Enn hrynur kínverski markaðurinn — 8,5% fall í dag

Hluta­bréfa­mark­að­ur­inn í Sjanghæ lok­aði eftir fall vísi­töl­unnar um 8,5 pró­sentu­stig í dag. Það er mesta hrun hluta­bréfa­vísi­tölu í Kína á einum degi í átta ár. Hrunið í dag eykur áhyggjur af heilsu þessa næst­stærsta efna­hags­svæðis í heimi.

Í júní féll hluta­bréfa­verð um sam­tals 30 pró­sent sem varð til þess að stjórn­völd í Kína stigu inn í til þess að reyna að leið­rétta mark­að­inn. Þá hafði mark­að­ur­inn vaxið um 150 pró­sent síð­ustu 12 mán­uði á undan, á einu mesta þenslu­tíma­bili í sögu Kína.


5. My view now: worry about the Chinese economy slowing - that could really matter. Worry less about the stock market.


— Duncan Weldon (@DuncanWeldon) July 27, 2015

Á föstu­dag birt­ust gögn um að fram­leiðsla í Kína í júlí hefur ekki verið jafn léleg í 15 mán­uði. Á vef breska rík­is­út­varps­ins, BBC, er haft eftir mark­aðs­sér­fræð­ingnum Bernard Aw að þessi lélega fram­leiðni valdi „auknum áhyggjum um að efna­hag­ur­inn í Kína eigi enn eftir að veikj­ast.“ Fall vísi­töl­unnar í júní olli stjórn­völdum og hluta­bréfa­kaup­endum miklu hug­ar­angri enda kom skyndi­legt hrun á óvart, strax í kjöl­farið á miklu þenslu­skeiði. Stjórn­völd brugð­ust við með því að þvinga fólk til að kaupa bréf í kín­verskum félögum. Þessi við­brögð kín­verskra stjórn­valda voru helst gagn­rýnd af fólki sem sagði aðgerð­irnar sjón­hverf­ingu og skamm­tíma­lausn til að hífa mark­að­inn upp án þess að leysa vanda­málin sem eru mest aðkallandi. Grein­endur segja trausti á þessum aðgerðum stjórn­valda ábóta­vant og að það hafi valdið falli vísi­töl­unnar í dag. Orðrómur um að þving­an­irnar verði brátt afnumdar á að hafa gengið um í dag auk þess sem hag­tölur hafa und­an­farið veikst og það hrætt mark­að­inn.

Fall hlutabréfavísitalna í júní

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár