Í hvað fer lífeyrinn okkar?

Líf­eyr­is­sjóða­kerfið hefur stækkað hratt, í hlut­falli við árlega lands­fram­leiðslu Íslands.

Á til­tölu­lega skömmum tíma hefur líf­eyr­is­sjóða­kerfi lands­manna breyst mikið. Fyrir tæp­lega tutt­ugu árum var nán­ast ekk­ert af eignum líf­eyr­is­sjóð­anna geymt í eignum erlendis en miklar breyt­ingar urðu á ávöxt­un­ar­mark­aðnum í kjöl­far einka­væð­ingar bank­anna og líf­legri mark­aðar á Íslandi, og meiri teng­ingar við alþjóð­lega mark­aði.

Á tíu árum fór hlut­fall erlendra eigna líf­eyr­is­sjóð­anna úr 5 pró­sent í um 30 pró­sent. Auk þess sem líf­eyr­is­sjóða­kerfið stækk­aði úr um 60 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu í um 140 pró­sent um þessar mundir.

Vöxtur í erlendum eignum

Hlutfall erlendra eigna er nú um 22 pró­sent, og eins og starfs­hópur stjórn­valda bendir á í skýrslu sinni um fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna erlendis, þá er enn tölu­vert svig­rúm í lögum fyrir frek­ari fjár­fest­ingar. Það sem helst þarf að var­ast í þeim efnum er að geng­is­stöð­ug­leiki hverfi ekki á Íslandi með til­heyr­andi rús­sí­ban­areið fyrir hag­kerfið. Því leggur starfs­hóp­ur­inn til að fjár­fest­ingar verði jafnar og nokkuð fyr­ir­sjá­an­legar erlendis.

En í hverju er líf­eyrir Íslend­inga geymdur, miðað stöðu mála eins og hún var í lok árs í fyrra?

Í skýrslu fyrr­nefnds starfs­hóps sést hvernig skipt­ingin er í grófum dráttum, en að baki líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu standa á þriðja tug líf­eyr­is­sjóða.

Eiga miklar skuldir

1. Um 993 millj­arðar króna liggja í skráðum hluta­bréfum. Á Íslandi eru það félög sem skráð eru í kaup­höll Íslands. Stærstu félögin á mark­aðnum eru Marel, Össur og Icelandair, en líf­eyr­is­sjóðir eru eig­endur að minnsta kosti 40 til 50 pró­sent alls hluta­fjár á mark­aðnum í heild, en sautján félög eru skráð á mark­aðnum.

Mark­aðsvirði allra skráðra félaga er nú rúm­lega þús­und millj­arðar á íslandi, eins og mál standa nú, en til við­bótar við skráð íslensk hluta­bré eiga sjóð­irnir einnig eignir í skráðum erlendum félögum.

Oft er þessi eign í gegnum fjár­fest­inga­sjóði en sam­tals voru um 595 millj­arðar króna í gegnum hlut­deild­ar­skír­teini í sjóðum.

2. Stærstur hluti eigna líf­eyr­is­sjóð­anna er í mark­aðs­skulda­bréfum, eða 2.390 millj­arðar króna. Þetta eru meðal ann­ars skulda­bréf Íbúða­lána­sjóðs, rík­is­skulda­bréf, oft verð­tryggð.

3. Lán til sjóð­fé­laga hafa farið vax­andi að und­an­förnu, enda bjóða líf­eyr­is­sjóðir nú betri lána­kjör heldur en við­skipta­bank­arnir. Samtals námu lán til sjóð­fé­laga 237 millj­örðum króna í lok árs í fyrra.

Inn­lendar eignir voru 2.750 millj­arðar en erlendar eignir 764 millj­arðar. Samtals námu eign­irnar því 3.514 millj­örðum eða sem nam um 145 pró­sent af árlegri lands­fram­leiðslu miðað við stöð­una eins og hún var um síð­ustu ára­mót.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár