Helmingi ódýrara að fljúga til Bretlands í ár

Verð­lækkun á flugi til og frá Bret­landi nam 49 pró­sentum á milli ára.

Vegna auk­ins fram­boðs á flug­förum til Bret­lands til og frá Íslandi hafa far­gjöld lækkað um nærri helm­ing á aðeins einu ári. Á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins 2016 var með­al­far­gjald var 49 pró­sent lægra en á sama tíma í fyrra. Lang oft­ast er flogið til London frá Keflavík því nærri því fimmta hver þota sem tekur á loft frá Kefla­vík­ur­flug­velli flýgur til London.

Á vefnum Túristi.is má lesa um að sam­kvæmt tölum frá flug­bók­un­ar­síð­unni Kayak hafi flug­far til 20 vin­sæl­ustu áfanga­stað­anna frá London almennt lækkað þó nokkuð mikið. Reykja­vík var fimmti vin­sæl­asti áfanga­staður ferða­langa frá London á öðrum árs­fjórð­ungi. Ísland hafði þá hoppað um 39 sæti á list­anum því í sama tíma í fyrra var Reykja­vík í 44. sæti list­ans hjá Kayak.

Við­skipta­vinir Kayak keyptu flestir flug til New York frá London en með­al­far­miða­verð á þeirri leið hefur aðeins lækkað um níu pró­sent. Mest hefur verðið lækkað á flugi frá Bret­landi til Ibiza-eyj­unnar spænsku. Verð­breyt­ingin á milli ára var 58 pró­sent sé annar árs­fjórð­ungur árs­ins í ár bor­inn saman við sama tíma í fyrra. Hlut­falls­leg verð­breyt­ing á flugi til Mílanó var sú sama á sama tíma­bili.

Ísland er vin­sæl­ast meðal breskra og banda­ríska ferða­manna. Aukning breskra ferða­langa til Íslands nam 36 pró­sentum sam­kvæmt taln­ingu Ferða­mála­stofu á fjölda ferða­manna í apríl, maí og júní. Flogið er frá ell­efu flug­völlum í Bret­landi til Íslands. Fjórir þess­ara valla eru í London.

Íslensku flug­fé­lögin fljúga áætl­un­ar­flug til marg­ara áfanga­staða í Bret­landi. WOW air flýgur til fjög­urra áfanga­staða og Icelandair til fimm borga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár