Fjöldi ungra kvenna sem ekki borðar kjöt margfaldast

Neyslu­venjur ungra kvenna hafa tekið stakka­skiptum á liðnum árum og borða nú sífellt fleiri konur á aldr­inu 18 til 24 ára ekki kjöt.

Sífellt fleiri ungar konur á aldr­inum 18 til 24 ára borða ekki kjöt hér á landi. Frá árinu 2007 hefur hlut­fall þeirra sem borðar aldrei kjöt marg­fald­ast en mesta aukn­ingin hefur átt sér síð­ustu tveimur árum. Þetta kemur fram í grein­ingu Gallup en sam­kvæmt grein­ing­unni þá eru fáar vís­bend­ingar um annað en áfram­hald­andi vöxt græn­met­is­fæðis hér á landi.

Fimmfalt fleiri hættar að borða nautakjöt

Í grein­ingu Gallups segir að neysla ungra íslenskra kvenna hafi tekið hvað mestum stakka­skiptum af öllum ald­urs­hópum hér á landi á und­an­förnum árum. Í nið­ur­stöðum neyslukönn­unar Gallups má að sjá að alls sögð­ust rúm 5 pró­sent kvenna aldrei borða svína­kjöt á árunum 2007 til 2009 en þetta hlut­fall nær þre­fald­að­ist á árunum 2016 til 2018. Að með­al­tali sögð­ust 14,3 pró­sent ungra kvenna ekki borða svína­kjöt ef litið er til síð­ustu þriggja ára.

Mun stærri breyt­ingar urðu þó á neyslu ungra kvenna á nauta­kjöti og lamba­kjöti þar sem hlut­fall þeirra sem aldrei borðar nauta­kjöt og lamba­kjöt 4 til 5 fald­að­ist ef borin eru saman með­al­töl áranna 2007 til 2009 og 2016 til 2018.

Að með­al­tali sögð­ust 16 pró­sent ungra kvenna ekki borða nauta­kjöt á árunum 2016 til 2018. 

Enn fleiri sögð­ust vera hættar að borða kjúkling þegar borin eru saman sömu tíma­bil. Á árunum 2007 til 2009 sögð­ust 0,9 pró­sent kvenna aldrei borða kjúkling en nokkrum árum síðar eða á árunum 2016 til 2018 sögð­ust 10,6 pró­sent aldrei borða kjúkling.[adspot]

Þeir sem neyta einskis kjöts enn lítið hlutfall af þjóðinni

Bæst hefur í hóp þeirra sem borða aldrei kjöt á síð­ustu árum en þó í mun minna mæli hjá ungum konum. Samkvæmt neyslukönn­unum Gallup þá hefur hlut­fall þeirra sem borða kjöt viku­lega eða oftar að mestu leyti staðið í stað en þeim sem borða aldrei kjöt fjölgað veru­lega.

Til að mynda var hlut­fall þeirra sem ekki borða svína­kjöt, 18 ára og eldri, að með­al­tali á árunum 2007 til 2009 3,8 pró­sent en jókst í 6,3 pró­sent að með­al­tali árin 2016-2018.

Í grein­ingu Gallups segir að enn sem komið sé þó aðeins lítið hlut­fall af þjóð­inni sem neytir einskis kjöts. Í könnun Gallup á vor­mán­uðum árs­ins 2019, þar sem spurt var hvort fólk væri á sér­stöku matar­æði eða kúr, kemur fram að tæp­lega 3 pró­sent lands­manna skil­greindi matar­æði sitt sem græn­met­is­fæði og til við­bótar skil­greindi 1 pró­sent­matar­æði sitt sem vegan.

Bendir fátt annað en til áframhaldandi vaxtar grænmetisfæðis

[links]Samkvæmt Gallup benda þó ofan­greindar tölur til áfram­hald­andi aukn­ingar á hlut­falli þeirra sem velja græn­met­is­fæði og hafa hætt að borða kjöt. Þá sér­stak­lega meðal ungra kvenna en einnig ann­arra hópa.

„Miðað við hratt hækk­andi hlut­fall þeirra sem neyta ekki kjöt­vara hér á landi og vax­andi áhuga á umhverf­is­málum finn­ast fáar vís­bend­ingar um annað en áfram­hald­andi vöxt græn­met­is­fæðis og verður til fram­tíðar áhuga­vert að sjá hvort mögu­legur vöxtur verði fyrst og fremst innan núver­andi mark­hóps eða hvort neyslu­hóp­ur­inn muni breikka, þannig að græn­met­is­fæði verði algeng­ara meðal karla og þeirra sem til­heyra eldri kyn­slóðum,“ segir í grein­ingu Gallups.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár