Verð á bréfum Solid Clouds óbreytt frá útboði

Ein­hverjar sveiflur voru á verði bréfa Solid Clouds á fyrsta við­skipta­degi með bréf félags­ins en verðið end­aði í 12,5 krónum á hlut. Ekki er sjálf­gefið að hluta­bréfa­verð hækki mikið í kjöl­far hluta­fjár­út­boðs líkt og hefur verið raunin að und­an­förnu.

Sigurlína Ingvarsdóttir, stjórnarformaður Solid Clouds, hringdi inn fyrstu viðskipti í morgun.
Sig­ur­lína Ingv­ars­dóttir, stjórn­ar­for­maður Solid Clouds, hringdi inn fyrstu við­skipti í morgun. Mynd: Birgir Ísleifur Gunnarsson

Í morgun hófust við­skipti með bréf tölvu­leikja­fyr­ir­tæk­is­ins Solid Cloud á First North mark­aði kaup­hall­ar­innar. Við opnun mark­aða gengu bréf félags­ins kaupum og sölum á geng­inu 14 sem er 12 pró­sentum hærra en útboðs­verð bréf­anna sem var 12,5. Hæst fór gengið í dag upp í 14,2 en lægst fór það niður í 10,5 krónur á hvern hlut. Við lokun mark­aða stóð verð bréf­anna aftur á móti í 12,5 krónum á hlut sem er það sama og bréfin voru seld á í nýaf­stöðnu hluta­fjár­út­boði. Heild­ar­velta með bréf félags­ins í dag nam tæpum 26 millj­ónum króna.

Hluta­fjár­út­boð Solid Clods stóð yfir í lok síð­asta mán­aðar, það hófst þann 28. júní og því lauk þann 30. sama mán­aðar. Líkt og áður hefur komið fram var útboðs­gengið 12,5 krónur á hlut en í útboð­inu voru tvær áskrift­ar­bækur, áskrift­ar­bók A fyrir áskriftir frá 100 þús­und krónum að 15 millj­ónum og áskrift­ar­bók B fyrir áskriftir yfir 15 millj­ónum. Fjórföld eft­ir­spurn var í útboði félags­ins en til­boð fyrir um 1,8 millj­arða bár­ust í áskrift­ar­bók A og fyrir um 900 millj­ónir í áskrift­ar­bók B.

Vegna mik­illar eft­ir­spurnar þurfti hafna áskriftum mörg hund­ruð þátt­tak­enda í útboð­inu og skerða úthlutun hjá öðrum, líkt og greint var frá í til­kynn­ingu frá Solid Clouds. „Þeir mæli­kvarðar sem stjórn Solid Clouds hf. beitti við skerð­ing­una byggja á hlut­lægum grunni og útgangs­punkt­ur­inn var sá að tryggja hags­muni félags­ins og sömu með­ferð áskrif­enda í sömu stöðu. Meðal þeirra þátta sem stjórn félags­ins horfði til við úthlutun var tíma­setn­ing skrán­ingar í útboð­inu. Þeir sem óskað höfðu eftir áskrift áður en félagið birti til­kynn­ingu um að áskrift hafi borist fyrir öllum hlutum útboðs­ins fengu þannig allir úthlutun, þó þeir hafi þurft að sætta sig við umtals­verða skerð­ingu áskriftar,“ sagði í til­kynn­ingu félags­ins.

Ólíkt ávöxtun eftir nýafstaðin hlutafjárútboð

Nið­ur­staðan eftir þennan fyrsta við­skipta­dag er því tals­vert ólíkt því sem gerð­ist í kjöl­far síð­ustu skrán­ingar á First North mark­að­inn þegar bréf flug­fé­lags­ins PLAY voru tekin til við­skipta eftir hluta­fjár­út­boð en bréfin hækk­uðu ann­ars vegar um 23 pró­sent hins vegar um 37 pró­sent, en útboðs­gengið var ekki það sama í báðum til­boðs­bókum í útboði PLAY. Þátt­tak­endur í hluta­fjár­út­boði Íslands­banka sáu bréf sín hækka um 20 pró­sent á fyrsta degi við­skipta og þá hækk­aði gengi á bréfum Síld­ar­vinnsl­unnar um 8,6 pró­sent á fyrsta við­skipta­degi. [links]

Fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland fjall­aði um hugs­an­legar orsakir hraðra verð­hækk­ana í kjöl­far hluta­fjár­út­boða í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar en sam­kvæmt Baldri eru slíkar verð­hækk­anir þekkt fyr­ir­bæri sem kallað er „frumút­boðspopp“ (e. IPO pop).

Ávöxtun eftir útboð ekki sjálfgefin

Frá fjár­mála­hrun­inu árið 2008 hafa verið haldin 18 frumút­boð hér á landi fyrir skrán­ingu í Kaup­höll­inni. Að und­an­skildum útboðum PLAY og Solid Clouds hefur frumút­boðspoppið á þessu tíma­bili numið um átta pró­sentum að með­al­tali. Hæst var það um 33 pró­sent í TM árið 2013, en þar á eftir koma Íslands­banki, Arion banki og Hagar með 18-20 pró­senta verð­hækkun á eftir frumút­boði.

Það er ekki sjálf­gefið að hluta­bréfa­verð hækki eftir hluta­fjár­út­boð. Til að mynda nefnir Baldur fast­eigna­fé­lögin en bréf Reita, Eikar, Regins og Heima­valla lækk­uðu öll eftir skrán­ingu þeirra. Til að mynda nam lækk­unin ell­efu pró­sentum hjá Heima­völlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nasdaq

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár