Vinsældir til að byrja með tryggja ekki endilega langlífi ríkisstjórna

Sú rík­is­stjórn sem tók við völdum fyrr í þessum mán­uði mælist með prýði­legan stuðn­ing. Ef frá er talin sú stjórn sem sprakk í sept­em­ber 2017, og var sú óvin­sælasta á lýð­veld­is­tím­anum, þá er slíkur stuðn­ingur vani.

Ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur hefur hafið líf­tíma sinn með tölu­verðan byr í seglin. Í könnun MMR, sem birt var í vik­unni, kom fram að 66,7 pró­sent þeirra sem tóku afstöðu styðja rík­is­stjórn­ina. Það eru umtals­vert fleiri en gætu hugsað sér að kjósa þá flokka sem standa að henni. Samtals mæld­ist fylgi þeirra 48,4 pró­sent, sem er tölu­vert frá nið­ur­stöðu þing­kosn­ing­anna þegar Sjálf­stæð­is­flokkur, Vinstri græn og Fram­sókn­ar­flokkur fengu sam­tals 52,9 pró­sent atkvæða.

Vert er að taka fram að könnun MMR var gerð áður en nið­ur­staða Hæsta­réttar Íslands í Lands­rétt­ar­mál­inu svo­kall­aða lá fyrir, en sam­kvæmt henni gerð­ist Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra brot­leg við ákvæði stjórn­sýslu­laga þegar hún breytti til­lögu hæf­is­nefndar um skipun 15 dóm­ara við nýtt milli­dóm­stig. For­sæt­is­ráð­herra hefur lýst því yfir að ekki verði farið fram á afsögn Sigríðar vegna þessa. Um er að ræða fyrsta stóra átaka­málið þar sem reynir á nýju rík­is­stjórn­ina.

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Katrínar er sögu­lega mjög svip­aður og stuðn­ingur við nýjar rík­is­stjórnir hefur verið. Hann er nán­ast sá sami og stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur var í byrjun (65 pró­sent) og aðeins meiri en stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar (59,9 pró­sent) í var sam­kvæmt fyrstu könnun eftir að hún tók við. Því fær rík­is­stjórn Katrínar þann titil að vera sú rík­is­stjórn eft­ir­hrunsár­anna sem byrjar með mestan stuðn­ing.

Þeim sem standa að rík­is­stjórn­inni er þó hollt að muna að báðar ofan­greindar rík­is­stjórnir end­uðu líf­tíma sinn með mun minna fylgi. Rík­is­stjórn Jöhönnu naut ein­ungis stuðn­ings 31,5 pró­sent kjós­enda þegar hún fór frá og þegar Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra var stuðn­ingur við þá stjórn ein­ungis 26 pró­sent. Hann bragg­að­ist lít­il­lega eftir að Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við for­sæt­is­ráðu­neyt­inu en end­aði samt sem áður í ein­ungis 35 pró­sentum þegar kosið var til þings haustið 2016. Og báðar þessar stjórnir kol­féllu í næstu kosn­ingum sem haldnar voru eftir að þær tóku við.

Rík­is­stjórn Katrínar á hins vegar langt í að ná stuðn­ingi eins og hans þekkt­ist á árunum fyrir hrun. Þegar rík­is­stjórn Geirs H. Haarde tók við sum­arið 2007 mæld­ist stuðn­ingur við hana 83 pró­sent. Sú rík­is­stjórn náði ekki að sitja hálft kjör­tíma­bil.

Mikill stuðningur fyrir hrun

MMR birtir ein­ungis tölur á heima­síðu sinni sem sýna stuðn­ing við rík­is­stjórnir aftur til þess þegar rík­is­stjórn Geirs H. Haarde sat að völdum. Gallup hefur hins vegar mælt stuðn­ing við rík­is­stjórnir mun lengur. Þótt aðferð­ar­fræði fyr­ir­tækj­anna tveggja sé ekki nákvæm­lega sú sama þá skeikar ekki miklu á nið­ur­stöðum þeirra þegar bæði hafa mælt stuðn­ing á svip­uðum tíma.

Gallup á mæl­ingar á stuðn­ingi ára­tugi aftur í tím­ann. Í gögnum fyr­ir­tæk­is­ins er til að mynda hægt að finna upp­lýs­ingar um að rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks, þar sem Davíð Oddsson var for­sæt­is­ráð­herra, hafi mælst með stuðn­ing um 74 pró­sent kjós­enda skömmu eftir Alþing­is­kosn­ing­arnar 1995. Fjórum árum síðar, þegar flokk­arnir tveir end­ur­nýj­uðu stjórn­ar­sam­starf sitt á ný undir for­sætis Davíðs, mæld­ist stuðn­ing­ur­inn aftur um 74 pró­sent.

Í þing­kosn­ing­unum 2003 tap­aði rík­is­stjórnin fjórum þing­mönnum og tæp­lega átta pró­sent af sam­eig­in­legu fylgi sínu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn héldu samt sem áður áfram sam­starfi sínu og stuðn­ingur við þá rík­is­stjórn mæld­ist 61 pró­sent í fyrstu mæl­ingu eftir að hún tók við.

Fjórum árum síðar tók hins vegar nýtt fólk við kefl­inu og ann­ars konar sam­starf varð til. Ingi­björg Sólrún Gísla­dóttir og Geir H. Haarde leiddu turn­anna tvo í íslenskum stjórn­málum, Sam­fylk­ingu og Sjálf­stæð­is­flokk, saman í sterka rík­is­stjórn. Árið var 2007 og góð­ærið stóð sem hæst. Smjör virt­ist drjúpa af hverju strái og íslensk fjár­mála­starf­semi virt­ist vera í slíkum blóma að fram undan væri stans­laus efna­hags­vöxtur. Stuðn­ingur við hana mæld­ist for­dæma­laust mik­ill í júní 2007, mán­uði eftir að hún tók við völdum. Alls sögð­ust 83 pró­sent aðspurðra styðja rík­is­stjórn­ina.

Vinstri stjórnin byrjaði í meðbyr

Næsta rík­is­stjórn, sem leidd var af Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, tók við völdum við ansi breyttar aðstæður. Banka­kerfi lands­ins hafði hrunið og gjald­mið­ill­inn með. Þúsundir starfa höfðu horfið, lífs­gæði lands­manna höfðu dreg­ist stór­kost­lega saman og raun­veru­leg óvissa var uppi um hvort að Ísland gæti staðið við skuld­bind­ingar sínar eða ekki. Áður óþekkt mót­mæli, hin svo­kallað bús­á­hald­ar­bylt­ing, hafði leitt til þess að Sam­fylk­ingin og Vinstri græn mynd­uðu minni­hluta­stjórn með stuðn­ingi Fram­sókn­ar­flokks sem sat í nokkra mán­uði fram að kosn­ingum. Þegar minni­hluta­stjórnin tók við mæld­ist stuðn­ingur við hana 65 pró­sent. Eftir kosn­ing­arnar í apríl 2009 mæld­ist hann 61 pró­sent.

Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar tók svo við völdum vorið 2013. Í fyrstu stuðn­ings­mæl­ingu Gallup mæld­ist stuðn­ingur við hana 62,4 pró­sent.

Stuðn­ings­kann­anir MMR voru ekki langt frá því sem fram kom í könn­unum Gallup. Þar mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn Jóhönnu 56,1 pró­sent í fyrstu mæl­ingu og stuðn­ingur við rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs 59,9 pró­sent þegar hann var fyrst mældur í byrjun júní 2013.

Ríkisstjórn Geirs H. Haarde naut fordæmalaus stuðnings þegar hún tók við. Sú ríkisstjórn náði ekki að sitja hálft kjörtímabil.
Rík­is­stjórn Geirs H. Haarde naut for­dæma­laus stuðn­ings þegar hún tók við. Sú rík­is­stjórn náði ekki að sitja hálft kjör­tíma­bil.

Því hafa allar rík­is­stjórnir síð­ustu rúm­lega 20 ára byrjað sinn feril með því að vera með stuðn­ing tæp­lega 60 pró­sent þjóð­ar­innar hið minnsta og allar höfðu þær skýran meiri­hluta­stuðn­ing að baki sér. Þ.e. þar til að ný rík­is­stjórn tók við völdum í jan­úar 2017.

Sú óvinsælasta

Sú rík­is­stjórn var undir for­sæti Bjarna Bene­dikts­sonar. Að henni stóðu Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð. Hún hafði minni­hluta atkvæða á bak­við sig og minnsta mögu­lega meiri­hluta á þingi. Sú stjórn var mynduð eftir að búið var að reyna nán­ast öll önnur stjórn­ar­mynstur í rúm­lega tveggja mán­aða langri grunnri stjórn­ar­kreppu. Og sú rík­is­stjórn hóf setu sínu með vind­inn í fangið.

Fyrsta könnun MMR sem var birt eftir að rík­is­stjórn Bjarna tók við sýndi að ein­ungis 35 pró­sent kjós­enda studdi hana. Það var sama hlut­fall og studdi rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks í síð­ustu könnun sem MMR gerði fyrir kosn­ing­arnar í októ­ber 2016. Rík­is­stjórn sem hafði gengið í gengum for­dæma­laus hneyksl­is­mál, afsögn for­sæt­is­ráð­herra og log­andi inn­an­flokks­deilur innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Rík­is­stjórn sem kol­féll í þeim kosn­ingum og tap­aði níu þing­mönnum.

Raunar hafði engin rík­is­stjórn kom­ist nærri því að mæl­ast með svona lít­inn stuðn­ing í sinni fyrstu mæl­ingu eftir að hafa tekið við síð­ast­liðin 20 ár hið minnsta.

Ástandið skán­aði heldur ekki þegar leið á kjör­tíma­bilið. Í síð­ustu könn­unum áður en hún sprakk var stuðn­ing­ur­inn sam­kvæmt könn­unum MMR komin niður fyrir 30 pró­sent. Og eftir að stjórn­ar­sam­starf­inu var slitið, en stjórnin sat áfram sem starfs­stjórn, náði rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar áður óþekktum lægðum í stuðn­ingi. Þann 11. októ­ber studdu ein­ungis 21,8 pró­sent þjóð­ar­innar hana. Það er lægra hlut­fall en studdi hrun­stjórn Geirs H. Haarde í jan­úar 2009 (24,2 pró­sent), færri en studdu vinstri­st­jórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur í miðju Icesave-mál­inu (22,8 pró­sent) og færri en studdu rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar í kjöl­far opin­ber­unar á Panama­skjöl­unum (26 pró­sent).

Þegar rík­is­stjórnin lét af störfum var hún sú óvin­sælasta sem starfað hefur, að minnsta kosti frá því að stuðn­ings­mæl­ingar hófust. Enda varð hún á end­anum skamm­lífasta meiri­hluta­stjórn lýð­veld­is­sög­unnar og sat í ein­ungis átta mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár