Stjórnarandstaða vill nýja nefnd um stöðu landsbyggðarfjölmiðla

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þrettán þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar vilja að Kristján Þór Júl­í­us­son, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, skipi starfs­hóp til að gera úttekt á starf­semi fjöl­miðla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og leiðir til að tryggja stöðu þeirra. Þing­menn­irnir, sem koma úr öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum, hafa lagt fram þings­á­lykt­un­ar­til­lögu þess efnis á Alþingi.

Samkvæmt til­lög­unni á starf­hóp­ur­inn að leggja fram til­lögur sem fela í sér aðferðir og leiðir til að efla og tryggja stöðu lands­byggð­ar­fjöl­miðla „þannig að þeir fái gegnt lýð­ræðis-, menn­ingar-, upp­lýs­inga- og fræðslu­hlut­verki sínu.“ Hópurinn eigi að skila skýrslu og til­lögum eigi síðar en 1. nóv­em­ber næst­kom­andi.

Í grein­ar­gerð með til­lög­unni kemur fram að það sé margra álit að fjöl­miðlar sem starf­ræktir eru utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins búi við erfið starfs­skil­yrði sem hamli því á ýmsan hátt að þeir geti rækt hlut­verk sitt eins og æski­legt væri. Því sé áríð­andi að afla hald­bærra upp­lýs­inga um stöðu lands­byggð­ar­fjöl­miðla og styrkja rekstr­ar­grund­völl þeirra þar sem þess sé þörf og for­sendur séu fyrir slíkum stuðn­ingi.

Þá er í grein­ar­gerð­inni fjallað um aðrar til­lögur sem komið hafi fram um stöðu fjöl­miðla utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, og um leiðir til þess að styrkja fjöl­miðla, meðal ann­ars opin­berar styrk­veit­ingar.

Nefnd þegar að störfum um stöðu fjölmiðla

Nú þegar er nefnd að störfum um svipuð mál, þótt sú nefnd fjalli ekki sér­stak­lega um stöðu lands­byggð­ar­fjöl­miðla. Illugi Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, skip­aði nefnd til að bæta rekstr­ar­um­hverfi einka­rek­inna fjöl­miðla í byrjun þessa árs. Nefndin á að gera athugun á stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla á Íslandi og er nú að störfum. Hún er að skoða ýmsar leiðir til þess að bæta stöðu einka­rek­inna fjöl­miðla, meðal ann­ars styrkja­fyr­ir­komu­lag.

Nefndin byggir á þings­á­lykt­un­ar­til­lögu sem Illugi lagði fram í októ­ber síð­ast­liðnum, sem ekki náð­ist að klára fyrir kosn­ingar. Í þeirri til­lögu kom fram að full­trúar einka­rek­inna fjöl­miðla hefðu vakið athygli stjórn­valda á erf­ið­leikum sem blasa við í rekstri þeirra og megi rekja til ýmissa utan­að­kom­andi aðstæðna. Meðal ann­ars megi telja til það að aug­lýs­inga­mark­að­ur­inn hér­lendis hafi ekki vaxið sem skyldi þrátt fyrir batn­andi efna­hag þjóð­ar­innar og auk þess fari ætið stærri hluti aug­lýs­inga­fjár til erlendra stór­fyr­ir­tækja á borð við Google og Face­book. Þá hafi staða Rík­is­út­varps­ins á aug­lýs­inga­mark­aði einnig tak­­mark­andi áhrif á mögu­leika ann­arra fjöl­miðla til að afla aug­lýs­inga­tekna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár