Actis tvöfaldar hlut sinn í Creditinfo Group

Breski fjár­fest­inga­sjóð­ur­inn Actis hefur tvö­faldað hlut sinn í Creditinfo Group úr 10 pró­sentum í 20 pró­sentum. Við kaupin mun Ali Mazanderani, með­eig­andi hjá Actis, taka sæti í stjórn fyr­ir­tæks­ins.

Reynir Grétarsson, stjórnarformaður, stofnandi og meirihlutaeigandi Creditinfo Group
Reynir Grét­ars­son, stjórn­ar­for­maður, stofn­andi og meiri­hluta­eig­andi Creditinfo Group Mynd: Hringbraut

Bresti fjár­fest­ing­ar­stjóð­ur­inn Actis hefur tvö­faldað hlut sinn í Creditinfo Group úr 10 pró­sentum í 20 pró­sent. Í frétta­til­kynn­ingu frá félag­inu segir að Actis sé leið­andi fjár­festir í Asíu, Afríku og Rómönsku-Ameríku á sviði áhættu­stýr­ingar, miðl­unar fjár­hags­upp­lýs­inga og staf­rænna lausna. Fjár­fest­ingin eigi að fara í að fjár­magna alþjóð­legan vöxt og vöru­þróun Creditinfo.

Ali Mazanderani og Sigrún Ragna Ólafsdóttir taka sæti í stjórn félagsins

Actis stýrði áður 10 pró­sent hlut í Creditinfo Group í gegn um fjár­fest­ingu sína í Credit Services Holdings ásamt fleiri fjár­festum. Með þess­ari fjár­fest­ingu tekur Ali Mazanderani, með­eig­andi hjá Actis sæti í stjórn félags­ins. Sigrún Ragna Ólafs­dóttir tekur jafn­framt sæti í stjórn félags­ins á ný en hún situr einnig í stjórn Creditinfo Láns­traust hf. á Íslandi. Fyrir eru í stjórn Creditinfo Group þau Reynir Grét­ars­son stjórn­ar­for­maður, Nora Kerppola og Hákon Stef­áns­son.

Creditinfo Group var stofnað á Íslandi árið 1997 og hefur félagið nú opnað yfir 30 starfs­stöðvar í fjórum heims­álfum Félagið hefur að geyma láns­hæfis upp­lýs­ingar ríf­lega 200 milljón ein­stak­linga og 2 millj­ónir fyr­ir­tækja í 32 löndum um allan heim. Í til­kynn­ingu frá félag­inu segir að hröð upp­bygg­ing félags­ins hafi falist í því að hefja starf­semi á jað­ar­mörk­uðum þar sem fjár­hags- og við­skipta­upp­lýs­ingar eru að skornum skammti og því erfitt að meta láns­hæfi aðila í við­skiptum. Mark­miðið sé að auka fjár­hags­lega þátt­töku minni og með­al­stórra fyr­ir­tækja og ein­stak­linga og skapa þannig auk­inn hag­vöxt á hverju svæði fyrir sig. Meðal sam­starfs­að­ila Creditinfo er Alþjóða­bank­inn, IFC, Millennium Challenge Corporation, og fleiri alþjóða­stofn­anir.

Hlakkar til frekari vaxtar

Reynir Grét­ars­son, stjórn­ar­for­maður, stofn­andi og meiri­hluta­eig­andi Creditinfo Group, segir fjár­fest­ingu Actis koma til með að efla starf­semi félags­ins og við­skipta­á­ætl­anir fyr­ir­tæk­is­ins á alþjóða­vísu. „Við höldum áfram að útvíkka á mörk­uðum þar sem tækni okkar og lausnir stuðla að upp­bygg­ingu fjár­mála­mark­aða. Við munum vinna áfram í nánu sam­starfi við Actis og hlökkum til frek­ari vaxtar með sam­starfs­að­ila sem deilir gildum okkar og mark­miðum,“ segir Reynir í til­kynn­ing­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár