Minnast fyrsta jökulsins sem hvarf vegna loftslagsbreytinga

Andri Snær Magnason, ásamt hópi vís­inda­manna, mun afhjúpa minn­ing­ar­skjöld um Okjökul í ágúst. Skjöld­ur­inn er hugs­aður sem áminn­ing og ákall um aðgerðir gegn lofts­lags­breyt­ingum en Okjökull var afskráður sem jök­ull árið 2014.

Andri Snær Magnason
Andri Snær Magnason Mynd: Birgir Þór Harðarson

Minnst verður jök­uls­ins Ok með afhjúpun minn­ing­ar­skjaldar þar sem jökul­inn var í Borg­ar­firði þann 18. ágúst næst­kom­andi. Okjökull var afskráður sem jök­ull árið 2014 en talið er að hann sé fyrsti jökul­inn til að hverfa vegna lofts­lags­breyt­inga. Minn­ing­ar­skjöld­ur­inn er því hugs­aður sem áminn­ing um lofts­lags­breyt­ingar og er stíl­aður á fram­tíð­ina. Andri Snær Magnason, rit­höf­undur, var feng­inn til að semja text­ann á skild­inum:

„Ok er fyrsti nafn­kunni jök­ull­inn til að missa titil sinn. Á næstu 200 árum er talið að allir jöklar lands­ins fari sömu leið. Þetta minn­is­merkið er til vitnis um að við vitum hvað er ger­ast og hvað þarf að gera. Aðeins þú veist hvort við gerðum eitt­hvað.“ 

Telja að allir jöklar á Íslandi munu hverfa á næstu 200 árum

[links]Okjökull var um 15 ferkílómetrar um aldamótin 1900 en hafði rýrnað í um 4 ferkílómetra einni öld síðar. Árið 2012 var hann kom­inn niður í 0,7 ferkílómetra og árið 2014 var hann afskráður sem jökull þar eð aðeins voru eftir þunnir, sund­ur­lausir ísflákar þar sem jökull stóð forðum.

Á síðustu árum hafa margir íslenskir smájöklar látið á sjá, eða jafn­vel horfið. Lofts­lags­spár gera ráð fyrir að veð­ur­far á Íslandi hlýni um um það bil 2 gráð­ur á yfir­stand­andi öld og að jafn­vel hlýni enn meira á næstu öld þar á eft­ir. Í ljósi þess telja jökla­fræð­ingar að allir jöklar á Íslandi gætu verið horfnir eftir 150 til 200 ár.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Rice háskól­anum í Texas segir að rann­sak­endur frá háskól­anum, ásamt Odd Sig­urðs­syni, jökla­fræð­ing, og Andra Snæ Magna­syni munu afhjúpa minn­ing­ar­skjöld­inn þann 18. ágúst næst­kom­andi í Borg­ar­firði.[adspot] 

Fjallað var um Okjökul í heim­ilda­mynd­inni „Not Ok“ sem fram­leidd var af Cymene Howe og Dominic Boyer, mann­fræð­ingum frá Rice háskóla. Jón Gnarr tal­setti mynd­ina en mynd­inni fjall­aði um rýrnun jök­uls­ins og áhrif lofts­lags­breyt­inga.

Howe og Boyer standa einnig að gerð minn­ing­ar­skjald­ar­ins en í til­kynn­ing­unni segir að þeir hafi viljað skapa minn­is­varða um lít­inn jök­ull sem hafði stóra sögu að segja. „Þetta verður fyrsti minn­is­varð­inn um jök­ull sem hverfur vegna loft­lags­breyt­inga í heim­inum. Með því að minn­ast jök­uls­ins von­umst við til þess að vekja athygli á rýrnun jökla. Jöklar eru mesta ferskvatns­forða­búr jarðar og frosið inn í þeim eru sögur af and­rúms­loft­inu. Enn fremur eru jöklar oft mik­il­væg menn­ing­ar­tákn,“ segir Howe.

Howe bendir jafn­framt á að minn­is­varðar séu ekki fyrir hina látnu heldur fyrir hina lif­andi. „Með þessu minn­is­merki viljum við leggja áherslu á að það er undir okkur komið að bregð­ast við hraðri rýrnun jökla og áfram­hald­andi áhrifum lofts­lags­breyt­inga í sam­ein­ingu. Fyrir Okjökull er það nú þegar of seint en jök­ull­inn er nú orðin það sem vís­inda­menn kalla „dauður ís“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár