Markaðir upp, krónan styrkist og erlendir fjárfestar létu sjá sig

Sögu­legur dagur á íslenskum fjár­mála­mark­aði sýndi fyrst og fremst jákvæð merki, í kjöl­far ákvörð­unar um að rýmka höftin svo til alveg fyrir almenn­ing, fyr­ir­tæki og líf­eyr­is­sjóði.

Óhætt er að segja að fyrsti dag­ur­inn á fjár­mála­mark­aði, eftir að höft voru rýmkuð svo til alveg - þó laga­lega séu þau enn til staðar - hafi verið sögu­legur. Töluverð velta var á hluta­bréfa­mark­aði og hækk­aði vísi­tala hluta­bréfa­mark­að­ars­ins um 1,7 pró­sent.

Þvert á það sem margir héldu, þá styrkt­ist gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum, en það veikt­ist um 2 til 3 pró­sent í gær gagn­vart Banda­ríkja­dal og evru. Dalurinn kostar nú 110 krónur og evran 117 krónur.

Vodafone rýkur upp

Mesta hækk­unin á mark­aði var á bréfum Vodafone, en kaupum fyr­ir­tæk­is­ins á fjöl­miðla- og fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu 365 - að Frétta­blað­inu und­an­skildu - var vel tekið og hækk­aði gengi bréfa félags­ins um 5,47 pró­sent og var 56,9 í lok dags.

Tveir stjórn­endur hjá Vodafone, þeir Kjartan Briem og Þor­varður Sveins­son, keyptu bréf í Vodafone sam­kvæmt til­kynn­ingu til kaup­hallar. Keyptu þeir báðir fyrir lít­il­ræði, eða tæp­lega eina millj­óna króna að mark­aðsvirði.

Kaup­verðið í við­skipt­unum er 7.725-7.875 millj­ónir króna. Það greið­ist í reiðu­fé, með útgáfu nýrra hluta í Fjar­skiptum og yfir­töku á 4,6 millj­arða króna skuld­um. Frétta­blaðið verður þá eftir í sér­stöku félagi. Um 90 pró­sent sam­legð­ar­innar með þessum við­skiptum er vegna vænt­inga um lægri rekstr­ar­kostn­að.

Þá mun mynd­ast um sjö millj­arða króna óefn­is­leg eign hjá Fjar­skiptum vegna kaupanna. Yfir­teknar við­skipta­skuldir eru 1.550 millj­ónir króna en við­skipta­kröfur verða skildar eftir hjá selj­anda, 365 miðl­um, við afhend­ingu. Fjar­skipti áætla að fjár­fest­ing í rekstri þeirra eigna sem félagið var að kaupa verði um 250 millj­ónir króna á ári.

Helstu áhættu­þættir við­skipt­anna eru sagðir þeir að Sam­keppn­is­eft­ir­litið banni eða setji kaup­unum íþyngj­andi skil­yrði, að brott­fall verði á við­skipta­vinum við eða í kjöl­far afhend­ingu á eignum eða að fækkum við­skipta­vina í áskrift­ar­sjón­varpi eins og það sem 365 hefur verið að reka haldi áfram að fækka, meðal ann­ars með auk­inni sam­keppni frá erlendum efn­isveit­u­m eins og Netflix.

Erlendir fjárfestar létu sjá sig

Önnur félög hækk­uðu öll nema Nýherji sem lækk­aði lítið eitt, eða um 0,87 pró­sent. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans komu erlendir fjár­festar nokkuð inna á mark­að­inn í dag, og keypt hluta­bréf, meðal ann­ars í fast­eigna­fé­lögum. Mesta veltan var með hluta­bréf í fast­eigna­fé­lögum þremur, Eik, Reginn og Reitum. Sam­an­lögð velta í þessum félögum var tæp­lega 2,7 millj­arðar króna og hækk­uðu bréfin um 1 til 3 pró­sent.

Hvað gerist á morgun?

Allra augu eru nú á Seðla­banka Íslands, en á morgun er vaxta­á­kvörð­un­ar­dagur. Meg­in­vextir bank­ans eru nú 5 pró­sent og verð­bólga mælist 1,9 pró­sent, tölu­vert undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­mið­inu.

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði frá því, þegar til­kynnt var um losun hafta, að nú ættu að geta skap­ast skil­yrði fyrir meiri lækkun stýri­vaxta. Vandi er þó um slíkt að spá, þar sem staðan á mörk­uð­unum og í hag­kerf­inu hefur verið sveiflu­kennd og aug­ljós­lega mikil spennan í hag­kerf­inu vegna upp­gangs ferða­þjón­ust­unnar. Í fyrra var hag­vöxtur 7,2 pró­sent á Íslandi, sem er með allra mesta móti á heims­vísu. Þá hefur olíu­verð farið lækk­andi að und­an­förnu, og kostar tunnan af hrá­olíu nú 47,7 Banda­ríkja­dali, en með­al­verð síð­asta ára­tuga er nærri 70 Banda­ríkja­dölum.

Þessi staða, bæði inn­an­lands og utan, er góð fyrir stöðu mála á Íslandi. Innflutt verð­bólga hefur verið lítið sem engin, vegna hag­stæðra við­skipta­kjara erlendis, og inn­an­lands hefur mikil hækkun hús­næð­is­verðs verið það sem helst heldur lífi í verð­bólg­unni. Hækkun launa hefur þó einnig verið að hafa tölu­verð áhrif í rekstri fyr­ir­tækja, þar sem rekstr­ar­kostn­aður hefur farið hækk­andi. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár