

„Ég skal við­ur­kenna að það hvarfl­aði að mér í kosn­inga­bar­átt­unni árið 2013 að ræða um að ég væri að berj­ast fyrir því að tekin yrði upp stefna sem myndi auka á tap eig­in­konu minnar af banka­hrun­inu. Að athug­uðu máli sá ég að það væri ekki for­svar­an­legt og skamm­að­ist mín reyndar fyrir að hafa látið mér detta í hug að nota fjár­hags­legt tap eig­in­konu minnar í póli­tískri bar­áttu.“

Nýtti ekki tækifæri til að fela nokkuð

„En nú þegar fjár­mál eig­in­konu minnar hafa verið gerð að opin­beru umræðu­efni finnst mér rétt að gera grein fyrir þessu. Um leið bendi ég á að þessi umræða hefur einkum leitt tvennt í ljós. Í fyrsta lagi þá stað­reynd að konan mín hefur greitt alla skatta af eignum sínum og ekki nýtt tæki­færi til að fela nokkurn hlut. Reyndar hefur hún ekki einu sinni nýtt heim­ildir laga til að fresta skatt­greiðslum. Í öðru lagi að hún hefur í eigin fjár­málum eins og öðru tekið hags­muni ann­arra fram yfir sína eigin.“

Hann segir að það sem ein­kenni konu hans umfram annað sé fórn­fýsi og heið­ar­leiki. Hann hafi alltaf sagt henni að hún sé of fórn­fús og upp­tekin af erf­ið­leikum ann­arra. Það sé eðli­legt að hafa áhyggjur af mörgu og vilja láta gott af sér leiða. „Það er hins vegar ekki hollt að vera alltaf með hug­ann við vanda­mál og líða stöðugt fyrir erf­ið­leika ann­arra.“

Sig­mundur segir að stjórn­mála­á­tök sam­tím­ans ein­kenn­ist oft af því að „farið sé í mann­inn“ fremur en mál­efnið. „Mér er nokkuð sama hvernig hjólað er í mig. Ég er ýmsu vanur í póli­tískri umræðu. En menn hljóta að geta fall­ist á að það sé með öllu ólíð­andi að ráð­ist sé á ætt­ingja eða maka stjórn­mála­manna til þess eins að koma á þá höggi. Frá því að ég hóf þátt­töku í stjórn­málum hafa engu að síður verið gerðar margar til­raunir til að gera eignir eig­in­konu minnar og ætt­ingja tor­tryggi­legar í von um að með því megi koma höggi á mig.“

Hagnaðist á því að sleppa við stöðugleikaskatt

Wintris Inc., félagið sem Anna Sig­ur­laug á og skráð er á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, getur búist við því að fá rúm­lega 120 millj­ónir króna þegar slitabú föllnu bank­anna hafa greitt kröfu­höfum sínum. Alls á félagið kröfur upp á 523 millj­ónir króna og væntar end­ur­heimtir kröfu­hafa skila ofan­greindri nið­ur­stöðu. Ef stöð­ug­leika­skattur hefði verið lagður á slita­búin hefði það fé sem runnið hefði til kröfu­hafa verið um 300 millj­örðum krónum lægri upp­hæð sem nú verður. Því hagn­ast Wintris umtals­vert á því að slita­búum Glitnis, Kaup­þings og Lands­bank­ans var gert kleift að ljúka slitum sínum með greiðslu stöð­ug­leika­fram­lags frekar en með álagn­ingu stöð­ug­leika­skatts.

Félag eig­in­konu for­sæt­is­ráð­herra á kröfur í slitabú föllnu bank­anna vegna þess að það hafði keypt skulda­bréf útgefin af þeim fyrir hrun. Þetta hefur Kjarninn fengið stað­fest hjá Jóhann­esi Þór Skúla­syni, aðstoð­ar­manni for­sæt­is­ráð­herra, sem sér um upp­lýs­inga­gjöf fyrir hönd Önnu Sig­ur­laugar vegna opin­ber­unar á eign hennar á aflands­fé­lagi. Þegar neyð­ar­lögin voru sett í októ­ber 2008 færð­ust kröfur vegna slíkra skulda­bréfa aftur fyrir inn­stæður í kröfu­hafaröð bank­anna. Sig­mundur Davíð sat ekki á þingi þegar neyð­ar­lögin voru sam­þykkt og enn voru þá nokkrir mán­uðir í að hann yrði kos­inn for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Sig­mundur Davíð kom því ekki að þeirri laga­setn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Munurinn á stað­reyndum og spuna

Í morgun birti Kjarninn frétta­skýr­ingu sem unnin er upp úr úrskurði yfir­skatta­nefndar í máli hjón­anna Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur. Í henni eru engar álykt­anir dregnar heldur sagt frá þeim stað­reyndum sem fram koma í þeim úrskurði. Þær stað­reyndir eru eft­ir­far­andi: Þann 13. maí 2016 skrif­aði umboðs­maður hjón­anna bréf til rík­is­skatt­stjóra. Þar óskaði hann eftir því að skatt­fram­töl...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár