Lengja frest í samkeppni um nýja mynd á Sjávarútvegshúsið

Áður prýddi stærð­ar­innar mynd af sjó­manni aust­ur­vegg húss­ins, við Skúla­götu 4, en málað var yfir vegg­inn sem er nú skjanna­hvítur síð­sum­ars 2017. Ráðu­neytið vill fá fleiri umsækj­endur í keppn­ina.

Sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið hefur fram­lengt frest til að skila inn til­lögum um nýtt lista­verk á Sjáv­ar­út­vegs­húsið. Skila­frest­ur­inn er nú til 1. febr­úar.

Áður prýddi stærð­ar­innar mynd af sjó­manni aust­ur­vegg húss­ins, við Skúla­götu 4, en málað var yfir vegg­inn sem er nú skjanna­hvítur síð­sum­ars 2017.

[links]Þórir Hrafns­son upp­lýs­inga­full­trúi atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins segir í sam­tali við Kjarnann að tölu­vert af umsóknum hafi borist, en ráðu­neytið vilji fá fleiri. Síðan verk­efnið var kynnt hafi farið fram þing­kosn­ingar og jóla­há­tíð og því ekki ólík­legt að það hafi farið fyrir ofan garð og neðan hjá ein­hverjum. Hann segir engan vegg í Norður Evrópu hafa fengið aðra eins umfjöllun. „Þetta er stóra tæki­færið fyrir lista­mann sem vill láta verkið sitt sjást,“ segir Þórir.

Mál­verkið var sett á húsið haustið 2015 á vegum Iceland Airwaves-tón­list­ar­há­tíð­ar­innar og Urban National Berlin, þar sem nokkrir lista­menn fengu frelsi til sköp­unar á hinum ýmsu bygg­ingum borg­ar­innar. Hópurinn Evoca1 mál­aði sjó­mann­inn.

[adspot]Hjör­leifur Gutt­orms­son fyrr­ver­andi ráð­herra var sagður einn helsti and­stæð­ingur mynd­ar­innar, en hann býr í nágrenni húss­ins.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir þáver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra efndi til sam­keppni um nýja mynd á vegg­inn en sam­kvæmt til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu skal verk­efnið hafa skírskotun í sögu sjáv­ar­út­vegs á Íslandi. Höfundum er frjálst að velja þá efn­is­út­færslu sem þeir telja henta hug­mynd sinni best, en verkið skal hafa end­ingu í að minnsta kosti þrjú ár. Mik­il­vægt er að verkið taki til­lit til umhverf­is­ins, falli vel að svæð­inu og þoli íslenska veðr­áttu.

Ráðu­neytið mun standa straum af kostn­aði við gerð og upp­færslu verks­ins að hámarki 2 millj­ónir króna. Auk þess er verð­launafé 250 þús­und krónur sem er óháð fjár­hags­ramma verk­efn­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár