Endurskoða lög um ráðherraábyrgð og Landsdóm

For­sæt­is­ráð­herra mun í sam­ráði við dóms­mála­ráð­herra fela sér­fræð­ingi að ráð­ast í end­ur­skoðun á lögum um ráð­herra­á­byrgð ann­ars vegar og lögum um Landsdóm hins vegar. Vonir standa til þess að vinn­unni verði lokið á haust­mán­uðum.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir og Katrín Jakobsdóttir
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir Mynd: Samsett mynd

Rík­is­stjórnin sam­þykkti á fundi sínum í morgun að ráð­ast í end­ur­skoðun á lögum um ráð­herra­á­byrgð ann­ars vegar og lögum um Landsdóm hins vegar. Tillagan var lögð fram af Katrínu Jak­obs­dóttur for­sæt­is­ráð­herra og Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Þá kemur fram að for­sæt­is­ráð­herra muni í sam­ráði við dóms­mála­ráð­herra fela sér­fræð­ingi að leiða vinn­una og „standa vonir til þess að henni verði lokið á haust­mán­uðum.“

„Rík þörf“ á endurskoðun laganna

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­anna tveggja segir að á und­an­förnum ára­tugum hafi lög um ráð­herra­á­byrgð og Landsdóm sætt gagn­rýni hér á landi í ljósi rétt­ar­þró­unar í saka­mála­rétt­ar­fari. Slíka gagn­rýni sé til að mynda að finna í skýrslu um starfs­skil­yrði stjórn­valda frá 1999, skýrslu um eft­ir­lit Alþingis með fram­kvæmd­ar­vald­inu frá 2009 og í skýrslu þing­manna­nefndar til að fjalla um skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis frá 2010. Árið 2010 hafi Alþingi ályktað að slík end­ur­skoðun skyldi fara fram á vegum Alþingis en ekki hafi orðið af þeirri end­ur­skoðun.

„Í þeirri vinnu sem nú stendur yfir um breyt­ingar á stjórn­ar­skrá á vett­vangi for­manna stjórn­mála­flokka hefur mál­efnið verið rætt og ljóst að rík þörf er á end­ur­skoðun lag­anna,“ segir á vef Stjórn­ar­ráðs­ins.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni mun end­ur­skoðun lag­anna meðal ann­ars taka til skýr­leika refsi­á­kvæða um emb­ætt­is­brot, aðdrag­anda ákæru, svo sem frum­kvæði að rann­sókn á emb­ætt­is­færslum, umgjörð máls og hlut­verk þing­nefnda í því sam­bandi, og skipan Lands­dóms.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár