Hvaða erindi á fjölgyðistrú frá bronsöld við Íslendinga?

Zúistar stálu sen­unni í trú­málum undir lok árs, þeg­ar­þús­undir manns skráðu sig í þetta áður óþekkta trú­fé­lag. Til­gangur þess er að end­ur­greiða sókn­ar­gjöld og fullur aðskiln­aður ríkis og allra trú­fé­laga.

Við hjá Zúistum höfum ítrekað verið spurð hvað það er sem við raun­veru­lega viljum. Svarið er ein­falt: Við viljum trú­ar­legt jafn­rétti og raun­veru­legt trú­frelsi. Við viljum lög­gjöf án for­rétt­inda handa trú­fé­lögum umfram önnur félög. Við viljum að hið opin­bera hafi engin bein afskipti af trú­ar­lífi fólks og að trú­lausir gjaldi ekki sér­stak­lega fyrir það að vera trú­lausir.

Trúfélög á skrá hins opin­bera eru ein­stök meðal félaga að því leyti að ríkið greiðir þeim árlega styrk með hverjum félags­manni 16 ára og eldri. Á næsta ári verður þessi styrkur um 10.800 kr. á mann. Trúfélög þurfa því ekki að inn­heimta eigin félags­gjöld.

Í síð­ari hluta nóv­em­ber fórum við Zúistar af stað með kynn­ing­ar­her­ferð á Facebook til að vekja athygli á því að fólk getur breytt trú­fé­laga­skrán­ingu sinni og að það skiptir máli hvar það er skráð. Mark­miðið er að gera fólk með­vit­að­ara um trú­fé­laga­kerfið sem hér er við lýði, óháð því hvort fólk kýs að ganga í félag Zúista. Í kjöl­farið fékk félagið mikla umfjöllun í fjöl­miðlum og þús­undir ein­stak­linga gengu í það. Árangur okkar staf­aði meðal ann­ars af því að við buðum upp á kost fyrir þá sem engan kost höfðu. Við lof­uðum að bæta líf fólks í þessu lífi, sem er nokkuð sér­stakt meðal trú­fé­laga, með því að ráð­stafa sókn­ar­gjöld­unum aftur til fólks­ins. Fjöldi þeirra sem skráðu sig gefur til kynna að mál­stað­ur­inn eigi sér góðan hljóm­grunn meðal Íslend­inga. Áhuginn á fram­tak­inu fór fram úr okkar björt­ustu vonum. Fjallað hefur verið um Zúista og íslenska trú­fé­laga­kerfið í tugum fjöl­miðla um allan heim. Einnig höfum við fengið fjöl­margar fyr­ir­spurnir frá ein­stak­lingum á alþjóða­vísu um hvernig þeir geti stutt við mál­stað­inn. Leitum við nú leiða til að verða við þeim óskum.

Núver­andi lög­gjöf um trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lög er órétt­lát. Hún mis­munar trú­lausum og hún mis­munar trú­fé­lögum öðrum en rík­is­trú­fé­lag­inu. Hún felur í sér þá afstöðu rík­is­ins að göf­ugra sé að vera trúuð mann­eskja en trú­laus. Ef þú ert í trú­fé­lagi þá borgar ríkið með þér, jafn­vel þótt þú borgir ekk­ert til rík­is­ins. Kjósir þú hins vegar að standa utan trú­fé­laga þá greiðir þú hlut­falls­lega meira fyrir grunn­þjón­ustu, því eng­inn kemst hjá þátt­töku í þessu kerfi. Þar að auki taka þeir tug­þús­undir Íslend­inga sem játa aðra trú, eða enga trú, þátt í að borga fram­lög rík­is­ins til þjóð­kirkj­unnar. Órétt­læti af þessu tagi er afleið­ing þess að eitt trú­fé­lag er jafn­ara en önnur. Hvað ef allir Íslend­ingar væru skyld­aðir til að borga kodda­gjald til Tann­álfs­ins vegna þess að trú­ar­leg stofnun um hann væri stjórn­ar­skrár­varin? Íslend­ingar utan þjóð­kirkj­unnar eru settir í þær aðstæður.

Núver­andi lög­gjöf um trú- og líf­skoð­un­ar­fé­lög er órétt­lát. Hún mis­munar trú­lausum og hún mis­munar trú­fé­lögum öðrum en rík­is­trú­fé­lag­inu. Hún felur í sér þá afstöðu rík­is­ins að göf­ugra sé að vera trúuð mann­eskja en trú­laus.

Á vef­síðu Zúista, zuistar.is, er að finna ítar­lega umfjöllum um áherslu­at­riði okkar en við látum þó fylgja með nokkur af okkar helstu bar­áttu­málum:

  • Það er órétt­látt að trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög fái styrki frá rík­inu sem félögum af öðru tagi stendur ekki til boða. Af hverju getur fólk ekki ánafnað rík­is­styrk sínum til íþrótta- og æsku­lýðs­fé­laga með sama hætti? Eða björg­un­ar­sveita? Þá er óboð­legt að þeir skatt­greið­endur sem kjósa að standa utan trú­fé­laga borgi þar af leið­andi hlut­falls­lega meira fyrir grunn­þjón­ustu.
  • Það er óeðli­legt og jafn­vel hættu­legt að ríkið krefji fólk um að gefa upp trú­ar­skoð­anir sínar. Að mati Zúista er þetta álíka galið og ef ríkið ræki gagna­grunn um kyn­hneigð fólks eða stjórn­mála­skoð­anir. Trú er mjög per­sónu­leg í eðli sínu og hver og einn ætti að fá að iðka sína trú án afskipta yfir­valda.
  • Á Íslandi býr fjöl­breyttur hópur fólks af ólíkum trú­ar­legum- og menn­ing­ar­legum upp­runa. Hér eru fleiri en 40 skráð trú- og lífs­skoð­un­ar­fé­lög, til að virða jafn­ræð­is­regl­una og trú­frelsi getur ríkið ekki hyglt einu trú­fé­lagi og þar með lagt þyngri byrði á trú­lausa. Ef jafn­rétti trú­fé­laga á að nást er óum­flýj­an­legt að breyta öllum lögum og stjórn­ar­skrár­á­kvæðum sem veita sumum félögum afslátt á For­rétt­inda­barnum.

En hvernig haga Zúistar þá trú­ar­iðkun sinni? Sem dæmi má nefna sól­stöðu­há­tíð Zúista, en hún fer fram með svip­uðum hætti og sam­bæri­legar hátíðir ann­arra Íslend­inga. Við hefjum hátíð­ina í sept­em­ber með því að blóta IKEA í sand og ösku fyrir að leyfa okkur ekki að syrgja sum­arið almenni­lega áður en skrúfað er frá jóla­aug­lýs­inga­kran­anum. Í nóv­em­ber er svo fár­ast yfir jóla­lögum og alltof snemm­búnum skreyt­ingum á Lauga­veg­inum. Þegar nær dregur jólum mild­umst við þó aðeins og í des­em­ber hellist hátíð­ar­and­inn yfir okkur þegar við til­biðjum skurð­goð á borð við neyslu­sam­fé­lagið, jóla­sveina (þessa rauðu sem drekka bara kóka­kóla), og konfekt. Á aðfanga­dag opnum við gjafir sem eru faldar undir sýn­is­horni úr barr­skóga­belt­inu, rétt eins og Jesús gerði forðum. Við hlustum einnig mikið á ítölsk júró­visjón­lög sem eru sungin á íslensku af BÓ. Fyrst og fremst njótum við þó kyrrð­ar­innar á milli kaupæð­anna og reynum að vera með fjöl­skyld­unni, eins og flestir gerðu áður en þeir skráðu sig í Zuism.

Að lokum má geta þess að eng­inn kostn­aður fellur á félags­menn fyrir utan umsýslu­kostnað við end­ur­greiðslu. Til að tryggja að stjórnin hafi engan aðgang að fjár­munum félags­ins mun lög­giltur end­ur­skoð­andi einn fara með pró­kúru félags­ins. End­ur­skoð­and­inn greiðir rík­is­styrki beint til félags­manna og góð­gerð­ar­fé­laga án milli­göngu stjórnar félags­ins. Í lögum Zúista er ákvæði um að félagið skuli lagt niður þegar mark­miðum þess hefur verið náð. Þangað til munum við halda ótrauð áfram og von­andi vekja frek­ari athygli á þeirri tíma­skekkju sem núver­andi trú­fé­laga­kerfi er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár