73 prósent af viðskiptunum voru í Íslandsbanka

Alls námu við­skipti með hluta­bréf Íslands­banka 5,4 millj­örðum króna eftir fyrsta við­skipta­dag þeirra í Kaup­höll­inni í dag. Verð bréf­anna er nú fimmt­ungi hærra en útboðs­gengi þeirra.

Birna Einarsdóttir bankastjóri Íslandsbanka hringir hér inn fyrstu viðskipti í Íslandsbanka
Birna Ein­ars­dóttir banka­stjóri Íslands­banka hringir hér inn fyrstu við­skipti í Íslands­banka Mynd: Nasdaq Iceland

Tæplega þrír fjórðu­hlutar allra við­skipta sem áttu sér stað í Kaup­höll­inni í dag voru með bréf í Íslands­banka. Heild­ar­virði við­skipt­anna nam 5,4 millj­örðum króna, en þeir sem tóku þátt í hluta­bréfa­út­boði bank­ans sem lauk í síð­ustu viku hafa nú fengið tæp­lega 20 pró­senta ávöxtun á bréfum sínum.

Þetta kemur fram í yfir­lits­tölum á Mark­aðsvakt Keld­unnar eftir lokun mark­aða. Samkvæmt þeim lækk­aði hluta­bréfa­verð í níu skráðum félögum í dag, en lækk­unin nam yfir einu pró­senti í Marel, Arion og Icelandair. Mest lækk­uðu hluta­bréfin í Icelandair, en þau eru nú 3,8 pró­sentum lægri en þau voru við opnun mark­aða í morgun.

Heild­ar­virði við­skipta í Kaup­höll­inni nam 8,2 millj­örðum króna, en þar af voru um 65 pró­sent með bréf í Íslands­banka. Alls voru 838 við­skipti skráð með bréf í bank­anum, en heild­ar­fjöldi við­skipta í Kaup­höll­inni í dag var 1.155.

Líkt og Kjarninn hefur greint frá var níföld eft­ir­spurn eftir bréfum í Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans sem lauk á þriðju­dag­inn í síð­ustu viku. Í útboð­inu var um 35 pró­senta hlutur í bank­anum seldur á 79 krónur á hlut, sem voru efri mörk útboðs­verðs­ins.

Verð á hlutum í Íslands­banka nema nú 94,6 krónum á hlut, sem er tæp­lega 20 pró­sentum hærri en útboðs­gengið. Heil­sölu­and­virði útboðs­ins nam 55,3 millj­örðum króna, sem er rúm­lega tíu sinnum meira en and­virði við­skipta með bréf í bank­anum var í Kaup­höll­inni í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár