Frumvörp um breytingar á stjórnarskrá komin í samráðsgátt

Frumvörp um breyt­ingar á stjórn­ar­skránni eru komin í sam­ráðs­gátt.

Tvö frum­vörp eru nú komin í sam­ráðs­gátt stjórn­valda, sem varða breyt­ingar á stjórn­ar­skránni. Annars vegar er um að ræða frum­varp um umhverf­is­vernd og hins vegar frum­varp um auð­lindir í nátt­úru Íslands en vinna við þessi tvö frum­vörp er „komin á þann stað að rétt þykir að leita álits og athuga­semda frá almenn­ingi um efni þeirra,“ eins og segir í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum.

Frum­vörpin verða til umsagnar til 30. júní, og getur fólk skilað athuga­semdum fyrir þann tíma.

Í frum­varp­inu þar sem fjallað er um auð­lindir í nátt­úru Íslands, er lögð til breyt­ing sem er orðuð svo.

„Auð­lindir nátt­úru Íslands til­heyra íslensku þjóð­inni. Nýting auð­linda skal grund­vall­ast á sjálf­bærri þróun. Nátt­úru­auð­lindir og lands­rétt­indi sem ekki eru háð einka­eign­ar­rétti eru þjóð­ar­eign. Enginn getur fengið þessi gæði eða rétt­indi tengd þeim til eignar eða var­an­legra afnota. Hand­hafar lög­gjaf­ar­valds og fram­kvæmd­ar­valds fara með for­ræði og ráð­stöf­un­ar­rétt þeirra í umboði þjóð­ar­innar. Veiting heim­ilda til nýt­ingar á nátt­úru­auð­lindum og lands­rétt­indum sem eru í þjóð­ar­eign eða eigu íslenska rík­is­ins skal grund­vall­ast á lögum og gæta skal jafn­ræðis og gagn­sæis. Með lögum skal kveða á um gjald­töku fyrir heim­ildir til nýt­ingar í ábata­skyni.“

Í til­kynn­ingu stjórn­valda er vakin athygli á því að sam­ráðs­gátt stjórn­valda er ein­ungis eitt af þeim verk­færum sem nýtt verða til sam­ráðs við almenn­ing í stjórn­ar­skrár­vinn­unni en að auki mun fara fram skoð­ana­könnun og rök­ræðukönnun síðar á árinu 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár