Kópavogur skaut niður tillögu Garðabæjar um breytt vaxtarmörk

Garðabær vill breyta vaxt­ar­mörk­unum sem skil­greind eru í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og byggja athafna­svæði á óbyggðu holti sem kall­ast Rjúpna­hlíð. Bæj­ar­stjórnin í Kópavogi hefur tekið fálega í hug­myndir Garð­bæ­inga og höfn­uðu ósk þeirra um breytt vaxt­ar­mörk fyrir skemmstu.

Rjúpnahlíð
Rjúpna­hlíð Óbyggða svæðið hér fremst á mynd­inni er það svæði sem Garð­bæ­ingar sjá fyrir sér að nýt­ist undir marg­breyti­legan léttan iðnað, sem til stendur að verði lát­inn víkja fyrir íbúa­byggð á mið­svæði bæj­ar­ins. Mynd: Úr skipulagstillögu Garðabæjar

Í fyrsta sinn frá því að vaxt­ar­mörk höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins voru skil­greind í svæð­is­skipu­lagi höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins árið 2015 hefur eitt sveit­ar­fé­lag á svæð­inu nú neitað til­lögu ann­ars sveit­ar­fé­lags um útvíkkun vaxt­ar­markanna, en öll sveit­ar­fé­lögin hafa í reynd neit­un­ar­vald gagn­vart hinum í þessum efnum. 

Bæj­ar­stjórnin í Kópavogi ákvað á fundi í jan­úar að hafna til­lögum nágranna­sveit­ar­fé­lags­ins Garða­bæjar um breytt vaxt­ar­mörk, sem Garðabær hafði reynt að fá sam­þykktar á vett­vangi svæð­is­skipu­lags­nefndar Samtaka sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu (SSH).

Iðnaðarhverfi fer öfugt í Kópavogsbúa

Garðabær vill nýta land bæj­ar­ins í Rjúpna­hlíð, þar sem í dag er að mestu óbyggt svæði, undir nýtt athafna­hverfi fyrir pláss­freka starf­semi, meðal ann­ars atvinnu­fyr­ir­tæki á borð við verk­stæði, smá­iðnað og ýmis pláss­frek fyr­ir­tæki og hefur kynnt áform um að breyta aðal­skipu­lagi bæj­ar­ins í þá veru.

Svæðið sem um ræðir er hins vegar utan skil­greindra vaxt­ar­marka höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, en þau mörk verða ein­ungis víkkuð út með sam­hljóða sam­þykki allra sveit­ar­fé­lag­anna á …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár