Zuism: Trúfélagið sem fjármagnaði ferðalög, áfengiskaup og hlutabréfaviðskipti tveggja bræðra

Hér­aðs­sak­sókn­ari hefur ákært tvo menn, bræður, fyrir að svíkja sókn­ar­gjöld út úr rík­is­sjóði og nota þau svo í eigin þágu um nokk­urra ára skeið. Það gerðu þeir með því að nota trú­fé­lagið Zuism, sem hafið lofað öllum sem skráðu sig í það end­ur­greiðslu.

Vorið 2015 var birt aug­lýs­ing frá emb­ætti sýslu­manns­ins á Norð­ur­landi eystra í Lög­birt­inga­blað­inu þar sem skorað var á með­limi trú­fé­lags­ins Zuism að gefa sig fram. Þeir voru þá fjórir tals­ins. Til­gangur aug­lýs­ing­ar­innar var að kanna hvort ein­hver vildi kann­ast við félagið. Ef ekki yrði það lagt niður, enda fjöldi með­lima var langt frá því að upp­fylla við­mið í reglu­gerð dóms­mála­ráðu­neyt­is­ins um skrán­ingu opin­berra trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­laga.

Hópur áhuga­fólks um trú­ar­legt jafn­rétti og raun­veru­legt trú­frelsi sá sér leik á borði. Erfitt er að fá ný trú­fé­lög við­ur­kennd og hóp­ur­inn, sem síðar kall­aði sig öld­unga­ráð Zúista, ákvað að safna lág­marks­fjölda með­lima í Zuism, gefa sig fram við sýslu­mann og taka félagið ein­fald­lega yfir. Þann 1. júní 2015 fékk full­trúi hóps­ins opin­bera við­ur­kenn­ingu emb­ættis sýslu­manns að hann væri for­stöðu­maður trú­fé­lags­ins og að þau færu nú með völd í þessu umkomu­lausa trú­fé­lagi.

Hug­myndin sem hóp­ur­inn gekk með í mag­anum var að hvetja fólk til að skrá sig sem Zúista gegn vil­yrði fyrir því að fá sókn­ar­gjöld sín, þá 10.800 krónur á mann, end­ur­greidd. Um borg­ara­lega óhlýðni var að ræða, þar sem snið­ugur hópur ætl­aði að spila á kerfið til að sýna fárán­leika þess og sýna í verki hversu mikil tíma­skekkja núver­andi trú­fé­lags­kerfi væri. Enginn átti að græða neitt og öllum fjár­munum sem myndu koma í kass­ann yrði skilað til greið­enda, að frá­dregnum umsýslu­kostn­aði.

Blóta IKEA og syngja ítölsk júróvisjónlög

Samkvæmt grein sem hóp­ur­inn birti á Kjarn­anum um jólin 2015 ætl­uðu Zúistar að iðka trú sína með því að halda upp á sól­stöðu­há­tíð. „Við hefjum hátíð­ina í sept­em­ber með því að blóta IKEA í sand og ösku fyrir að leyfa okkur ekki að syrgja sum­arið almenni­lega áður en skrúfað er frá jóla­aug­lýs­inga­kran­anum. Í nóv­em­ber er svo fár­ast yfir jóla­lögum og alltof snemm­búnum skreyt­ingum á Lauga­veg­inum. Þegar nær dregur jólum mild­umst við þó aðeins og í des­em­ber hellist hátíð­ar­and­inn yfir okkur þegar við til­biðjum skurð­goð á borð við neyslu­sam­fé­lagið, jóla­sveina (þessa rauðu sem drekka bara kóka­kóla), og konfekt. Á aðfanga­dag opnum við gjafir sem eru faldar undir sýn­is­horni úr barr­skóga­belt­inu, rétt eins og Jesús gerði forðum. Við hlustum einnig mikið á ítölsk júró­visjón­lög sem eru sungin á íslensku af BÓ. Fyrst og fremst njótum við þó kyrrð­ar­innar á milli kaupæð­anna og reynum að vera með fjöl­skyld­unni, eins og flestir gerðu áður en þeir skráðu sig í Zuism.“

Hátíð Zúista átti að hefjast í september ár hvert „með því að blóta IKEA í sand og ösku fyrir að leyfa okkur ekki að syrgja sumarið almennilega áður en skrúfað er frá jólaauglýsingakrananum.“
Hátíð Zúista átti að hefj­ast í sept­em­ber ár hvert „með því að blóta IKEA í sand og ösku fyrir að leyfa okkur ekki að syrgja sum­arið almenni­lega áður en skrúfað er frá jóla­aug­lýs­inga­kran­anum.“

Í nóv­em­ber þetta sama ár, 2015, hafði hóp­ur­inn aug­lýst fyr­ir­ætl­anir sínar og á tveimur vikum gengu um þrjú þús­und manns í félagið. Í byrjun des­em­ber voru Zúistar orðnir eitt stærsta trú­fé­lag lands­ins.

Gjörn­ing­ur­inn virt­ist hafa gengið upp. Hann vakti raunar heims­at­hygli og fjallað var um hann í tugum fjöl­miðla víða um heim.

En hann vakti athygli fleiri. Á meðal þeirra voru upp­haf­legu stofn­endur trú­fé­lags­ins Zuism.

Kickstarter-bræður taka yfir trúfélag

Um var að ræða tvo bræður, þá Einar og Ágúst Arnar Ágústs­syni. Þeir höfðu vakið athygli fyrir að safna háum fjár­hæðum á hóp­fjár­mögn­un­ar­síð­unni Kickstarter á árinu 2015. Það gerðu þeir meðal ann­ars til að koma fram­leiðslu á svo­kall­aðri TOB-snúru á kopp­inn, til að fram­leiða sér­staka sól­ar­raf­hlöðu sem fest var á ólar á bak­poka og síðar til að fjár­magna fram­leiðslu á ferða­vind­túrbínum, ein­hvers­konar vind­myllum til einka­nota. Kastljós greindi frá því í októ­ber 2015 að bræð­urnir væru til rann­sóknar vegna meintra fjársvika vegna þeirrar safn­ana. Nýsjá­lenskur raf­magns­verk­fræð­ingur sagði m.a. í sam­tali við Stundina skömmu síðar að ef vind­myllu­verk­efni bræðr­anna, sem hafði safnað mestu fé, ætti að geta gert það sem þeir sögðu að hún gæti þá þyrfti að end­ur­skoða nokkur nátt­úru­lög­mál.

Einar var síðar, nánar til­tekið á árinu 2017, dæmdur til þungrar fang­els­is­vistar, alls þriggja ára og níu mán­aða, fyrir fjár­svik vegna ann­ars máls. Kjarninn greindi ítar­lega frá því máli í frétta­skýr­ingu í mars 2017. Sá dómur var stað­festur í Lands­rétti síðla árs 2018. Hægt er að lesa um það mál í auka­efni hér að neðan.

Eftir hina miklu athygli sem gjörn­ingur öld­unga­ráðs Zúista vakti, og þegar fyrir lá að tugir millj­óna króna myndu streyma árlega inn í trú­fé­lagið vegna þess hversu margir skráðu sig í það, gerðu bræð­urnir kröfu um yfir­ráð yfir félag­inu. Það gerðu þeir í krafti þess að þeir voru enn í for­svari rekstr­ar­fé­lags á bak við það en Ágúst Arnar hafði verið einn af stofn­endum þess árið 2013.

Í yfir­lýs­ingu sem öld­unga­ráð Zúista sendi frá sér í nóv­em­ber 2017 sagði að þarna, snemma í des­em­ber, hafi haf­ist „stjórn­sýslu­ma­tröð“. Í ljós kom að nýju for­svars­menn Zúista, þrátt fyrir að hafa fengið skýrar leið­bein­ingar frá opin­berum aðilum um hvernig þeir ættu að stofna nýtt rekstr­ar­fé­lag, gátu ekki gert það. Án rekstr­ar­fé­lags gátu þeir hvorki mót­tekið né ráð­stafað þeim fjár­munum sem félagið átti til­kall til. Í febr­úar 2016 óskaði öld­unga­ráðið eftir því að allar greiðslur frá Fjár­sýslu rík­is­ins til trú­fé­lags­ins yrðu frystar til að vernda hags­muni með­lima trú­fé­lags­ins. Fjár­sýslan varð við þeirri beiðni og voru fjár­munir félags­ins í fryst­ingu hjá rík­is­sjóði fram á haust 2017.

Í nóv­em­ber 2017 tap­að­ist málið þeirra hins vegar end­an­lega, og stað­fest var að Einar og Ágúst Arnar, sem þá var skráður for­stöðu­maður Zúista, höfðu full yfir­ráð yfir félag­inu. Í áður­nefndri yfir­lýs­ingu sagði: „Við höfum því engin ítök eða völd lengur í trú­fé­lag­inu Zuism og getum þar af leið­andi ekki borið ábyrgð á því að sókn­ar­gjöld verði end­ur­greidd eða gefin til góð­gerð­ar­mála. Við frá­biðjum okkur einnig til­raunir núver­andi for­ráða­manna félags­ins til að eigna sér upp­haf­leg mark­mið okkar með gjörn­ingn­um, enda komu þeir hvergi að þeirri hug­mynda­vinn­u.“

Fjársvik sem ollu ríkissjóði „fjártjóni í reynd“

Ágúst Arnar kom ítrekað fram í fjöl­miðlum á þessum tíma og sagði að lof­orð um end­ur­greiðslur til félags­manna myndi halda. Af því varð þó ekki. Að minnsta kosti sem neinu nemur. Í við­tali við mbl.is í des­em­ber 2019, þegar bræð­urnir voru búnir að missa yfir­ráð yfir fjár­ráðum Zuism vegna kyrr­setn­ing­ar­að­gerða hér­aðs­sak­sókn­ara, sagði Ágúst Arnar að í heild­ina hafi verið greiddar tæpar sjö millj­ónir króna til sókn­ar­barna Zuism.

Þess í stað, sam­kvæmt því sem fram í ákæru hér­aðs­sak­sókn­ara á hendur bræðr­unum, og er dag­sett 4. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, frömdu bræð­urnir, sem stjórn­ar­menn og pró­kúru­hafar í félag­inu Zuism, fjár­svik. Þau hafi staðið frá árinu 2015, en þó „einkum frá októ­ber 2017, og fram á fyrri hluta árs 2019“. Á því tíma­bili hafi þeir „styrkt og hag­nýtt sér þá röngu hug­mynd starfs­manna íslenskra stjórn­valda að trú­fé­lagið Zuism upp­fyllti skil­yrði fyrir skrán­ingu trú­fé­lags[...]og þar með rétt til fjár­fram­laga úr rík­is­sjóði.“

Frá októ­ber 2017 og fram til jan­úar 2019 greiddi rík­is­sjóður alls 36 sinnum in á banka­reikn­ing félags­ins í Arion banka vegna sókn­ar­gjalda áranna 2016 til 2018. Alls var um að ræða 84,7 millj­ónir króna. Í ákæru segir að með athæfi sínu hafi bræð­urnir ollið „íslenska rík­inu veru­legri fjár­tjóns­hættu og fjár­tjóni í reynd.“

Í stuttu máli þá telur hér­aðs­sak­sókn­ari að bræð­urnir hafi blekkt ríkið til að fá ofan­greinda fjár­muni, með því að þykj­ast reka trú­ar­lega starf­semi, þegar engin eig­in­leg trú­ar­iðkun fór fram í félag­inu.

Pen­ing­unum var því ekki ráð­stafað til rekstur trú­fé­lags­ins, eða til end­ur­greiðslu á sókn­ar­gjöldum, heldur meðan ann­ars ráð­stafað til bræðr­anna.

Styrktu „villu stjórnvalda um trúfélagið“

Blekk­ing­arnar voru ýmis­konar sam­kvæmt ákæru. Þar segir að bræð­urnir hafi meðal ann­ars ekki upp­lýst stjórn­völd um að Zuism upp­fyllti ekki laga­skil­yrði fyrir skrán­ingu sem trú­fé­lag og átti þar með ekki rétt á fjár­fram­lögum úr rík­is­sjóði. Auk þess hafi þeir veitt fjár­greiðslum úr rík­is­sjóði við­töku, marg­ít­rekað og á löngu tíma­bili, þrátt fyrir að eiga ekki lög­mætt til­kall til þeirra.

Í ákærunni segir enn fremur að Ágúst Arnar hafi útbúið og sent „röng og vill­andi gögn til stjórn­valda varð­andi trú­fé­lagið og mál­efni þess[...]Hann stóð jafn­framt að því að gefa út, einkum á heima­síðu trú­fé­lags­ins, rangar og vill­andi yfir­lýs­ingar um mál­efni þess sem voru til þess fallnar að styðja og við­halda opin­ber­lega gagn­vart almenn­ingi sömu röngu hug­mynd um trú­fé­lagið og ákærðu komu fram með fyrr­nefndum blekk­ingum gagn­vart stjórn­völdum í tengslum við lög­skipti trú­fé­lags­ins með þau. Með því að stuðla þannig að því að opin­ber ásýnd trú­fé­lags­ins væri í sam­ræmi við þá röngu hug­mynd sem ákærðu styrktu og hag­nýttu hjá stjórn­völdum stuðl­aði Ágúst þannig um leið og enn frekar að því, með óbeinum hætti, að styrkja villu stjórn­valda um trú­fé­lagið.“

Keyptu bensín, mat og áfengi

Bræð­urnir eru líka ákærðir fyrir pen­inga­þvætti fyrir að hafa flutt, umbreytt og nýtt þá pen­ingar sem rík­is­sjóður greiddi til Zuism, og hér­aðs­sak­sókn­ari segir að sé ávinn­ingur af fjársvika­brotum þeirra, og nýtt þann ávinn­ing að mestu í eigin þágu. Umræddir fjár­munir voru meðal ann­ars færðir inn á banka­reikn­inga erlendra félaga sem Einar átti og stýrði. Fyrir pen­ing­anna keyptu bræð­urnir meðal ann­ars ein­ingar í verð­bréfa­sjóði hjá Íslands­banka og hluta­bréf í hluta­fjár­út­boðum Heima­valla og Arion banka. Hluti þeirra var líka ein­fald­lega milli­færður á banka­reikna bræðr­anna, eða félaga í þeirra eigu. Þeir voru síðan not­aðir til að kaupa vörur og þjón­ustu á veit­inga­húsum, í áfeng­is­versl­unum, bens­ín­stöðvum, mat­vöru­versl­unum og af fjar­skipta­fyr­ir­tækjum. Auk þess borg­uðu bræð­urnir fyrir ýmis konar ferða­kostnað með sókn­ar­gjöld­unum úr rík­is­sjóði.

Á meðal þess sem bræðurnir keyptu fyrir sóknargjöldin voru hlutabréf í Arion banka.
Á meðal þess sem bræð­urnir keyptu fyrir sókn­ar­gjöldin voru hluta­bréf í Arion banka.

Eitthvað er eftir af pen­ing­unum. Á reikn­ingi Zuism er tæp­lega 1,3 millj­ónir króna sem hér­aðs­sak­sókn­ari lagði hald á í fyrra og krefst upp­töku á. Þá er kraf­ist upp­töku á hluta­bréfum í Arion banka að nafn­virði 2.275 krónur og sölu­and­virði hluta­bréfa í Heima­völlum, sem var afskráð fyrr á þessu ári, upp á 564 þús­und krónur.

Hér­aðs­sak­sókn­ari lét í fyrra kyrr­setja eignir félags sem Einar er í fyr­ir­svari fyrir hjá bresku verð­bréfa­fyr­ir­tæki í fyrra. Þær voru metnar á um 34 millj­ónir króna á núvirði í lok sept­em­ber síð­ast­lið­ins. Auk þess er farið fram að eignir félags í raun­veru­legri Einars sem skráð er í Delaware í Banda­ríkj­unum upp á 9,5 millj­ónir króna sæti upp­töku.

Þann 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn voru enn 1.124 lands­menn skráðir í Zuism.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið undanfarið ár