Katrín meðal áhrifamestu kvenfrelsissinna heims

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, var valin í hóp tutt­ugu áhrifa­mik­illa kvenna sem stuðli að auknu kynja­jafn­rétti í heim­inum, af tíma­rit­inu CEO Magazine. Tíma­ritið fjallar um kon­urnar tutt­ugu í til­efni af alþjóð­legum degi kvenna í mars.

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir var valin ein af tutt­ugu konum sem skarað hafa fram úr og barist fyrir jöfnum hlut kyn­systra sinna um allan heim, af við­skipta­tíma­rit­inu CEO Magazine. Tíma­ritið fjall­aði um kon­urnar tutt­ugu í nýjasta tölu­blaði sínu í til­efni alþjóða­dags kvenna þann 8. mars næst­kom­andi.

Eiga það sameiginlegt að berjast fyrir réttlátari og jafnari heim

Leik­konan Angelina Jolie prýðir for­síð­una sem ein kvenn­anna á list­anum en auk hennar eru á list­anum leikkon­urnar Cate Blanchett og Emmu Watson á list­anum. Hæsta­rétt­ar­dóm­ar­anum Ruth Bader Ginsburg er einnig á list­anum ásamt bar­áttu­kon­unni Malölu Yousafzai og Katrínu Jak­obs­dóttur, for­sæt­is­ráð­herra Íslands.

Í umfjöllun CEO Magazien segir að hvort sem að kon­urnar á list­anum sé leikkonur, for­sæt­is­ráð­herrar, nem­endur, íþrótta­konur, lög­fræð­ingar eða við­skipta­konur, þá eiga þær það allir í sam­eig­in­legt að vera berj­ast fyrir rétt­látri og jafn­ari heim. Hvort sem það er með því að stuðla að auknum kven­fyr­ir­myndum í tækni­geir­anum, berj­ast fyrir jöfnum launum kynj­anna, styðja þolendur kyn­ferð­is­of­beldis eða hvetja konur til að berj­ast fyrir rétt­indum sínum. Þá séu þær hluti af þeim stóra hóp kvenna sem eru að nota vald sitt eða rödd til að gera heim­inn að betri stað. [adspot]

Yngsti kvenleiðtogi Evrópu

Í umfjöllun tíma­rits­ins segir að yngsti kven­leið­togi Evrópu, Katrín Jak­obs­dóttir hafi sterkar skoð­anir á rétt­indum kvenna og umhverf­is­málum. Fjallað er um hvernig Katrín sé önnur konan hér á landi til að gegna emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra en hún er jafn­framt þriðja yngsta mann­eskjan til að gegna þessu valda­mesta emb­ætti á Íslandi. Enn fremur er fjallað um hvernig Ísland sé efst á lista Alþjóða­efna­hags­ráðs­ins yfir þau lönd þar sem kynja­jafn­rétti mælist mest tíunda árið í röð. Katrín er sögð stefna að því að útrýma kyn­bundnum launa­mun á Íslandi innan fimm ára og að hún hyggst breyta lögum um fæð­ing­ar­or­lof hér á landi.

Haft er eftir grein sem Katrín skrif­aði fyrir ráð­stefnu Alþjóða­við­skipta­ráðs­ins að orlof beggja for­eldra taki á þeirri kerf­is­bundnu mis­munun sem konur hafi orðið fyrir á vinnu­mark­aði, vegna þess eins að þær gætu eign­ast börn. Ef karlar taki líka orlof frá vinnu til þess að hugsa um börnin sín hverfi þessi mis­munun. Jafn­framt segir hún í grein­inni að auki að margar íslenskar stjórn­mála­konur gætu ekki hafa náð þeim árangri sem þær hafa náð í dag ef ekki væri fyrir barna­gæslu og fæð­ing­ar­or­lof beggja for­eldra. Þá sé hún sjálf gott dæmi þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár