Tímamótaákvörðun framundan – Hjálpardekkin tekin af

Hvað ger­ist þegar Seðla­banki Banda­ríkj­anna byrjar að hækka vexti, eftir meira en sjö ára tíma­bil þar sem örv­un­að­gerðir hafa ein­kennt þróun efna­hags­mála?

Frá miðju ári 2008 hafa stýri­vextir í Banda­ríkj­unum verið 0,25 pró­sent. Grund­vall­ar­rök­semdin fyrir lágum vöxtum í þetta langan tíma, það er rúm­lega sjö ár, er sú að hag­kerfið þarf á „súr­efni“ að halda til að geta náð við­spyrnu eftir erf­ið­leik­ana sem fylgdu fjár­málakrepp­unni sem náði hámarki á árunum 2007 til 2009. Líkja má vaxta­stefn­unni und­an­farin ár við hjálp­ar­dekk á hjóli, þar sem ódýrt fjár­magn og örv­un­ar­að­gerðir seðla­bank­ans hafa stutt við fjár­mála­kerfi og verð­bréfa­mark­aði í upp­bygg­ingu, eftir djúpa kreppu. Þegar vaxta­hækk­unin á sér stað, vilja margir meina að alvara lífs­ins taki við á fjár­mála­mörk­uðum, og þá muni koma í ljós, smátt og smátt, hversu sterkur alþjóða­bú­skap­ur­inn er í reynd.

Seðla­banki Banda­ríkj­anna, með Dr. Janet Yellen seðla­banka­stjóra í broddi fylk­ingar, heldur síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­fund sinn á árinu dag­ana 15. til 16. des­em­ber, og mun þá skýr­ast hvort það er til­efni til þess að hefja vaxta­hækk­un­ar­feril eða ekki. Þessi atburður markar tíma­mót fyrir hinn alþjóða­vædda við­skipta­heim enda Banda­ríkja­dalur útbreiddasta og stærsta mynt heims­ins. Um mitt þetta ár var 63,8 pró­sent af heild­ar­gjald­eyr­is­forða heims­ins í Banda­ríkja­dal. Næst á eftir kemur evra en 20,5 pró­sent af gjald­eyr­is­forða þjóð­ríkja.

Innanlands og utan

Sjón­ar­miðin sem Seðla­banki Banda­ríkj­anna þarf að taka til­lit til eru mörg. En í grófum dráttum má skipta þeim í þau sem telj­ast til hag­fræði­legra þátta inn­an­lands ann­ars vegar, og síðan atriða sem tengj­ast þróun efna­hags- og stjórn­mála utan Banda­ríkj­anna. Þar getur verið snúið að vega hags­muni og meta.

Viðspyrnan hafin

Alveg frá því í byrjun árs 2009, þegar Barack Obama tók við sem for­seti af George W. Bush, hefur stærsta verk­efni stjórn­valda verið end­ur­reisn efna­hags­ins. Á skömmum tíma fór atvinnu­leysi upp í tæp­lega 10 pró­sent, árið 2010, og almennur slaki ein­kenndi efna­hag­inn. Frá þeim tíma hefur leiðin legið upp á við. Atvinnu­leysi er komið niður í fimm pró­sent og hag­vaxt­ar­tölur þykja góðar, og horfur stöðugar. Hag­vöxt­ur­inn verður lík­lega á bil­inu tvö til þrjú pró­sent á þessu ári, og sam­setn­ing hans þykir æski­leg.

Þjóð­ar­skuldir Banda­ríkj­anna halda þó áfram að hækka, en þær nema í daga 18,7 trilljónum Banda­ríkja­dala. Reglu­lega hafa sprottið upp deilur í Banda­ríkja­þingi vegna þess að skulda­þakið þarf að hækka, svo að rekstur hins opin­bera geti haldið áfram. Til þessa hefur ávallt verið sam­þykkt að hækka skulda­þakið, þannig heldur áfram sú staða sem telja má vera eyðslu um efni fram. Opin­berar skuldir í Banda­ríkj­unum nema nú tæp­lega 75 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu.

Mikil ávöxtun á verðbréfamörkuðum

En því er ekki að leyna að lág­vaxtaum­hverfið und­an­farið ár hefur skapað um margt sér­stakar aðstæður á verð­bréfa­mörk­uðum. Vísitala Nasdaq hluta­bréfa­mark­að­ar­ins hefur meira en þre­fald­ast á fimm árum, og gengi margra ein­stakra félaga hefur verið langtum betra. Sá fjár­festir sem keypti hluta­bréf sem tengd voru ávöxtun vísi­töl­unnar fyrir 100 millj­ónir árið 2010 á tæp­lega 330 millj­ónir í dag. Það telst góð ávöxtun á fimm árum.

Sér­fræð­ingar hafa margir hverjir velt því fyrir sér, hvort hið langa lága­vaxtaum­hverfi hafi haft þau áhrif, að bóla hafi mynd­ast á hluta­bréfa­mark­aði hér í Banda­ríkj­unum. Ódýrt sé að taka áhættu með lán­töku, og end­ur­fjár­mögnun sé auð­veld. Þetta geti blindað mönnum sýn, þegar fjár­magns­kostn­aður byrjar að hækka, eins og nú er stefnt að. Seðla­banki Banda­ríkj­anna telur þó að nægi­leg efir­spurn sé í grunn­hag­kerf­inu til þess að mæta þeim skamm­tíma­á­hrifum sem hækkun vaxta geti haft á fjár­mála­mark­aði. Hefð­bunin lán­taka heim­ila, svo sem hús­næð­is­lán, bíla­lán og við­halds­lán, muni verði ekki dýr­ari við 0,25 pró­sent stýri­vaxta­hækkun, nema þá í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum. Frekar eru það fyr­ir­tæki, sjóðir og þjóð­ríki sem munu finna beint fyrir hækkun fjár­magns­kostn­aðar, en óbeinu áhrifin er það sem helsta óvissan ríkir um. Hugs­an­lega gæti vaxta­hækkun stuðlað að færslu fjár­magns af hluta­bréfa­mark­aði inn á skulda­bréfa­markað, í ljósi hærri vaxta, en vandi er þó um slíkt að spá.

Þrýst á um að halda vöxtum niðri

Wall Street Journal, sem þekkt er fyrir vönduð skrif um gang mála á fjár­mála­mark­aði, segir að fjár­festar telji nær öruggt að stýri­vextir verði hækk­aðir úr 0,25 pró­sent í 0,5 pró­sent síðar í mán­uð­inum. Samkvæmt könnun blaðs­ins meðal hag­fræð­inga voru um 80 pró­sent þeirra á því að Seðla­bank­inn myndi skaða orð­spor sitt ef vextir yrðu ekki hækk­aðir, í ljósi yfir­lýs­inga sem helstu stjórn­endur bank­ans, þar á meðal Yellen sjálf, hafa gefið út. Þegar hún ræddi við nefnd­ar­menn efna­hags­nefndar Banda­ríkja­þings, í síð­asta mán­uði, mátti heyra á henni að und­ir­bún­ingur vegna vaxta­hækk­unar væri langt kom­inn. Eða í það minnsta voru orð hennar túlkuð á þann veg, meðal helstu álits­gjafa og sér­fræð­inga á mörk­uðum hér í Banda­ríkj­unum.

Strax í byrjun árs­ins gaf Yellen út þá yfir­lýs­ingu, á lík­lega yrðu vextir hækk­aðir á þessu ár, og gaf flest til kynna að það yrði um mitt ár. Í raun hafa hag­tölur í Banda­ríkj­unum ekki mikið breyst frá þeim tíma, nema þá til hins betra. Atvinnu­leysi minnkað og grunn­stoðir hag­kerf­is­ins styrkst.

Á meðan út í heimi

Það sem helst hefur þótt snúið fyrir Seð­al­banka Banda­ríkj­anna í aðdrag­anda vaxta­hækk­un­ar­fer­ils­ins er að meta hver áhrifin verða í hinum ýmsu löndum heims­ins, sem hafa mik­illa hags­muni að gæta í Banda­ríkja­dal, meðal ann­ars vegna opin­bera skulda í Banda­ríkja­dal. Mörg nýmark­aðs­ríki ganga nú í gegnum mikla erf­ið­leika, einkum olíu­fram­leiðslu­ríki og þau sem eiga mikla hags­muni undir sölu hrá­vara inn á Kína­markað. Olíuverð hefur lækkað hratt á und­an­förnu áru, og fleiri hrá­vörur einnig. Þetta hefur leitt til efna­hags­hruns í stórum löndum eins og Brasilíu, með 200 millj­ónir íbúa, og Nígeríu, þar sem búa 187 millj­ónir manna. Brasilía er stærsta ríki Suður-Ameríku og Nígería fjöl­menn­asta ríki Afríku.

Hækkun fjár­magns­kostn­aðar á skuld­bind­ingum í Banda­ríkja­dal getur hafta alvar­legar afleið­ingar fyrir ríki í við­kvæmri stöðu.

Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur hvatt Seðla­banka Banda­ríkj­anna til þess að fara var­lega í vaxta­hækk­unum, og huga vel að stöðu mála í heims­bú­skapnum, í ljósi þess að stýri­vextir séu afar áhrifa­miklir þegar kemur að flæði fjár­magns á alþjóða­mörk­uðum. Hún væri við­kvæm, meðal ann­ars vegn stríðs­á­taka, óróa í stjórn­málum og vax­andi erf­ið­leika hjá mörgum hrá­vöru­stór­veldum. Þá væri komnar fram vís­bend­ingar um minnk­andi eft­ir­spurn í Kína, og ef slík þróun heldur áfram þá gæti að haft mikil áhrif á þróun mála í heim­inum öllum.

Hvað með áhrifin á Ísland?

Mitt á milli Ameríku og Evrópu er Ísland að rísa upp eftir mik­inn öldu­dal í kjöl­far efna­hags­hruns­ins. Hag­vöxtur mæld­ist 4,6 pró­sent á fyrstu níu mán­uðumárs­ins, sem er með því mesta sem ger­ist meðal þró­aðra ríkja í augna­blik­inu, og atvinnu­leysi er með minnsta móti, eða 3,8 pró­sent. Þá mælist verð­bólga tvö pró­sent og stýri­vextir með þeim allra hæstu í heimi, 5,75 pró­sent.

Ísland hefur gert upp skuldir sínar í Banda­ríkja­dal við Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­inn og framundan eru aðgerðir til að losa um fjár­magns­höft, eins og kunn­ugt er.

Ákvörðun Seðla­banka Banda­ríkj­anna um að hækka vexti, hvort sem það ger­ist á síð­asta vaxta­á­kvörð­un­ar­degi árs­ins eða í byrjun næsta árs, hefur lík­lega ekki bein áhrif á efna­hag Íslands. Áhrif á alþjóð­lega fjár­mála­mark­aði gætu verið þó nokkur, einkum þegar kemur að vaxta­kjörum og aðgengi ríkja að fjár­magni. Mestu áhrifin fel­ast þó lík­lega í skila­boðum um að mestu erf­ið­leik­arnir, sem rekja má til fjár­málakrepp­unnar á árunum 2007 til 2009, séu að baki.

Að mörgu leyti stendur Ísland vel um þessar mundir, í sam­an­burði við aðrar þjóðir, og þarf ekki að kvíða því að vaxta­kostn­aður vegna skulda í Banda­ríkja­dal hækki og verði íþyngj­andi, eins og mörg önnur ríki. En eins og Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóð­ur­inn hefur bent á, getur vaxta­hækk­unin í Banda­ríkj­unum kallað fram áhrif sem erfitt er að sjá fyrir. Og þar er allt alþjóða­mark­aðs­svæðið undir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár