OECD vill að ríkið selja banka, létti á regluverki og setji á veggjöld

Lífskjör eru mikil á Íslandi og flestar breytur í efna­hags­lífi okkar eru jákvæðar. Hér ríkir jöfn­uður og hag­vöxtur sem sýni að það geti hald­ist í hendur. Ýmsar hættur eru þó til staðar og margt má laga. Þetta er mat OECD á íslensku efna­hags­lífi.

Alþjóða efna­hags- og fram­fara­stofn­unin OECD segir í nýrri skýrslu um íslensk efna­hags­mál að lífs­kjör og vel­ferð á Íslandi séu mikil og með því besta sem þekk­ist. Helstu efna­hags­legu ógnir sem landið standi frammi fyrir séu hart Brexit, frek­ari nið­ur­sveifla í ferða­þjón­ustu og brestur í veiðum.

Angel Gurría, fram­kvæmda­stjóri OECD, er staddur hér­lendis og kynnti skýrsl­una á frétta­manna­fundi í fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu síð­degis í dag.

OECD gagn­rýnir líka ýmis­legt í íslensku efna­hags­lífi. Stofn­unin segir að reglu­gerð­aum­gjörðin um það sé of ströng, að launa­hækk­anir ættu að fylgja fram­leiðni­vexti og að draga þurfi úr eign­ar­haldi rík­is­ins á bönkum með því að fram­fylgja þeim áætl­unum sem séu til staðar um einka­væð­ingu þeirra. Heimild er á fjár­lögum til að selja allt hlutafé í Íslands­banka og allt að 34 pró­sent hlut í Lands­bank­anum.

Lífskjör með þeim bestu

Skýrslan er ítar­leg, alls 121 blað­síða, en OECD gefur út slíkar rík­is­skýrslur á tveggja ára fresti. Síðasta skýrsla um Ísland var birt í júní 2017.

[adspot]Nið­ur­stöð­urnar núna eru að uppi­stöðu í takti við vænt­ingar. Þar er farið yfir að Íslandi hafi náð sér að fullu eftir fjár­mála­á­falli sem reið yfir landið haustið 2008. Efna­hagur lands­ins sé sterkur, hag­vöxtur hafi verið mik­ill und­an­farin ár, atvinnu­leysi lágt, verð­bólga lág og afgangur af rík­is­rekstr­inum árum saman. Lífskjör Íslend­inga séu með þeim bestu sem mæl­ast á meðal aðild­ar­ríkja OECD.

Fram undan sé hæg­ari vöxtur en á und­an­förnum árum, vegna gjald­þrots WOW air í lok mars og loðnu­brests. Samkvæmt skýrsl­unni eigi að búast við 0,2 pró­sent hag­vexti í ár og 2,2 pró­sent á næsta ári. Þessari þróun muni fylgja aukið atvinnu­leysi.

Flestar spár grein­ing­ar­að­ila hér­lendis hafa reiknað með sam­drætti á árinu 2019. Í nýj­ustu útgáfu Pen­inga­mála Seðla­banka Íslands er til að mynda búist við 0,2 pró­sent sam­drætti í ár. Ekki kemur fram í skýrslu OECD hvaðan tölur stofn­un­ar­innar um væntan hag­vöxt koma.

Jöfnuður og hagvöxtur geta farið saman

Í skýrsl­unni segir að á Íslandi sé lít­ill ójöfn­uður og að á Íslandi ríki meira jafn­ræði milli þegn­anna en í nær öllum öðrum löndum innan OECD. Hér sé atvinnu­þátt­taka mikil og að jöfn­uður launa sé einnig mik­ill. Þetta sé merki þess að jöfn­uður og sterkur hag­vöxtur geti farið saman.

Að mati OECD er vöxt­ur­inn á Íslandi grænn, sér­stak­lega vegna þess að hér sé fram­leidd sjálf­bær orka sem seld sé til not­enda. Á það er þó bent í skýrsl­unni að útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda sé að aukast hér­lendis.

[adspot]Þar er einnig greint frá því að það sé yfir­lýst mark­mið íslenskra stjórn­valda að Ísland verði kolefn­is­hlut­laust árið 2040.

Selja sig niður í bönkum

OECD finnur þó að ýmsu hér­lendis. Stofn­unin segir að reglu­gerð­ar­um­hverfið sé of íþyngj­andi og að það eigi vera meira í takt við þarfir lít­ils og opins efna­hags­kerfis. Of mikið reglu­verk dragi úr fram­leiðni og sam­keppn­is­hæfi inn­lendra fyr­ir­tækja.

Þá gætu bætti sam­skipti við verka­lýðs­fé­lög einnig hjálpað til við að auka sam­keppn­is­hæfni Íslands. Of oft eigi sér stað ein­hvers konar höfr­unga­hlaup í kjöl­far gerðar kjara­samn­inga. Þeim samn­ingum sem voru und­ir­rit­aðir í apríl, við um helm­ing íslensks vinnu­mark­aðar, er þó sér­stak­lega hrósað fyrir að tengja launa­þróun fram­tíð­ar­innar við hag­vöxt með beinum hætti.

Þá er það mat OECD að frammi­staða Íslands í mennta­málum sé veik, of marga náms­menn skorti sterka kjarna­færni þegar skóla­skyldu lýkur og að börn inn­flytj­enda sýni lak­ari nið­ur­stöðu en börn ann­arra. Stofn­unin mælir með að gæði kennslu verði aukin með fjár­fest­ingu og þróun í kennslu og að staða barna inn­flytj­enda verði bætt með því að bjóða upp á áhrifa­rík­ari tungu­mála­nám­skeið fyrir þau.

Fjármagna samgöngur með veggjöldum

OECD leggur einnig til að Ísland bæti það hvernig opin­beru fé er eytt. Ekki sé nægj­an­lega miklar kröfur gerðar á að því sé eytt með nyt­sam­legum hætti þótt að slíkar kröfur séu í orði til staðar í gerð fjár­laga­á­ætl­unar. Stofn­unin leggur til að eft­ir­lit með notkun fjár­muna verði hert í heil­brigðis- og mennta­málum sér­stak­lega, en þar er um að ræða tvo af fjár­frek­ustu mála­flokkum rík­is­rekst­urs­ins.

Lagt er til að Ísland auki fjár­fest­ingar í innviðum sam­gangna, orku­mála og fjar­skipta og að það verði ráð­ist í inn­heimtu veggjalda til að stýra eft­ir­spurn og fjár­magna fjár­fest­ingu í sam­göngu­fram­kvæmdum.

Þá leggur OECD til, í ljósi þess að fjöldi lands­manna sem eru á örorku hefur tvö­fald­ast á 20 árum, að örorku­líf­eyr­is­kerfið verði end­ur­skipu­lagt með það að leið­ar­ljósi að greiða fyrir end­ur­komu á vinnu­mark­að­inn. Samhliða eigi að þrengja skil­yrði fyrir töku örorku­líf­eyris og styðja fólk frekar til þess að halda áfram í vinnu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár