Samstarfsmiðlar Assange segja ákæru Bandaríkjastjórnar setja „hættulegt fordæmi“

Það er kom­inn tími á að Banda­ríkja­stjórn hætti að elt­ast við Julian Assange fyrir að birta leynd­ar­mál, segja rit­stjórar og útgef­endur New York Times, Guardian, Der Spiegel, Le Monde og El País, í opnu bréfi til stjórn­valda í Banda­ríkj­unum.

Fleiri en útgefendur helstu fjölmiðla Vesturlanda lýsa yfir stuðningi við Assange. Í gær áttu fulltrúar WikiLeaks, þeirra á meðal ritstjórinn Kristinn Hrafnsson, fund með Lula Brasilíuforseta um mál hans.
Fleiri en útgef­endur helstu fjöl­miðla Vest­ur­landa lýsa yfir stuðn­ingi við Assange. Í gær áttu full­trúar WikiLeaks, þeirra á meðal rit­stjór­inn Kristinn Hrafns­son, fund með Lula Bras­il­íu­for­seta um mál hans. Mynd: Claudio Kbéne/Af Twitter-síðu Brasilíuforseta.

Útgef­endur og rit­stjórar fimm af stærstu fjöl­miðlum hins vest­ræna heims, banda­ríska blaðs­ins New York Times, breska blaðs­ins Guardian, franska blaðs­ins Le Monde, þýska blaðs­ins Der Spiegel og spænska blaðs­ins El País, hvetja nú banda­rísk stjórn­völd til þess að falla frá ákærum á hendur stofn­anda WikiLeaks, Julian Assange.

Þetta kemur fram í opnu bréfi sem for­svars­menn fjöl­miðl­anna fimm skrif­uðu Banda­ríkja­stjórn í gær, en þar segir að ákæran á hendur Assange setji „hættu­legt for­dæmi“ sem gæti haft kæl­ing­ar­á­hrif á umfjöllun um þjóðar­ör­ygg­is­mál.

Í bréf­inu frá miðl­unum segir að að það að kom­ast yfir og greina frá við­kvæmum upp­lýs­ingum þegar það er nauð­syn­legt í almanna­þágu sé kjarn­inn í dag­legu starfi blaða­manna. „Ef sú vinna er gerð glæp­sam­leg, veikir það opin­bera umræðu og lýð­ræðin okkar veru­lega,“ segir í bréfi miðl­anna.

Öll þessi fimm fjöl­miðla­fyr­ir­tæki sem nú skora á Biden-stjórn­ina um að falla frá ákær­unum störf­uðu með Assange á árunum 2010 og 2011, en WikiLeaks komst yfir ýmis gögn frá banda­rísku utan­rík­is­þjón­ust­unni og hernum og lét hefð­bundnum fjöl­miðlum þau í té. Fréttir voru sagðir af þeim leynd­ar­málum sem finna mátti í gögn­unum um allan heim.

[adspot]

Í bréf­inu frá útgef­endum fjöl­miðl­anna fimm segir að árið 2011 hafi for­svars­menn þess­ara sömu miðla gagn­rýnt Assange fyrir að birta gögnin órit­skoðuð á WikiLeaks og að einnig hafi sumir útgef­endur í hópnum áhyggjur af ásök­unum á hendur Assange um að hann hafi reynt að hjálpa til við tölvu­inn­brot í lok­aðan gagna­grunn. „En nú erum við sam­einuð í því að lýsa yfir þungum áhyggjum af áfram­hald­andi sak­sókn á hendur Julian Assange fyrir að kom­ast yfir og birta trún­að­ar­gögn,“ segir í bréf­inu.

Þar er þess getið að Banda­ríkja­stjórn undir for­ystu Barack Obama hafi tekið þann pól í hæð­ina að ef ákæra ætti Assange þyrftu stjórn­völd einnig að ákæra blaða­menn hefð­bund­inna fjöl­miðla sem fjöll­uðu um inni­hald gagn­anna. Undir stjórn Donald Trump hefði afstaðan hins vegar breyst, og njósn­a­lög­gjöf frá 1917 sem hönnuð var til að taka á njósnum í fyrri heims­styrj­öld, verið notuð til að ákæra Assange, fyrstan fjöl­miðla­manna.

„Þessi ákæra setur hættu­legt for­dæmi og gæti grafið undan tján­ing­ar­frels­is­á­kvæði stjórn­ar­skrár Banda­ríkj­anna og frelsi fjöl­miðla,“ segir í bréfi útgef­end­anna, sem segja að núna tólf árum eftir fjöl­miðlar í sam­starfi við WikiLeaks birtu Cable gate upp­ljóstr­an­irnar sé kom­inn tími á að Banda­ríkja­stjórn hætti að elt­ast við Julian Assange fyrir að birta leynd­ar­mál.

Assange, sem var hand­tek­inn í Bret­landi árið 2019, hefur verið að berj­ast gegn fram­sali til Banda­ríkj­anna síðan þá. Alls hafa banda­rísk yfir­völd lagt fram ákæru á hendur honum í átján liðum, sem gætu leitt til þess að hann yrði dæmdur í alls 175 ára fang­elsi. Lög­fræð­ingar Banda­ríkja­stjórnar hafa þó sagt, fyrir dómi í Bret­landi, að lík­leg nið­ur­staða í máli Assange yrði 4-6 ára fang­elsi.

Teymi frá WikiLeaks fundar með þjóðarleiðtogum í Suður-Ameríku

Íslenski fjöl­miðla­mað­ur­inn Kristinn Hrafns­son er í dag rit­stjóri WikiLeaks. Hann er nú á ferð um Suður-Ameríku ásamt fleirum frá WikiLeaks og hefur til þessa átt fundi með tveimur for­setum ríkja álf­unnar um mál Julian Assange.

Í gær­kvöldi fund­aði Kristinn með nýkjörnum for­seta Brasilíu, Luiz Inácio Lula da Silva, og segir frá því í færslu á Facebook að honum hafi þótt sér­stak­lega vænt um fund­inn þar sem Lula sé að fara í gegnum gríð­ar­lega erfið valda­skipti, þar sem rífa þurfi stjórn­ar­taumana af Bol­son­aro.

„Við áttum gott spjall á löngum einka­fundi um mál­efni Julian Assange og þær póli­tísku ofsóknir sem bein­ast gegn honum og WikiLeaks. Lula hefur sjálfur þurft að þola slíkar ofsóknir og fang­elsun og er póli­tísk upp­risa hans sögu­leg með kosn­inga­sigri fyrir tæpum mán­uði. Þessi hlýi og þægi­legi maður hét áfram­hald­andi stuðn­ingi við þá bar­áttu að hrinda ógn við fjöl­miðla­fresli i heim­inum sem ofsókn­inar gegn Julian fela í sér,“ skrifar Kristinn.

„Brasilía, stærsta og öfl­ug­asta ríki Suður Ameríku er að senda afdrátt­ar­laus skila­boð til Biden stjórn­ar­innar. Það hefur Gustavo Petro for­seti Kólumbíu þegar gert með skýrum hætti,“ segir Kristinn, sem fund­aði með Kól­umbíu­for­seta á dög­unum og segir heim­sóknir til fleiri landa framundan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Assange

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár