Enn 579 manns skráðir sem Zúistar þrátt fyrir að yfirvöld telji félagið svikamyllu

Félagið Zuism á Íslandi er í ell­efta sæti yfir þau trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög sem eru með flesta skráða með­limi þrátt fyrir að stjórn­endur félags­ins, bræður með vafa­sama for­tíð, hafi verið ákærðir fyrir fjár­svik og pen­inga­þvætti.

Bræðurnir Einar og Ágúst Arnar Ágústssynir hafa verið í forsvari fyrir trúfélagið Zuism
Bræð­urnir Einar og Ágúst Arnar Ágústs­synir hafa verið í for­svari fyrir trú­fé­lagið Zuism Mynd: Skjáskot úr Kastljósi RÚV

Skráðum með­limum í trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lag­inu Zúism hefur fækkað um 62 frá því í byrjun des­em­ber síð­ast­lið­ins. Þeir eru samt sem áður enn 579 tals­ins. Félagið er í ell­efta sæti yfir fjöld með­lima í slíkum félögum hér­lendis.

Trú- og lífs­­skoð­un­­ar­­fé­lög hér á landi fá sókn­­ar­­gjöld greidd fyrir hvern skráðan ein­stak­l­ing, 16 ára og eldri. Á árinu 2022 greiðir rík­is­sjóður 1.107 krónur á mán­uði á hvern ein­stak­l­ing í hverju félagi fyrir sig. Miðað við þá tölu má ætla að Zúism á Íslandi fá um 641 þús­und krónur greiddar í hverjum mán­uði.

Sýslu­mað­ur­inn á Norð­ur­landi eystra, sem hefur eft­ir­lit með starf­semi trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga, hefur reyndar haldið eftir sókn­ar­gjöldum Zuism frá því í byrjun árs 2019. Það rök­styður emb­ættið með því að veru­legur vafi ríki um hvort raun­veru­leg starf­semi fari fram á vegum Zusim og hvort félagið upp­fylli skil­yrði laga.

Þessi staða er merki­leg í ljósi þess að yfir­völd telja trú­fé­lagið Zuism vera svika­myllu.

Borgaraleg óhlýðni breyttist í stjórnsýslumartröð

Saga Zuism á Íslandi er stór­merki­leg, þótt hún eigi lítið sem ekk­ert skylt við trú. Vorið 2015 voru skráðir með­limir í félag­inu fjórir og sýslu­mað­ur­inn á Norð­ur­landi eystra birti aug­lýs­ingu þar sem hann skor­aði á þá að gefa sig fram. Ef eng­inn myndi gera það yrði félagið lagt niður.

enda fjöldi með­lima var langt frá því að upp­fylla við­mið í reglu­gerð dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um skrán­ingu opin­berra trú- og lífs­­skoð­un­­ar­­fé­laga.

[adspot]Hópur áhuga­fólks um trú­ar­legt jafn­rétti og raun­veru­legt trú­frelsi sá sér leik á borði. Erfitt er að fá ný trú­fé­lög við­ur­kennd og hóp­ur­inn, sem síðar kall­aði sig öld­unga­ráð Zúista, ákvað að safna lág­marks­fjölda með­lima í Zuism, gefa sig fram við sýslu­mann og taka félagið ein­fald­lega yfir. Þann 1. júní 2015 fékk full­trúi hóps­ins opin­bera við­ur­kenn­ingu emb­ættis sýslu­manns að hann væri for­stöðu­maður trú­fé­lags­ins og að þau færu nú með völd í þessu umkomu­lausa trú­fé­lagi.

Hug­myndin sem hóp­ur­inn gekk með í mag­anum var að hvetja fólk til að skrá sig sem Zúista gegn vil­yrði fyrir því að fá sókn­ar­gjöld sín, þá 10.800 krónur á mann á ári, end­ur­greidd. Um borg­ara­lega óhlýðni var að ræða, þar sem snið­ugur hópur ætl­aði að spila á kerfið til að sýna fárán­leika þess og sýna í verki hversu mikil tíma­skekkja núver­andi trú­fé­lags­kerfi væri. Eng­inn átti að græða neitt og öllum fjár­munum sem myndu koma í kass­ann yrði skilað til greið­enda, að frá­dregnum umsýslu­kostn­að­i.

Í nóv­em­ber þetta sama ár, 2015, hafði hóp­ur­inn aug­lýst fyr­ir­ætl­anir sínar og á tveimur vikum gengu um þrjú þús­und manns í félag­ið. Í byrjun des­em­ber voru Zúistar orðnir eitt stærsta trú­fé­lag lands­ins.

Gjörn­ing­ur­inn virt­ist hafa gengið upp. Hann vakti raunar heims­at­hygli og fjallað var um hann í tugum fjöl­miðla víða um heim.

En hann vakti athygli fleiri. Á meðal þeirra voru upp­haf­legu stofn­endur trú­fé­lags­ins Zuism.

Kickstarter-bræður taka yfir trú­fé­lag

Um var að ræða tvo bræð­ur, þá Einar og Ágúst Arnar Ágústs­syni. Þeir höfðu vakið athygli fyrir að safna háum fjár­hæðum á hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni Kickstarter á árinu 2015. Það gerðu þeir meðal ann­ars til að koma fram­leiðslu á svo­kall­aðri TOB-snúru á kopp­inn, til að fram­leiða sér­staka sól­ar­raf­hlöðu sem fest var á ólar á bak­poka og síðar til að fjár­magna fram­leiðslu á ferða­vind­túrbín­um, ein­hvers­konar vind­myllum til einka­nota. Kast­ljós greindi frá því í októ­ber 2015 að bræð­urnir væru til rann­sóknar vegna meintra fjársvika vegna þeirrar safn­ana.

Einar var síð­ar, nánar til­tekið á árinu 2017, dæmdur til þungrar fang­els­is­vistar, alls þriggja ára og níu mán­aða, fyrir fjár­svik vegna ann­ars máls. Kjarn­inn greindi ítar­lega frá því máli í frétta­skýr­ingu í mars 2017. Sá dómur var stað­festur í Lands­rétti síðla árs 2018.

Eftir hina miklu athygli sem gjörn­ingur öld­unga­ráðs Zúista vakti, og þegar fyrir lá að tugir millj­óna króna myndu streyma árlega inn í trú­fé­lagið vegna þess hversu margir skráðu sig í það, gerðu bræð­urnir kröfu um yfir­ráð yfir félag­inu. Það gerðu þeir í krafti þess að þeir voru enn í for­svari rekstr­ar­fé­lags á bak við það en Ágúst Arnar hafði verið einn af stofn­endum þess árið 2013.

Í stuttu máli þá tókst þessi yfir­taka. Og öld­unga­ráðið sendi frá sér til­kynn­ingu í kjöl­farið þar sem það hvatti fólk til að segja sig úr Zuism.

85 milljónir á tveimur árum

Árið 2020 voru bræð­urnir ákærðir af hér­aðs­sak­sókn­ara fyrir fjár­svik og pen­inga­þvætti. Embættið taldi að brotin hefðu staðið yfir frá árinu 2015, en þó „einkum frá októ­ber 2017, og fram á fyrri hluta árs 2019“. Á því tíma­bili hafi þeir „styrkt og hag­nýtt sér þá röngu hug­mynd starfs­manna íslenskra stjórn­valda að trú­fé­lagið Zuism upp­fyllti skil­yrði fyrir skrán­ingu trú­fé­lags[...]og þar með rétt til fjár­fram­laga úr rík­is­sjóð­i.“

[links]Bræð­urnir eru sagðir hafa notað pen­inga sem greiddir voru sem sókn­ar­gjöld til félags­ins í eigin per­sónu­lega neyslu, meðal ann­ars í ferða­lög, áfeng­is­kaup og hluta­bréfa­við­skipti.

Frá októ­ber 2017 og fram til jan­úar 2019 greiddi rík­is­sjóður alls 36 sinnum inn á banka­reikn­ing félags­ins í Arion banka vegna sókn­ar­gjalda áranna 2016 til 2018. Alls var um að ræða 84,7 millj­ónir króna. Í ákæru segir að með athæfi sínu hafi bræð­urnir ollið „ís­lenska rík­inu veru­legri fjár­tjóns­hættu og fjár­tjóni í reynd.“

Í stuttu máli þá telur hér­aðs­sak­sókn­ari að bræð­urnir hafi blekkt ríkið til að fá ofan­greinda fjár­muni, með því að þykj­ast reka trú­ar­lega starf­semi, þegar engin eig­in­leg trú­ar­iðkun fór fram í félag­in­u.

Pen­ing­unum var því ekki ráð­stafað til rekstur trú­fé­lags­ins, eða til end­ur­greiðslu á sókn­ar­gjöld­um, heldur meðan ann­ars ráð­stafað til bræðr­anna.

Í maí síð­ast­liðnum voru bræð­urnir sýkn­aði í hér­aðs­dómi Reykja­víkur. Þeirri nið­ur­stöðu áfrýj­aði rík­is­sak­sókn­ari til Lands­réttar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár