Kassadama sem varð forsætisráðherra

Konur í áhrifa­stöðum mega iðu­lega sæta háðs­glósum og nið­ur­lægj­andi umælum. Því hefur for­sæt­is­ráð­herra Finna, Sanna Marin, fengið að kynn­ast. Hún hefur verið kölluð kassadama, gleði­kona, tík og fleira í svip­uðum dúr.

Sanna Marin, í miðjunni, ásamt fjórum ráðherrum finnsku stjórnarinnar. 12 af 19 ráðherrum eru konur.
Sanna Marin, í miðj­unni, ásamt fjórum ráð­herrum finnsku stjórn­ar­innar. 12 af 19 ráð­herrum eru konur. Mynd: EPA

Eftir þing­kosn­ingar sum­arið 2019 urðu stjórn­ar­skipti í Finn­landi. Fimm flokkar stóðu að nýju stjórn­inni, for­sæt­is­ráð­herra var Antti Rinne leið­togi Jafn­að­ar­manna­flokks­ins. Af 19 ráð­herrum voru 11 konur. Antti Rinne sat ein­ungis örfáa mán­uði í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu, í byrjun des­em­ber 2019 sagði hann af sér í kjöl­far verk­falls starfs­fólks pósts­ins. Þá hafði einn stjórn­ar­flokk­anna lýst yfir van­trausti á for­sæt­is­ráð­herr­ann. Rík­is­stjórnin sat þó áfram en við starfi for­sæt­is­ráð­herra tók Sanna Marin, vara­for­maður flokks jafn­að­ar­manna.

Sanna Marin, sem er fædd 1985, lauk námi í opin­berri stjórn­sýslu frá Háskól­anum í Tampere árið 2012, og var sama ár kjörin í borg­ar­stjórn Tampere. Árið 2014 varð hún vara­for­maður Jafn­að­ar­manna­flokks­ins og sett­ist á þing ári síðar. Þegar Antti Rinne mynd­aði stjórn sum­arið 2019 varð Sanna Marin sam­göngu- og sam­skipta­ráð­herra. Hún stopp­aði stutt í því starfi því 10. des­em­ber sama ár tók hún við starfi for­sæt­is­ráð­herra, eftir kosn­ingar í flokki jafn­að­ar­manna. Hún er yngsti for­sæt­is­ráð­herra í sögu Finn­lands.

Fjórar konur, einn karl

Þótt Norð­ur­löndin hrósi sér iðu­lega þegar kemur að jafn­rétt­is­málum og telji sig standa fram­ar­lega í þeim efnum hefur jafn­réttið, í gegnum tíð­ina, ekki náð til for­sæt­is­ráð­herra­emb­ætt­is­ins. Hér á Íslandi hafa tvær konur gegnt emb­ætt­inu, Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir og Katrín Jak­obs­dóttir, sömu sögu er að segja frá Noregi, þar hafa þær Gro Harlem Brundtland og Erna Solberg setið á for­sæt­is­ráð­herra­stóli. Í Danmörku hafa tvær konur gegnt emb­ætt­inu, Helle Thorning-Schmidt og Mette Frederik­sen. Finnar hafa þrisvar sinnum haft konu sem for­sæt­is­ráð­herra, Anneli Tuulikki Jäätteenmäki, Mari Johanna Kiviniemi og Sanna Marin. Svíar reka lest­ina í þessum efnum, ef svo má að orði kom­ast, þar hefur kona aldrei verið for­sæt­is­ráð­herra.

Þótt konur hafi, eins og áður var nefnt, borið skarðan hlut frá for­sæt­is­ráð­herra­borði, er annað upp á ten­ingnum núna. Fjórir af fimm for­sæt­is­ráð­herrum Norð­ur­land­anna eru nú konur: Katrín Jak­obs­dóttir, Erna Solberg, Mette Frederik­sen og Sanna Marin. Sú síð­ast­nefnda er þeirra yngst, 35 ára. Fimmti for­sæt­is­ráð­herr­ann er svo Svíinn Stefan Löfven. Hann er jafn­framt ald­urs­for­set­inn í ,,for­sæt­is­ráð­herra­klúbbnum“ fæddur 1957. Erna Solberg er fædd 1961, Katrín Jak­obs­dóttir 1976, Mette Frederik­sen 1977 og Sanna Marin 1985, eins og fyrr var nefnt.

Vakti athygli

Þegar Sanna Marin kynnti rík­is­stjórn sína fyrir fjöl­miðlum 10. des­em­ber 2019 kom í ljós að af 19 ráð­herrum voru 12 konur. Formenn allra flokk­anna fimm sem stóðu að stjórn­inni voru konur og fjórar þeirra, þar á meðal for­sæt­is­ráð­herr­ann, yngri en 35 ára. Þetta vakti athygli víða um heim. Í við­tölum við fjöl­miðla sagði for­sæt­is­ráð­herr­ann að vel gæti hugs­ast að þeim sem ekki þekki til finnskra stjórn­mála þyki það athygl­is­vert hve hlutur kvenna væri þar drjúgur ,,okkur þykir þetta hins­vegar sjálf­sagður hlutur“. Ráð­herr­ann nefndi að Finnland hefði verið fyrsta landið í Evrópu þar sem konur fengu kosn­inga­rétt, það var árið 1906. Og nú eru konur 47 pró­sent þing­manna á finnska þing­inu.

Kjósa einstaklinga

Anne Hollie, pró­fessor í stjórn­mála­fræði við háskól­ann í Helsinki, sagði í við­tali að ein ástæða þess hve margar konur sitji á finnska þing­inu sé kosn­inga­fyr­ir­komu­lagið sem sé öðru­vísi en víða ann­ars staðar. Í Finn­landi merkir kjós­andi við þann ein­stak­ling sem hann styður, og þá jafn­framt til­tek­inn flokk.

[adspot]

Tarja Cronberg, fyrr­ver­andi þing­maður og ráð­herra, sagði í við­tali við danska dag­blaðið Information að móðir sín hefði ætíð lagt mikla áherslu á að konur ættu að kjósa konur. ,,Þegar ég var barn skildi ég þetta ekki en síðar átt­aði ég mig á því að þetta væri lík­lega þyngsta lóðið á jafn­rétt­is­vog­ar­skál­inni.“

Ekki allir jafn hrifnir

Þótt margir Finnar séu stoltir af hlut kvenna í stjórn­málum deila ekki allir þeim við­horfum. Skömmu eftir að Sanna Marin tók við emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra hædd­ist Mart Helme inn­an­rík­is­ráð­herra Eist­lands að finnsku rík­is­stjórn­inni í útvarps­við­tali. Sagði að í stjórn­inni væri kassadama, götu­mót­mæl­endur og ómenntað lið. Fleiri orð í svip­uðum dúr lét eist­neski inn­an­rík­is­ráð­herr­ann, sem er íhalds­samur þjóð­ern­is­sinni, falla um finnsku stjórn­ina. Ummælin vöktu mikla athygli og Kersti Kalju­laid for­seti Eist­lands hringdi sam­stundis í Sauli Niinistö for­seta Finn­lands. Í sím­tal­inu baðst hún afsök­unar á ummælum inn­an­rík­is­ráð­herr­ans. Finnska stjórnin greindi frá afsök­un­ar­beiðn­inni í frétta­til­kynn­ingu. Eist­neski for­sæt­is­ráð­herr­ann sagði jafn­framt frá því í fjöl­miðlum að stjórn sín mæti finnska for­sæt­is­ráð­herr­ann og finnsku stjórn­ina mik­ils. Mart Helme sagði síðar að ummæli sín hefðu verið mistúlkuð.

Sanna Marin birti færslu á Twitter vegna umæla Mart Helme. Þar sagð­ist hún vera stolt af Finn­landi. ,,Hér getur barn úr fátækri fjöl­skyldu fengið menntun og látið drauma sína ræt­ast. Jafnvel kassadama getur orðið for­sæt­is­ráð­herra.“ Hún vís­aði þarna til þess að sjálf ólst hún upp við kröpp kjör og vann sem ung­lingur við afgreiðslu­störf í stór­verslun.

Þess má geta að Mart Helme var knú­inn til afsagnar í nóv­em­ber á síð­asta ári. Þá hafði hann haldið því fram að nið­ur­stöður for­seta­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum hefðu verið fals­aðar.

Snemma á síð­asta ári þegar kór­óna­veiran var fyrir alvöru farin að láta á sér kræla sagði Mart Helme að venju­legt kvef hefði skyndi­lega fengið nýtt nafn, væri nú kallað kór­óna­veira. Hann mælti með að fólk bæri gæsafitu á bring­una, klædd­ist hlýjum sokkum og yrði sér úti um hitakrem og mak­aði á kropp­inn. Þá hyrfi þetta kvef innan fárra daga.

Rannsóknin sem breyttist

Fyrir nokkrum dögum birtu finnskir fjöl­miðlar nið­ur­stöðu sér­stakrar rann­sóknar sem unnin var að beiðni rík­is­stjórnar Finn­lands, þeirrar sem sat á undan núver­andi rík­is­stjórn. Rann­sókn­inni var ætlað að kom­ast að því hvort eitt­hvað væri hæft í því að Rússar reyndu með skipu­legum hætti að blanda sér í finnsk inn­an­rík­is­mál, á net­miðl­inum Twitter. Finnska rík­is­stjórnin fékk stofnun á vegum NATO, til að ann­ast rann­sókn­ina. Nokkuð dróst að vinna við rann­sókn­ina hæf­ist og í milli­tíð­inni höfðu orðið stjórn­ar­skipti í Finn­landi. Skemmst er frá því að segja að rann­sóknin leiddi ekki í ljós umtals­verð afskipti Rússa. En það var annað sem vakti sér­staka athygli rann­sókn­ar­hóps­ins og hann ákvað að beina sjónum að.

Níð, háð, spott og klúryrði

Þetta sem vakti svo mikla athygli rann­sókn­ar­hóps­ins voru ummæli og athuga­semdir um konur sem sitja á finnska þing­inu, og ráð­herrana. Rann­sókn­ar­hóp­ur­inn skoð­aði mörg hund­ruð þús­und ummæli og nið­ur­stöð­urnar voru slá­andi, eins og sagði í skýrsl­unni. Stór hluti athuga­semd­anna ein­kenn­ist af ókvæð­is­orðum, upp­nefnum, hót­unum og hat­urs­fullum yfir­lýs­ingum. Stórum hluta þess­ara ummæla var beint að finnska for­sæt­is­ráð­herr­anum, hún var til dæmis kölluð hóra, tík, gála, búð­ar­stúlka, föð­ur­leys­ingi (móðir ráð­herr­ans hefur búið með annarri konu) og fleira í sama dúr. Rík­is­stjórnin kölluð tampax-gengið, sokka­buxna­stjórnin, tíkur með vara­lit og fleira af svip­uðu tagi. Þótt karl­arnir í rík­is­stjórn­inni og á þing­inu fái líka athuga­semdir eru þær marg­falt færri og ekki jafn harð­orðar. Rolf Fredheim, einn stjórn­enda rann­sókn­ar­hóps­ins sagði að hópnum hefði blöskrað að sjá orð­bragðið á net­inu ,,við fengum eig­in­lega hálf­gert áfall. Mest kom á óvart hve hat­urs­full, rætin, klúr og bein­línis dóna­leg ummælin í garð kvenna reynd­ust vera“. Ummæli um klæða­burð kvenn­anna voru mörg og oft­ast nei­kvæð, hins­vegar lítt eða ekki gerðar athuga­semdir um klæða­burð karla.

Tilraun til að þagga niður í konum

Skýrslan frá NATO StratCom, eins og rann­sókn­ar­stofn­unin heitir, hefur vakið tals­verða athygli í Finn­landi. Maria Ohisalo inn­an­rík­is­ráð­herra sagði í við­tali við finnska sjón­varpið að niðr­andi ummæli um konur væru aðferð til að þagga niður í þeim. ,,Þegar rökin þrýtur er gripið til níðs og háðs.“ For­sæt­is­ráð­herr­ann skrif­aði á Twitter og nefndi þar ýmis orð sem um hana hafa verið látin falla í netheimum. Það fer vel á að enda þennan pistil á loka­orðum finnska for­sæt­is­ráð­herr­ans í pistli hennar á Twitter: ,,Já, konur eru í for­ystu í stjórn­inni. Get over it.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár