Níföld eftirspurn eftir bréfum í Íslandsbanka og hluthafar verða 24 þúsund

Alls feng­ust 55,3 millj­arðar króna fyrir 35 pró­sent hlut í Íslands­banka sem þýðir að mark­aðsvirði hans er 158 millj­arðar króna, eða 85 pró­sent af eigin fé bank­ans. Fjöldi hlut­hafa verður sá mesti í skráðu félagi á Íslandi þegar við­skipti hefj­ast.

Birna Einarsdóttir er bankastjóri Íslandsbanka. Hún verður fyrsta konan sem stýrir félagi í Kauphöll Íslands síðan í ágúst 2016.
Birna Ein­ars­dóttir er banka­stjóri Íslands­banka. Hún verður fyrsta konan sem stýrir félagi í Kauphöll Íslands síðan í ágúst 2016. Mynd: Íslandsbanki

Níföld eft­ir­spurn var eftir bréfum í Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans sem lauk í gær. Í útboð­inu var 35 pró­sent hlutur í bank­anum seldur á 79 krónur á hlut, sem voru efri mörk útboðs­verðs­ins.

Heild­ar­sölu­and­virðið er 55,3 millj­arðar króna og rennur það að uppi­stöðu, eftir að búið er að draga frá kostnað vegna útboðs­ins, í rík­is­sjóð þar sem íslenska ríkið var eini eig­andi bank­ans fyrir útboðið. Áætlað mark­aðsvirði Íslands­banka miðað við þetta er 158 millj­arðar króna.

Í til­kynn­ingu frá bank­anum vegna útboðsloka kemur fra að um stærsta frumút­boð hluta­bréfa sé að ræða sem farið hefur fram hér á landi. Alls nam eft­ir­spurnin eftir bréfum 486 millj­örðum króna. Tilboð upp að einni milljón króna verða ekki skert í sam­ræmi við ákvæði lýs­ingar og aðrar rétt­ar­heim­ildir til að stuðla að dreifðu og fjöl­breyttu eign­ar­haldi og að skerða ekki til­boð upp að einni milljón króna. Þeir sem skráðu sig fyrir bréfum munu fá upp­lýs­ingar um úthlutun í síð­asta lagi í dag.

Fjöldi hlut­hafa í Íslands­banka verður um 24 þús­und eftir útboðið sem er mesti fjöldi hlut­hafa allra skráðra fyr­ir­tækja á Íslandi. Í til­kynn­ingu bank­ans segir að ríkið muni áfram sem áður fara með 65 pró­sent hlut í honum, aðrir inn­lendir fjár­festar 24 pró­sent hlut og erlendir fjár­festar munu eiga um ell­efu pró­sent af heild­ar­hlutafé bank­ans.

Við­skipti með bréf Íslands­banka í Kauphöll Íslands munu hefj­ast næst­kom­andi þriðju­dag, 22. júní.

Bréfin þykja ódýr

Þegar skrán­ing­ar­lýs­ing Íslands­banka var birt í byrjun síð­ustu viku kom fram að hið leið­andi verð­bil í því væri frá 71 til 79 krónur á hlut. Mið­punktur þess reikn­aði að virði bank­ans væri 150 millj­arðar króna, en eigið fé bank­ans er 185 millj­arðar króna.

[adspot]Nú er ljóst að virði bank­ans er vel umfram það enda eft­ir­spurn eftir bréfum langt umfram fram­boð. Þar þykir ráða mestu að bréfin telj­ast ódýr, sér­stak­lega í sam­an­burði við gengi bréfa í Arion banka, hinum kerf­is­lega mik­il­væga bank­anum sem skráður er á markað.

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, Gildi, Capital World Invsestors og RWC Asset Mana­gement höfðu þegar við upp­haf útboðs­ins skuld­bundið sig til að kaupa um það bil tíu pró­sent af öllu útgefnu hlutafé Íslands­banka í hluta­fjár­út­boði bank­ans og verða svo­kall­aðir horn­steins­fjár­festar.

Vilji hjá ráðherra til að selja meira

Ríkið er skuld­bundið sam­kvæmt skil­málum hluta­fjár­út­boðs­ins að selja ekki fleiri hluti í hálft ár eftir fyrstu sölu.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði í maí að hann vilji selja það sem eftir mun standa af eign­ar­hlut Íslands­banka við fyrsta tæki­færi á næsta kjör­tíma­bili. Bjarni sagði við Frétta­blaðið í síð­asta mán­uði: „Ef ég fengi ein­hverju um það ráðið þá myndum við klára þennan áfanga og við myndum nota fyrsta tæki­færi á nýju kjör­tíma­bili til að halda áfram að losa okkur við eign­ar­hluti í bank­anum.“ Það verði verk­efni næsta kjör­tíma­bils.

Bjarni sagð­ist líka vilja selja 35 til 50 pró­sent hlut í Lands­bank­anum, sem ríkið á líka. Sá hlutur sem ríkið myndi halda væri til þess fallið að tryggja að á Íslandi yrði áfram höf­uð­stöðvar banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár