Eigandi Grímsstaða ríkasti maður Bretlands

Jim Ratcliffe á nú eignir sem metnar eru á tæp­lega þrjú þús­und millj­arða króna. Hann hefur verið umsvifa­mik­ill í því að kaupa upp land­eignir á Íslandi á und­an­förnum árum.

Breski auð­jöf­ur­inn Jim Ratcliffe er rík­asti maður Bret­lands sam­kvæmt nýrri úttekt The Sunday Times. Alls eru eignir hans metnar á 21,1 millj­arð punda, um 2.933 millj­arða króna. Ratcliffe var í 18 sæti lista blaðs­ins í fyrra en ástæða þess að hann tekur svona stórt stökk milli ára er fyrst og fremst sú að eignir hans voru end­ur­metnar á síð­asta ári. Ratcliffe er for­fall­inn áhuga­maður um villta laxa­stofna, heldur með Manchester United og hleypur helst tíu kíló­metra á hverjum morgni. Hann er 65 ára gam­all.

Eignir hans eru að miklu leyti bundnar í meiri­hluta­eign í efna­fram­leiðslu­stór­veld­inu Ineos Group.

Ratcliffe er umsvifa­mik­ill á Íslandi. Hann keypti til að mynda stóran eign­ar­hlut í Gríms­stöðum á fjöllum í lok árs 2016 auk þess sem hann hefur keypt upp jarðir í Vopna­firði í grennd við gjöf­ular laxár, meðal ann­ars Selá og Hofsá.

Þegar Ratcliffe keypti Gríms­staði á sínum tíma sendi hann frá sér yfir­lýs­ingu sem í stóð að á Gríms­stöðum væri vatna­svið mik­il­vægra lax­veiðiáa á Norð­aust­ur­landi og að kaupin á land­inu væru þáttur í því að venda villta laxa­stofna við Atl­ants­haf. Íslenska ríkið á enn hluti í jörð­inni og einnig nokkrir aðrir land­eig­end­ur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár