Prestar fá allt að auka mánuð greiddan gegnum fastan rekstrarkostnað

Prestar fá árlega fasta upp­hæð greidda til rekst­urs emb­ætta þeirra. Á árunum 2013 til 2017 greiddi þjóð­kirkjan prestum tæp­lega 620 millj­ónir króna í rekstr­ar­kostnað vegna prests­emb­ætta. Greiðsl­urnar bæt­ast við laun presta sem ákvörðuð voru af kjara­ráði.

Prestar fá árlega fasta upp­hæð greidda til rekst­urs emb­ætta þeirra. Á árunum 2013 til 2017 greiddi þjóð­kirkjan prestum tæp­lega 620 millj­ónir króna í rekstr­ar­kostnað vegna prests­emb­ætta. Inni­falið í þeim kostn­aði er að stærstum hluta akst­urs­kostn­aður en einnig fata­pen­ingur, póst­kostn­aður, síma­kostn­aður og skrif­stofu­kostn­aður. Greiðsl­urnar bæt­ast við laun presta sem ákvörðuð voru af kjara­ráði. Frá þessu er greint í Frétta­blað­inuí dag.

Ríkisframlagið til þjóðkirkjunnar jókst um 19 prósent í fyrra

[links]Í fjár­auka­lögum sem sam­þykkt voru í lok síð­asta árs var fjár­heim­ild til trú­mála hækkuð um 820 millj­ónir króna. Það er til við­bótar við þá tæpu 4,6 millj­arða sem þegar hafði verið ráð­stafað til þjóð­kirkj­unnar í fjár­lögum. Þá er ekki með­­­talið rúm­­­lega 1,1 millj­­­arðs króna fram­lag til kirkju­­­garða. Þetta auka fjár­fram­lag hækk­aði rík­is­fram­lagið til Þjóð­kirkj­unnar um tæp 19 pró­sent.

Fram­lagið til þjóð­kirkj­unnar er vegna hins svo­kall­aða kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags milli ríkis og kirkju sem gert var 10. jan­úar 1997. Í því var samið um að kirkjan léti af hendi kirkju­jarðir að frá­töldum prests­setrum og að and­virði seldra kirkju­jarða rynni í rík­is­sjóð. Á móti myndi rík­is­sjóður greiða laun bisk­ups Íslands, vígslu­bisk­upa, 138 starf­andi presta og pró­fasta kirkj­unnar og 18 starfs­manna Bisk­ups­stofu, annan rekstr­ar­kostnað prests­emb­ætta og Bisk­ups­stofu, náms­leyfi, fæð­ing­ar­or­lof, veik­indi o.fl.

Til við­bótar skyldi ríkið greiða árlegt fram­lag í Kristni­sjóð sem svar­aði til 15 fastra árs­launa presta. Ef það fækk­aði eða fjölg­aði í þjóð­kirkj­unni skyldi fram­lag rík­is­ins lækka eða hækka eftir til­teknum við­miðum en þó aldrei niður fyrir til­tek­inn fjölda starfa. Þá skyldu laun og launa­tengd gjöld fyrr­greindra starfs­manna þjóð­kirkj­unnar vera sam­kvæmt úrskurðum kjara­ráðs. 

317 milljónir í aksturskostnað

Á árunum 2013 til 2017 greiddi Þjóð­kirkjan prestum tæp­lega 620 millj­ónir króna í rekstr­ar­kostnað vegna prests­emb­ætta. Þetta kemur fram í svari Guð­mundar Þórs Guð­munds­sonar, skjala­stjóra Bisk­ups­stofu, við fyr­ir­spurn Frétta­blaðs­ins um starfs­kostnað presta.

Greiðslur rekstr­ar­kostn­aðar til presta eiga sér stoð í lögum um emb­ætt­is­kostnað og auka­verk þeirra frá 1936. Þar segir að þjón­andi prestar og pró­fastar skuli fá greiddan rekstr­ar­kostnað emb­ætta sinna frá Bisk­ups­stofu sam­kvæmt reglum sem kirkju­þing setur. Í starfs­regl­unum er kveðið á um að skrif­stofu­kostn­aður prests­emb­ætta sé á bil­inu 252 til 294 þús­und krónur árlega en greiðsl­urnar eru mis­háar eftir fjölda íbúa í sókn. Þá greið­ast að auki 154 þús­und krónur árlega í síma-, póst- og fata­kostnað. Mestur kostn­aður fer þó í akst­ur­s­pen­inga en árin 2013 til 2017 voru greiddar rúmar 317 millj­ónir í akst­ur­s­pen­inga

Rekstarkostnaður bætist við launakostnað

Samkvæmt regl­unum eiga prestar rétt á að fá greiddan árlegan akst­urs- og ferða­kostnað. Sú upp­hæð fer eftir land­fræði­legri stað­setn­ingu og víð­feðmi sóknar. Svo dæmi séu tekin fá sér­þjón­ustu- og hér­aðs­prestar til að mynda 250 þús­und krónur á ári í akst­urs­kostnað og sókn­ar­prestar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, sem starfa einir með fleiri en eina sókn, fá 380 þús­und. Prestar erlendis fá síðan 600 þús­und krónur og prestar í víð­feðmum presta­köllum fá 850 þús­und.

Presti er einnig heim­ilt að sækja um und­an­þágu frá föstum mán­að­ar­legum akst­urs­greiðslum og fá þess í stað akstur greiddan sam­kvæmt akst­urs­dag­bók. En sam­kvæmt umfjöllun Frétta­blaðs­ins geta þær greiðslur aldrei orðið hærri en hámarks­greiðslur þær sem fyrr var getið.

Enn fremur er í gildi gjald­skrá fyrir auka­verk presta á borð við skírnir, ferm­ingar, hjóna­vígslur og útfarir. Þar greið­ast til að mynda rúmar 19 þús­und krónur fyrir ferm­ingu og tæp 25 þús­und fyrir útfarir. Skírnir eru ókeypis sé þeirra beiðst við guðs­þjón­ustu. Prestar geta þá inn­heimt ferða­kostnað sam­kvæmt almennu akst­ur­gjaldi rík­is­starfs­manna vegna akst­urs í tengslum við skírn eða hjóna­vígslu.

Greiðslur fyrir rekstur emb­ætt­is­ins bæt­ast við laun presta og pró­fasta sem ákveðin voru af kjara­ráði. Þau eru á bil­inu 768 þús­und til rúmrar millj­ónar eftir fjölda sókn­ar­barna og hvort um prest eða pró­fast er að ræða. Sam­an­lagt getur því árleg greiðsla vegna rekst­ar­kostn­aðar sam­svarað þrett­ánda mán­uð­inum í launum hjá prestum.

Samningaviðræður milli ríkis og kirkju standa yfir

Í frum­varpi til fjár­auka­laga segir að í kjöl­far banka­hruns­ins hafi orðið for­sendu­brestur í rík­is­fjár­málum og til að bregð­ast við því var óhjá­kvæmi­legt að gera umtals­verðar aðhalds­kröfur í rekstr­ar­út­gjöldum allra rík­is­stofn­ana og rekstr­ar­að­ila sem fjár­magn­aðir eru úr rík­is­sjóði. Í til­felli þjóð­kirkj­unnar var um sam­bæri­legar aðhalds­kröfur að ræða og gerðar voru í öðrum almennum rekstri hjá rík­inu. Í fjár­auka­lögum 2015, 2016,2017 og 2018 voru til­lögur sam­þykktar um auka fjár­veitn­ingu undir þeim for­merkjum að við­ræður mundu hefj­ast við kirkj­una um end­ur­skoðun kirkju­jarða­sam­komu­lags­ins.

Samn­inga­við­ræður við kirkj­una um end­ur­skoðun kirkju­jarð­ar­sam­komu­lags­ins standa nú yfir og er stefnt að því að þeim ljúki á fyrri hluta árs 2019. End­ur­skoð­unin felur í sér end­ur­skoðun allra fjár­hags­legra sam­skipta ríkis og kirkju, þar með talið sókn­ar­gjöld, jöfn­un­ar­sjóð sókna, fram­lög til kirkju­mála­sjóðs og Krist­ins­sjóðs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

trúmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár