Hækkun sjávarborðs við strendur Íslands gæti numið einum metra

Sjáv­ar­stöðu­hækkun í heim­inum er meiri en fyrri spár IPCC gerðu ráð fyrir og mun hækkun sjáv­ar­borðs halda áfram með örari hætti á næstu árum. Hækkandi sjávarmál er og mun verða djúpstæð áskorun fyrir stjórnvöld og samfélagið allt.

Hækkun sjáv­ar­stöðu í heim­inum er meiri en eldri spár IPCC, milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál, gerðu ráð fyrir. Sjáv­ar­borð heims­haf­anna fer hækk­andi með hverju ári og mun verða örari með árunum komi ekki til umfangs­mik­illa aðgerða umfram það sem nú er gert. Hækkun sjáv­ar­borðs við Íslands­strendur út 21. öld­ina gæti numið einum metra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu IPCC.

Hlýnun á norðurskautssvæðinu tvöfalt hraðari

Sérstök skýrsla IPCC um áhrif lofts­lags­breyt­inga á hafið og freð­hvolfið sem unnin var að beiðni ríkis­stjórna aðild­ar­þjóða Sam­ein­uðu þjóð­anna var birt í dag. Í sam­an­tekt og þýð­ingu Veð­ur­stofu Íslands á skýrsl­unni kemur fram að hlýnun á norð­ur­skauts­svæð­inu hefur verið meira en tvöfalt hrað­ari en að með­al­tali á jörðinni á síðustu tveimur áratugum.

[links]Þessa miklu hlýnun má að hluta rekja til samdráttar hafíss og snjóþekju á sama tíma en í skýrsl­unni kemur fram að sam­anlögð árleg rýrnun hinna stóru jökul­breiða Græn­lands og Suð­ur­skauts­lands­ins fer vax­andi. Massatap þeirra árin 2012 til 2016 var líklega meira en á árunum 2002 til 2011 og marg­falt á við massatap áranna 1992 til 2001.

Þá hækk­aði sjávarmál að jafn­aði um 3,6 mm á ári á tímabil­inu 2005 til 2015 og er sú hækkun 2,5 sinnum meiri en á árabil­inu 1901 til 1990, er hækk­unin mæld­ist að jafn­aði 1,4 mm á ári. Þetta er meira en IPCC mat árið 2013 í þeim sviðs­myndum þar sem mikið hlýnar en ástæða þess er að lík­urnar á hraða rýrnunar íss á Suð­ur­skauts­land­inu hefur hækkað.[adspot]

Enn fremur er spáð í skýrsl­unni að sjávar­stöðubreyt­ingar munu halda áfram á næstu öldum og gætu orðið nokkrir senti­metrar á ári og skilað margra metra hækkun sjávar­stöðu til lang­frama.

Í skýrslu vísinda­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar sem kom út árið 2018 kemur fram að haldi for­sendur um álíka mikla bráðnun jökul­breiða Græn­lands og Suð­ur­skauts­lands­ins verður hækkun sjávar við Íslands­strendur innan við helm­ingur hnatt­rænni með­al­hækkun. Landsig og land­ris munu einnig hafa áhrif. Að teknu til­liti til óvissu getur hækkun hér við land út 21. öldina nálgast einn metra þar sem hún verður mest.

Hafið tekur upp 20 til 30 prósent af kolefnislosun

Í skýrslu IPCC kemur fram að vist­kerfi í sjónum sé undir álagi vegna hækk­andi sjáv­ar­stöðu en einnig vegna hlýnunar sjávar, auk­inna sjávar­hita­bylgna, súrnunar sjávar og minnk­andi sem og óhag­stæðra áhrifa frá margvíslegri starf­semi manns­ins á sjó og á landi.

Hafið hefur tekið upp 20 til 30 pró­sent af því kolefni sem losað hefur verið síðan á 9. áratugi síðustu aldar og við það hefur sjórinn súrnað. Á þessu tímabili hefur sýrustig yfir­borðs­sjávar úthaf­anna lækkað um 0.17 til 0.27 pH gildi á hverjum áratug. Vegna þessa er súrnunin nú þegar meiri en vænta má vegna náttúrulegs breyti­leika, að því er fram kemur í skýrsl­unni.

Breytingarnar þegar byrjaðar að hafa áhrif á samfélög manna á norðurslóðum

Áhrif loft­lags­breyt­inga á vist­kerfi norð­urslóða gætir nú þegar sam­kvæmt nið­ur­stöðum skýrsl­unnar. Þar á meðal hafa breyt­ingar af völdum hlýn­unar orðið á útbreiðslu og stofn­stærðum fiski­stofna. Sú breyt­ing hefur þegar haft áhrif á stjórnun veiða úr mik­il­vægum stofnum og á efna­hags­legan ávinn­ing veið­anna.

Auk þess hefur dregið hefur úr fram­leiðni í landbúnaði á sumum svæðum þar sem leys­ing­ar­vatn hefur minnkað, sérstak­lega þar sem annað álag af völdum lofts­lags­breyt­inga eða félags­legra þátta hefur auk­ist. Í skýrsl­unni eru nefnd vest­an­verð Bandaríki Norður-Ameríku og háfjalla­svæði í Asíu og svæði nærri mið­baug jarðar í Andesfjöllum sem dæmi um þetta.

Með auk­inni hlýnun haf­svæða á þess­ari öld mun til­færsla í útbreiðslu teg­unda í átt til pólsvæða aukast til muna sem mun hafa áhrif á upp­bygg­ingu vist­kerfa og fram­leiðni lífríkis­ins. Jafn­framt er gert ráð fyrir að breyt­ing­arnar dragi úr líffræði­legum fjölbreyti­leika þegar fram í sækir og að teg­undir deyi út á líffræði­lega ein­stökum svæðum.

Þá munu breyt­inga einnig gæta í rennsli vatns­falla og á háfjalla­svæðum muni fjalla­hlíðar verða óstöðugri vegna hörfunar jökla og þiðn­unar sífrera. Jaðarlón framan við jökla munu stækka og slíkum lónum mun fjölga. Samkvæmt skýrsl­unni má í kjöl­farið vænta fleiri nátt­úru­ham­fara, þar á meðal afkasta­flóða, flóð í ám, aukin áhætta vegna sjáv­ar­flóða á lág­væðum og skriðu­föll. Þá er talið senni­legt að snjó­flóðum fækki og að þau muni ekki ná jafn­langt frá fjalls­hlíð og áður. Aftur á móti muni krapa­flóðum og votum snjó­flóðum fjölga, jafn­vel að vetri til.

Í skýrsl­unni segir að þessar breyt­ingar á nátt­ur­unni muni hafa áhrif á inn­viði sam­fé­laga, mat­væla­ör­yggi, ferða­mennsku, aðstæður til útivistar og skil­yrði til búsetu á norð­ur­skauts­svæð­inu. Tekið er hins vegar fram í skýrsl­unni að afleið­ing­arnar komi fram með mis­mun­andi hætti fyrir mis­mun­andi sam­fé­lög og þjóð­fé­lags­hópa.

Hækkandi sjávarmál djúpstæð áskorun

Nið­ur­stöður þess­arar skýrslu eru í sam­ræmi við nið­ur­stöður skýrslu IPCC um leiðir til að halda hlýnun undir 1.5 gráðum og skýrslu milliríkja­nefndar um líffræði­legan fjölbreyti­leika og vist­kerfi. Í skýrsl­unni er ítrekað að metn­að­ar­fullar og sam­hæfðar aðgerðir séu nauð­syn­legar til að draga úr lofts­lags­breyt­ingum og afleið­ingum þeirra á hafið og freð­hvolfið og á líf sem þeim er háð.

Í skýrsl­unni er tekið fram að ýmsir möguleikar séu til­tækir til þess að varð­veita þau vist­kerfi sem tengj­ast hafi og freð­hvolfi og tryggja að virkni þeirra rask­ist ekki. Þar á meðal sé verndun, end­ur­heimt og vist­fræði­leg stýring end­urnýjan­legra náttúruauð­linda. Auk þess þurfi að draga úr mengun og álagi. 

Þá þurfi aðgerðir stjórn­valda jafn­framt að tryggja sjálfbæra þróun samfélaga og gera þau í stakk búin til að aðlag­ast afleið­ingum lofts­lags­breyt­inga. Þar á meðal þá djúp­stæðu áskorun sem stranda­sam­fé­lög standa frammi fyrir vegna hækk­andi sjáv­ar­stöðu og aftaka­flóða af hennar völdum.

Skýrslu­höf­undar leggja áherslu á að stjórn­völd mennti fólk um áhrif manna á lofts­lagið og áhrifum lofts­lags á samfélög. Auk þess þurfi að setja fjár­muni í eft­ir­lit og í aðlögun sam­fé­laga fyrir það sem koma skal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár