Samtök fyrir heimilislausa notuð í söfnun vegna meiðyrðamáls Margrétar

Reikn­ingur félaga­sam­taka sem stofnuð voru til að aðstoða heim­il­is­lausa er not­aður til að safna fé vegna máls­kostn­aðar Mar­grétar Frið­riks­dóttur í meið­yrða­máli hér­aðs­dóm­ara sem hún kall­aði „lausláta mellu“.

Margrét Friðriksdóttir
Margrét Frið­riks­dóttir Margréti var gert að greiða sekt upp á 200 þús­und krónur fyrir meið­yrði.

Margrét Frið­riks­dóttir óskar á sam­fé­lags­miðlum og á vefnum Fréttin.is sem hún rit­stýrir eftir fjár­fram­lögum til að standa straum af máls­kostn­aði í meið­yrð­ar­máli sem hún tap­aði. 

Fram­lögin vill hún fá greidd inn á reikn­ing Náungans - hjálp­ar­sam­taka, sem stofnuð voru árið 2017 og er til­gangur þeirra skráður sem „sam­hjálp og aðstoð fyrir heim­il­is­lausa á Íslandi“.

Margrét var nýverið dæmd í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur til að greiða 200 þús­und króna sekt í rík­is­sjóð fyrir ummæli sín um Barböru Björns­dóttur hér­aðs­dóm­ara. Hún hafði kallað Barböru „lausláta mellu“ eftir að Barbara hafði dæmt henni í óvil í meið­yrða­máli.

Málið fjall­aði um meintar hót­anir Mar­grétar í garð Semu Erlu Serdaroglu, stofn­anda Solaris sam­tak­anna, en dómnum sem Barbara felldi var áfrýjað til Lands­réttar sem snéri honum við og sýkn­aði Margréti.

„Ég hef verið hvött til að setja af stað söfnun og geri ég það því hér með,“ skrifar Margrét í opnu bréfi …

Kjósa
26
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár