840. spurningaþraut: Þemaþraut um gamlar höfuðborgir

Nú skal spurt um gamlar höf­uð­borgir ýmissa ríkja.

Fyrri auka­spurn­ing:

Þessi mynd er frá fornri höf­uð­borg í ríki einu, ekki all­fjarri oss. Hvað heitir ríkið það?

***

Aðal­spurn­ingar:

1. Rio de Janeiro var höf­uð­borg í hvaða landi?

2. Kon­stant­ínópel var lengi höf­uð­borg í tveimur miklum og lang­lífum ríkjum. Hvaða ríki voru það? Hafa þarf bæði rétt.

3. Bonn hét höf­uð­borgin í ríki sem ævin­lega var kallað ... hvað?

4.  Marra­kesj var einu sinni höf­uð­borg í ákveðnu ríki. Hvaða ríki?

5.  Þeba var fyrir ansi löngu höf­uð­borg í ... hvaða landi?

6.  Lagos er risa­stór borg, eða öllu heldur sam­safn borga, sem var til 1976 höf­uð­borg ... hvar?

7.  Frá 538 til 525 fyrir Krist, þá var Súsa höf­uð­borg í ... hvaða ríki?

8.  Karatsí var höf­uð­borg í landi einu til 1959 þegar höf­uð­borgin var flutt til Rawalindi en var svo flutt þaðan til enn einnar borgar árið 1967. Hvaða land er þetta?

9.  Saigon var til árs­ins 1975 höf­uð­borg í ríki einu sem kallað var ... hvað?

10.  Vichy var í nokkur miss­eri á 20. öld höf­uð­borg í ... ja, í eða á hverju?

***

Seinni auka­spurn­ing:

Þessi mynd var tekin í borg sem var tölu­vert fram á 20. öld höf­uð­borg í ... hvaða ríki?

***

Svör við aðal­spurn­ingum:

1.  Brasilíu.

2.  Róm­verska ríkið (gef rétt líka fyrir „aust­ur­róm­verska ríkið“ eða Býsans, þótt ríkið hafi alls ekki heitið það) og síðan Tyrkja­veldi Ottómana. (Það er mis­skiln­ingur ef ein­hver telur að Tyrkir hafi strax rokið til og skírt borg­ina Istanbul þegar þeir náðu henni á 15. öld. Það gerð­ist ekki form­lega fyrr en 1930.)

3.  Vestur-Þýska­land.

4.  Marokkó.

5.  Egifta­landi.

6.  Nígeríu.

7.  Persa­veldi.

8.  Pakistan.

9.  Suður Víetnam.

10.  Hluta Frakk­lands í síð­ari heims­styrj­öld.

***

Svör við auka­spurn­ingum:

Efri myndin er tekin í Bergen sem einu sinni var höf­uð­borg Noregs.

Neðri myndin er tekin í St. Pét­urs­borg sem einu sinni var höf­uð­borg Rúss­lands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár