Vill kaupa álverið í Straumsvík

Ind­verskur fjár­festir hefur keypt álstarf­semi Rio Tinto í Frakk­landi. Hefur áhuga á álver­inu í Straums­vík og við Kyrra­hafið líka. Verð­mið­inn sagður hærri en tveir millj­arðar doll­ara.

Rio Tinto hefur selt álver sitt í Dunkirk í Frakk­landi til manns að nafni Sanjeev Gupta. Gupta hefur að sögn Financial Times sýnt áhuga á að kaupa einnig álver fyr­ir­tæk­is­ins í Straums­vík sem og álstarf­semi þess við Kyrra­hafið fyrir meira en tvo millj­arða doll­ara.

Fréttir bár­ust af því í sept­em­ber síð­ast­liðnum að Rio Tinto hefði áform um að selja starf­semi sína í Straums­vík í Hafn­ar­firði. Rannveig Rist for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins sagði afkom­una hafa verið slaka en þó farið batn­andi með hækk­andi álverði. Þó hafi helsta ástæða fyrir mögu­legri sölu fyr­ir­tæk­is­ins verið sú að fram­leiðslan í Straums­vík sé sér­tæk og ólík annarri fram­leiðslu Rio Tinto auk þess sem fjar­lægð frá öðrum fyr­ir­tækjum álris­ans sé mikil.

Gupta hefur sam­kvæmt frétt Financial Times verið umsvifa­mik­ill í við­skiptum og byggt upp stórt iðn­að­ar­veldi sem rekur allt frá virkj­unum til fram­leiðslu­fyr­ir­tækja á sviði bíla­vara­hluta. Hann hefur keypt tölu­vert af iðn­að­ar­fyr­ir­tækjum í vanda á und­an­förnum árum og var kall­aður „Man of Steel“ í heim­ild­ar­mynd BBC um við­skipta­sögu hans. Hann hefur að sögn þá sýn að end­ur­byggja iðnað í Bret­landi á end­ur­vinnslu málma og með því að nýta end­ur­vinn­an­lega orku.

Verðið fyrir söl­una á álver­inu í Dunkirk liggur ekki fyrir en Gupta keypti starf­semi Rio Tinto í Skotlandi árið 2016 sem var mun minni í sniðum fyrir 410 millj­ónir doll­ara. Búast má við að verð­mið­inn verði hærri að þessu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár