Ilmbanki íslenskra jurta

Safnað fyrir upp­setn­ingu Ilm­sýn­ingar Nordic angan í Ála­foss­kvos á Karolina fund.

Þær Elín Hrund og Sonja Bent hjá Nordic angan hafa staðið að rann­sókn á angan íslenskra jurta um nokk­urt skeið. Þær ætla að gera þess­ari rann­sókn skil í formi ilm­sýn­ingar þar sem gestir og gang­andi geta lyktað af íslenskri nátt­úru og fræðst um eig­in­leika hennar ásamt því að njóta ein­stakra ilm­upp­lif­ana á borð við ilmst­urtu Nordic angan, sem var frum­sýnd á Hönn­un­ar­Mars síð­ast­lið­inn. Til stendur að opna Ilmbanka íslenskra jurta í lok mars 2020 í hús­næði Nordic angan í Ála­foss­kvos, en það vantar herslumun­inn upp á að það náist að fjár­magna verk­efnið og því leita þær eftir stuðn­ingi frá almenn­ingi í gengum Karolina Fund. Kjarninn hitti þær stöllur Sonju og Elínu og tók þær tali.

Hvernig vakn­aði hug­myndin að verk­efn­inu?

„Mig lang­aði svo að ná lykt­inni af íslenska blóð­berg­inu því hún er svo ein­stök og ynd­is­leg, segir Sonja. Ég byrj­aði að gera til­raunir með eim­ingar til að ná ilm­kjarna­ol­íum úr jurtum heima í bíl­skúrnum og svo vatt þetta upp á sig. Eftir að hafa hlotið styrk frá Tækni­þró­un­ar­sjóði hófum við Elín Hrund svo rann­sókn á eim­ingu íslenskra jurta því það er ekki til nein hefð fyrir slíku hér á landi. Ekki eru heldur til miklar heim­ildir svo við þurftum að fara í mikið af frum­rann­sóknum til að finna út hvaða jurtir inni­halda ilm­kjarna­ol­íur, hvenær best er að tína jurt­irnar og í hvernig veðri svo fátt eitt sé nefnt. Við erum nú komnar með stóran gagna­banka með yfir 100 ilmum sem við munum koma á fram­færi á sýn­ing­unni Ilmbanka íslenskra jurta. Hún verður sú fyrsta sinnar teg­undar hér á landi.“

[adspot]Segðu okkur frá þema verk­efn­is­ins?

„Ilmbanki íslenskra jurta snýst um lykt­ar­skynið og íslenska nátt­úru. Lykt er svo stór partur af lífi okkar. Við erum að fjalla um það hvernig lykt lifir í minni manns­ins. Hvernig það að lykta af t.d. gúmmí­dekki getur vakið upp til­finn­ingu hjá þér án þess að þú áttir þig á því hvaðan hún kemur eða hvaða minn­ingu hún teng­ist. Lykt­ar­skynið er svo nátengt bæði minn­inu og til­finn­ing­unum og er frá­brugðið öðrum skyn­færum að þessu leiti. Okkur langar að bjóða fólki að kanna tengsl ilms, minn­inga og til­finn­inga í sam­ein­ingu með því að þefa af nátt­úr­unni saman!“

Segið okkur aðeins meira um þessa ilmst­urtu!

„Ilmst­urt­una frum­sýndum við á Hönn­un­ar­Mars 2019. Hún er í raun risa­vaxin ilm­kjarna­ol­íu­lampi með hreinum íslenskum ilm­kjarna­ol­íum fram­leiddum af Nordic angan. Ilmst­urtan var hönnuð út frá hug­mynda­fræði Shinrin-Yoku eða Jap­anskra Skóg­ar­baða og gengur i stuttu máli út á að ganga í skóg­inum og anda að sér heil­næmu lofti. Rann­sóknir jap­anskra vís­inda­manna hafa sýnt fram á að Skóg­ar­böðin draga úr streitu­horm­ónum, bæta ónæm­is­kerfið og almenna vellíðan. Ástæðuna má finna í ilm­kjarna­ol­íum sem trén fram­leiða og gefa frá sér til að verj­ast bakt­er­íum og skor­dýrum. Skóg­ar­loftið lætur manni því ekki bara líða vel heldur virð­ist það í raun bæta ónæm­is­kerfið. Okkur fannst það skemmti­legt að færa skóg­ar­böðin inn í hús til fólks í formi ilmst­urtu þar sem þú getur baðað þig í angan íslenskrar nátt­úru og notið þess að anda að þér heilsu­bæt­andi ilmi skóg­ar­ins.“

Hér er hægt að skoða og taka þátt í verk­efn­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Karolinafund

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár