Íslendingar hafa greitt 12,4 milljarða af séreignarsparnaði inn á húsnæðislán

Mikið vantar upp á ef áætlun stjórn­valda um að lands­menn borgi 50 millj­arða af sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn á hús­næð­is­lán gangi eftir.

Íslend­ingar hafa sam­tals greitt sér­eign­ar­sparnað upp á 12,4 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lán sín á árunum 2014 og 2015 sem hluta af leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu. Ríkið og sveit­ar­fé­lög hafa veitt þeim hópi sem þetta hefur gert sam­tals 5,1 millj­arð króna í skatt­afslátt. Þetta kemur fram í svari Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Guðlaugs Þórs Þórð­ar­sonar þing­manns um skatt­frjálsa útgreiðslu sér­eigna­sparn­aðar.

Stjórn­völd vita ekki nákvæm­lega hversu margir eru að nýta sér úrræðið en sam­kvæmt grófu mati á fjölda­tölum sótt­ust um 35 þús­und manns eftir því. Hluti umsókn­anna eru þó ekki virkar.

Ef það fjölgar ekki hratt í hópi þeirra sem nýta sér úrræðið á næst­unni þá mun það verða fjarri því að skila þeim 70 millj­örðum króna í nið­ur­greiðslu á hús­næð­is­lánum sem kynntir voru í leið­rétt­ing­ar­kynn­ingum stjórn­valda.

Heildaráhrif aðgerða áttu að vera 150 milljarðar

Þegar leið­rétt­ingin, nið­ur­færsla rík­is­stjórn­ar­innar á verð­tryggðum hús­næð­is­lánum þeirra sem voru með slík árin 2008 og 2009, var kynnt undir lok árs 2013 var einnig greint frá því að hluti hennar myndi snú­ast um skatt­frelsi sér­eign­ar­sparn­aðar við inn­greiðslu á höf­uð­stól hús­næð­is­lána. Samtals áttu heild­ar­á­hrif aðgerð­anna að vera 150 millj­arðar króna. Þ.e. 80 millj­arðar króna í beinar höf­uð­stólslækk­anir og 70 millj­arðar króna vegna sér­eigna­sparn­aðar sem not­aður yrði til að greiða niður höf­uð­stól.

Kostn­aður íslenska rík­is­ins vegna sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ar­innar átti að vera um 20 millj­arða króna. Þ.e. ríkið ætl­aði að gefa eftir skatt sem ann­ars hefði verið lagður á útgreiðslu sér­eigna­sparn­aðar upp á þá upp­hæð gegn því að sér­eignin yrði notuð í að borga niður hús­næð­is­lán. Því var búist við að Íslend­ingar með hús­næð­is­lán og sér­eign­ar­sparnað myndu ráð­stafa um 50 millj­örðum króna af sparn­aði sínum inn á lánin á tíma­bil­inu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017, en heim­ild til að ráð­stafa sér­eign­ar­sparn­aði tekur til þess tíma­bils.

Lægri upphæðir en reiknað var með

Samkvæmt svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra virð­ast færri hafa not­fært sér sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ina en áætl­anir stjórn­valda gerðu ráð fyrir. Þegar tíma­bilið sem leiðin er heimil er tæp­lega hálfnað hafa Íslend­ingar notað 12,4 millj­arða króna af sér­eigna­sparn­aði sínum til að greiða inn á hús­næð­is­lán. Til að þau við­mið sem ríkið not­aði í kynn­ingum sínum á leið­rétt­ing­unni, þar sem sér­eign­ar­hluti aðgerða stjórn­valda var met­inn á 70 millj­arða króna, gangi eftir munu Íslend­ingar þurfa að greiða 37,6 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði inn á hús­næð­is­lán sín fram á mitt ár 2017, eða rúm­lega þre­falda þá upp­hæð sem þeir hafa þegar greitt inn á hús­næð­is­lánin.

Samtals hafa ríki og sveit­ar­fé­lög veitt 5,1 millj­arða króna í skatta­af­slátt vegna þessa. Miðað við kynn­ingu á leið­rétt­ing­unni átti heild­ar­um­fang þess afsláttar að vera 20 millj­arðar króna á tíma­bil­inu 1. júlí 2014 til 30. júní 2017.

Þá hafa sára­fáir nýtt sér sér­eign­ar­sparn­að­ar­leið­ina sem útborgun vegna hús­næð­is­kaupa. Samtals höfðu 482 aðilar nýtt sér þá leið í sept­em­ber og nemur heild­ar­fjár­hæðin 98 millj­ónum króna. Reikn­aður skatt­afsláttur vegna hennar nemur um 40 millj­ónum króna.

Í svari fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra segir að nákvæmar fjölda­tölur um þátt­töku í úrræðum um greiðslu sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán liggi því miður ekki fyrir eins og er vegna ónógra merk­inga í kerf­inu. Unnið sé að því að lag­færa það. „Gróflegt mat á fjölda­tölum um ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán er um 35.000. Umsókn­irnar eru þó ekki allar virkar, bæði er nokkuð um að umsækj­endur hafi hætt við en einnig er nokkuð um að umsóknum hafi verið synjað, t.d. vegna þess að lánið sem sótt er um að greiða inn á upp­fyllir ekki skil­yrði lag­anna“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár