Myndi kosta ríkissjóð 168 milljarða á ári að gera lágmarkslaun skattfrjáls

Fjár­mála­ráð­herra segir að rík­is­sjóður myndi verða af tekjum sem sam­svara 85 pró­sent af öllum tekju­skatts­stofn­inum ef 350 þús­und króna mán­að­ar­tekjur yrðu gerðar skatt­frjálsar.

Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Rík­is­sjóður myndi verða af 168,3 millj­örðum króna á hverju ári ef per­sónu­af­slátt­ur­inn yrði hækk­aður svo að 350 þús­und króna mán­að­ar­tekjur væru skatt­frjálsar. Hækkun fjár­magnstekju­skatts upp í 25% myndi hins vegar aðeins auka tekjur rík­is­sjóðs um 2,9 millj­arða króna. Þetta kemur fram í nýbirtu svari Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra við fyr­ir­spurn frá Lilju Rafneyju Magn­ús­dóttur, þing­konu VG.

Lilja spurði hvaða áhrif það hefði á rík­is­sjóð miðað við núgild­andi tekju­skatts­hlut­föll að hækka per­sónu­af­slátt svo að mán­að­ar­tekjur á bil­inu 250 til 350 þús­und yrðu skatt­frjálsar. Í svari ráð­herra kom fram að áhrif þess á rík­is­sjóð væru tvenns konar, ann­ars vegar myndi hærri per­sónu­af­sláttur leiða til minni tekna af tekju­skatti, en hins vegar hefur það áhrif til hækk­unar á upp­gjöri rík­is­sjóðs við sveit­ar­fé­lög vegna nýt­ingar per­sónu­af­sláttar til greiðslu útsvars. Engin óbein áhrif á rík­is­sjóð, líkt og auknar virð­is­auka­skatt­tekjur vegna auk­innar neyslu voru þó metin í svar­inu við fyr­ir­spurn­inni.

Samkvæmt Bjarna þyrfti per­sónu­af­sláttur að vera 78 þús­und krónur á mán­uði til þess að mán­að­ar­tekjur að 250 þús­und krónum yrðu skatt­frjálsar. Slík hækkun myndi kosta rík­is­sjóð um 88 millj­arða kórna, sem sam­varar um 45% af álagn­ingu tekju­skatts á ein­stak­linga í fyrra.

Til þess að mán­að­ar­tekjur að 350 þús­und krónum, sem er nálægt lág­marks­launum, verði skatt­frjálsar þyrfti per­sónu­af­slátt­ur­inn hins vegar að vera 110 þús­und krónur á mán­uði. Heild­ar­tekju­tap rík­is­sjóðs af því er metið á 168,3 millj­arða, en það sam­svarar 85 pró­sentum af tekju­skatts­stofn­inum.

Lilja spurði einnig hvaða áhrif það hefði á rík­is­sjóð að hækka fjár­magnstekjsu­skatt, sem er núna í 22 pró­sentum, upp í 23-25 pró­sent. Samkvæmt Bjarna myndi slík hækkun auka tekjur rík­is­sjóðs um 1 til 2,9 millj­arða króna, eða sem svarar til um 4 til 12 pró­sent af heild­ar­skatt­inum í álagn­ingu síð­asta árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár