Mynd: EPA

Húsin sem jörðin gleypti

Jöklar, höf, ár og önnur nátt­úr­unnar öfl hafa í þús­undir ára mótað hið stór­kost­lega lands­lag Noregs. Fegurð stafar frá djúpum fjörðum í fjalla­sölum og skógi vöxnum holtum og hæðum en þar leyn­ist einnig hætta.

Til­hlökkun í loft­inu. Ákveðinn léttir líka. Kannski í bland við kvíða. Óvissu. Þetta ár hafði ekki verið neitt venju­legt. Öllu snúið á hvolf út af veiru­skömminni. En nú var þessu hörm­ung­ar­ári senn að ljúka og jákvæð teikn á lofti um að það sama gilti um far­ald­ur­inn.

Það er komin nótt. Sú næst síð­asta á árinu 2020. Árinu sem eng­inn á eftir að sakna. Sólin þegar farin að hækka á lofti og betri tíð næstum áþreif­an­leg.

Það hefur rignt mikið. Suma daga meira en aðra. En nú er snjó­föl yfir öllu.

Þau slökkva ljósin. Ganga til hvílu.

Þetta er í dæmi­gerðum norskum smábæ. Í rúm­lega fjöru­tíu kíló­metra fjar­lægð frá höf­uð­borg­inni. Þó að á þessum slóðum hafi verið byggð frá fornu fari var það ekki fyrr en alþjóða­flug­völl­ur­inn var fluttur út úr borg­inni að ný hverfi tóku að rísa. Íbúunum að fjölga. Atvinnu­lífið að blómstra. Loks árið 2012 var bær­inn skil­greindur sem þétt­býli, þá bjuggu þar 1.912 manns.

Klukkan slær fjögur að nóttu. Flestir í fasta­svefni. En á svip­stundu breyt­ist allt og einni mín­útu síðar fer sím­inn hjá neyð­ar­lín­unni að hringja. Á and­ar­taki verða allar línur rauð­gló­andi.

Það hefur eitt­hvað hræði­legt gerst í Ask.

Örvinglað fólk sagði hús horfin. Að önnur væru á hreyf­ingu. Einn sem hringir seg­ist liggja undir þak­plötum. Fastur.

Aðrir sögðu að það væri risa­stór hola í jörð­inni. Að tré væru horfin. Eða að þau hefðu skyndi­lega birst fyrir utan glugg­ann. Heilu skóg­ar­lund­irnir.

Starfs­menn neyð­ar­lín­unnar áttu fullt í fangi með að taka við öllum til­kynn­ing­unum sem hrönn­uð­ust inn. Þeir ein­beittu sér að því að upp­lýsa við­bragðs­að­ila um það sem hafði gerst. Að það væri engu lík­ara en að jörðin hefði gleypt íbúða­hverfi í Ask.

Það var enn nið­dimm nótt og það var ekki fyrr en að það birti að morgni að umfang ham­far­anna varð að fullu ljóst: Að í norska smá­bænum Ask blasti við gríð­ar­stórt sár í lands­lag­inu. Að þar sem eitt sinn stóðu fjór­býl­is­hús í röðum með afgirtum snyrti­legum görðum hefði opn­ast ógur­legur leðjupyttur. Að hús hefðu flust um allt að 400 metra. Möl­brotnað. Horfið.

Og fjölda manns var saknað.

Jarðfallið er um 700 metrar á lengd og 400 metrar á breidd. Hús með samtals 31 íbúð varð skriðunni að bráð.
Jarð­fallið er um 700 metrar á lengd og 400 metrar á breidd. Hús með sam­tals 31 íbúð varð skrið­unni að bráð.

Undir hús­unum í bænum Ask og víðar í sveit­ar­fé­lag­inu Gjerdrum leyn­ist saga svæð­is­ins í jarð­veg­inum. Þetta er forn sjáv­ar­botn. Leirinn sem þar er að finna er getur verið margra metra þykkur og bland­aður salti. Hann er óstöð­ugur og rign­ingar eða fram­kvæmdir geta orðið til þess að hann breyt­ist í kvikleir og fari af stað. Skriðan í Ask féll ekki úr fjalls­hlíð, eins og aur­skriður gera gjarnan, heldur verður með þeim hætti að jarð­veg­ur­inn hrein­lega fellur saman, gefur sig undan álagi og skríður fram.

Slíkar leir­skriður eru ekki óal­gengar í Noregi og hafa reyndar tekið tugi manns­lífa, yfir 150 tals­ins, frá því á miðri nítj­ándu öld. Þær hafa orðið í Ask og nágrenni, síð­ast í byrjun des­em­ber. Önnur hafði fallið árið 2007 og 1924 varð stór leir­skriða norðan við Ask en þó ekk­ert í lík­ingu við þá sem féll aðfara­nótt 30. des­em­ber síð­ast­lið­ins.

Það var því ekki þannig að hætta á skriðum væri ókunn í nýja íbúða­hverf­inu í Ask, hverfi sem reist var fyrir um fimmtán árum. Yfirvöld höfðu kannað svæðið á sínum tíma, vakið athygli á hætt­unni og gert kröfu um for­varnir áður en bygg­ing hvítu fjór­býl­is­hús­anna sem nú eru horfin myndi hefj­ast.

Enn er þriggja saknað eftir að skriðan féll.
Enn er þriggja saknað eftir að skriðan féll.

Norska Jarð­fræði­stofn­unin komst að þeirri nið­ur­stöðu árið 2005 að svæði í Ask væri eitt það hættu­leg­asta í land­inu með til­liti til leir­skriðu­falla af 26 svæðum sem stofn­unin hafði rann­sakað. Engu að síður var þar haf­ist handa við að byggja 2-300 íbúðir árið 2008. Í fréttum norskra og danskra fjöl­miðla hefur komið fram að norska vatns- og orku­stofn­unin (Vand- og Energi­di­rekt­orat) átti að end­ur­skoða hættu­matið sem gert var fyrir einum og hálfum ára­tug. Sú vinna var ekki hafin er skriðan féll en var á stefnu­skránni.

Jarð­fræði­stofn­unin (NGI) hefur birt allar skýrslur sínar sem gerðar hafa verið um svæðið. Aften­posten skrifar að í þeim komi þrjú lyk­il­at­riði fram: Að um hættu­svæði var að ræða, að ætl­ast hafi verið til að gripið yrði til örygg­is­ráð­staf­ana, fyr­ir­byggj­andi aðgerða, er ákveðið var að byggja þar en að ein­hverjar þeirra hafi ekki verið full­nægj­andi. Með sumum aðgerðum var mælt utan íbúða­svæð­is­ins, öðrum innan þess. Að loknum fram­kvæmdum átti svæðið að verða örugg­ara. Í hættu­mati frá árinu 2003 sagði að ef skriða myndi falla gæti það haft alvar­legar afleið­ingar. Að 5-50 manns gætu týnt lífi. Og að gríð­ar­legt eigna­tjón gæti auk þess orðið.

En einnig kemur fram að hluti þess svæðis sem nú skreið fram hafði árið 2015 verið sagt „óstöðugt“ (lav stabilitet). Sá sem reisti hverfið, og býr sjálfur í einu af húsum þess sem þurfti að rýma eftir skriðu­föllin, seg­ist hafa fylgt öllum reglum. Vegur var t.d. lagður um svæðið sem átti að gegna hlut­verki nokk­urs konar varn­ar­garðs. Þegar á reyndi dugði það ekki til.

For­stjóri Jarð­fræði­stofn­un­ar­innar vill ekki full­yrða að rekja megi skriðu­föllin til bygg­inga­fram­kvæmd­anna eða að ekki hafi verið nóg gert til að draga úr hættu á skriðum. Rannsaka þurfi málið ofan í kjöl­inn.

Þegar dagur reis í Ask að morgni 30. des­em­ber ríkti ringul­reið. Ekki var með fullu vitað hversu margra var saknað. Fyrst var talið að fjöld­inn væri 26. En það var ekki vitað hverjir höfðu verið heima, hvort að ein­hverjir hefðu bjarg­ast út úr hús­unum sem hurfu í hina 700 metra löngu og 300 metra breiðu gjá sem mynd­að­ist við skriðu­föllin.

Smám saman fækk­aði í hópi þeirra sem var saknað. 21. 18. 15. Og að lokum tíu. Þeirra á meðal ólétt kona og tveggja ára barn.

En sú skelfi­lega stað­reynd blasti við að leit og björgun yrði erfið. Svæðið umhverfis hol­una stóru var mjög ótryggt. Enn féllu litlar skriður. Hús sáust hverfa ofan í. Ekki var hægt að senda björg­un­ar­fólk í leðju­hafið á botni hennar. Það varð að leita úr lofti. Hífa fólk upp í þyrlu.

Þeir sem hófu björg­un­ar­starfið um nótt­ina unnu við lífs­hættu­legar aðstæður. Nágrannar, lög­reglu­menn og slökkvi­liðs­menn fóru um og björg­uðu tugum manna úr húsum sem voru á brún skrið­unnar. Slökkvi­liðs­mað­ur­inn Kenneth Wangen var einn þeirra. „Við brutum niður hurðir, öskr­uðum og æptum. Allir sem voru á staðnum í fyrstu reyndu allt hvað þeir gátu,“ segir hann í sam­tali við VG. „Og ásamt þyrl­unni þá tókst að bjarga mörgum manns­lífum.“

Lög­reglu­yf­ir­völd segja að enn sé leitað lífs. Sjö hafa fund­ist látnir. Þeirra á meðal Alma, tveggja ára og for­eldrar hennar, Bjørn-Ivar og Charlot Grymyr Jansen. Charlot var langt gengin með annað barn þeirra hjóna.

Kerti loga í nágrenni skriðusvæðisins í Ask.
Kerti loga í nágrenni skriðu­svæð­is­ins í Ask.

Þriggja er enn saknað. Tveggja barna móð­irin Rasa Lasin­ski­ene var úti að ganga með hund­inn sinn er ham­far­irnar urðu. Hún var að að tala við eig­in­mann sinn í sím­ann þegar sím­talið slitn­aði skyndi­lega.

Einnig er leitað mæðgn­anna Ann-Mari og Victoriu Emilie. Hús þeirra stóð við göt­una Nystulia og var númer 36. Það fór ofan í leðju­hafið.

Victoria er þrettán ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúruhamfarir

Mest lesið undanfarið ár