Margháttað samráð við almenning við endurskoðun stjórnarskrárinnar

For­sæt­is­ráð­herra kynnti í dag fyr­ir­hugað sam­ráð við almenn­ing við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar, þar á meðal er rök­ræðukönnun í nóv­em­ber og umræðu­vefur þar sem almenn­ingi gefst kostur á að koma á fram­færi eigin hug­myndum um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar.

Katrín Jakosbsdóttir, forsætsiráðherra.
Katrín Jakos­bs­dóttir, for­sætsi­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Alls telja um 90 pró­sent Íslend­inga að mikil þörf sé á að stjórn­ar­skráin fjalli um nátt­úru­auð­lindir. Þá segj­ast um 27 pró­sent vera óánægð með núgild­andi stjórn­ar­skrá en um 37 pró­sent ánægð með hana. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nið­ur­stöðum ítar­legrar könn­unar félags­vís­inda­stofn­unar Háskóla Íslands um við­horf almenn­ings til stjórn­ar­skrár­innar.

Könnunin er hluti af sam­ráði stjórn­valda við almenn­ing um end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar sem Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra kynnti í dag á blaða­manna­fundi fyrir hönd for­manna þing­flokk­anna.

Þjóðareign á náttúruauðlindum tekin fyrir á þessu tímabili

[links]Allir flokkar sem full­trúa eiga á Alþingi vinna nú saman að því að end­ur­skoða stjórn­ar­skrána. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar kemur fram að rík­is­stjórnin vilji halda áfram heild­ar­end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar í þverpóli­tísku sam­starfi með aðkomu þjóð­ar­innar og nýta meðal ann­ars til þess aðferðir almenn­ings­sam­ráðs.

Á tíma­bil­inu 2018 til 2021 taka for­menn flokk­ana fyrir þjóð­ar­eign á nátt­úru­auð­lindum, umhverfis- og nátt­úru­vernd, þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur að frum­kvæði hluta kjós­enda eða minni­hluta þings, fram­sal vald­heim­ilda í þágu alþjóða­sam­vinnu, kafla stjórn­ar­skrár­innar um for­seta lýð­veld­is­ins og með­ferð fram­kvæmd­ar­valds og loks ákvæði um hvernig stjórn­ar­skránni verði breytt.[adspot]

For­sæt­is­ráð­herra kynnti í dag fyr­ir­hugað sam­ráð stjórn­valda við almenn­ing við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar. Þar á meðal kynnti hún nið­ur­stöður skoð­ana­könn­unar, sem fram­kvæmd var í sumar, þar sem könnuð var afstaða kosn­inga­bærra Íslend­inga til mál­efna sem varða stjórn­ar­skrána og fram­tíð lýð­ræðis á Íslandi.

Í nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar kemur meðal ann­ars fram að 37 pró­sent svar­enda segj­ast vera ánægð með núgild­andi stjórn­ar­skrá Íslands, 36 pró­sent svara hvorki né og 27 pró­sent segj­ast vera frekar eða mjög óánægð með stjórn­ar­skránna.

Þá telur mik­ill meiri­hluti svar­enda að mikil eða frekar mikil þörf sé á að ákvæði um dóm­stóla í stjórn­ar­skránni séu end­ur­skoðuð. Jafn­framt telja 90 pró­sent svar­enda í könn­un­inni að mikil þörf sé á að ákvæði um nátt­úru­auð­lindir og umhverf­is­mál sé í stjórn­ar­skrá.

Rökræðukönnun í nóvember

Í fram­haldi af skoð­ana­könnun á við­horfum almenn­ings til stjórn­ar­skrár­innar verður haldin tveggja daga rök­ræðukönnun þann 9. og 10. nóv­em­ber næst­kom­andi þar sem 300 manns hvaðanæva af land­inu verður boðið að taka þátt

Þátt­tak­endur á umræðu­fund­inum verða valdir úr hópi þeirra sem tóku skoð­ana­könn­un­ina. Á fund­inum verður sér­stak­lega rætt um lýð­ræði á Íslandi, þar með talið kosn­inga­kerfi, kjör­dæmi og þjóð­ar­at­kvæða­greiðslur og kannað verður hvort að við­horf þátt­tak­enda breyt­ist við nán­ari kynn­ingu á mál­inu og umræður.

Þá hefur Háskóli Íslands hefur hleypt af stað umræðu­vef í sam­starfi við Betra Ísland þar sem almenn­ingi gefst kostur á að koma á fram­færi eigin hug­myndum um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar og afla þeim stuðn­ings. Loks verður sam­ráðs­gátt stjórn­valda nýtt áfram til að sam­ráðs um frum­varps­drög sem koma frá for­manna­hópnum.

Forsætisráðherra bindur miklar vonir við samráðið

„Við höfum í dag kynnt marg­háttað fyr­ir­hugað sam­ráð við almenn­ing við end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár­innar líkt og fyr­ir­heit voru gefin um þegar þessi vinna hófst. Þar á meðal er fyr­ir­huguð rök­ræðukönnun í nóv­em­ber,“ sagði Katrín þegar hún kynnti sam­ráðið fyrr í dag.

Hún sagð­ist jafn­framt binda miklar vonir við að þessi vand­aði og nýstár­legri und­ir­bún­ingur eigi eftir að geta af sér góðar til­lögur um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá en veiti stjórn­völdum einnig mark­verða reynslu við að virkja almenn­ing til þátt­töku í opin­berri stefnu­mótun í nútíma­sam­fé­lagi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár