Fjárhagslegur ávinningur er af sameiginlegum lyfjainnkaupum

Svandís Svav­ars­dóttir segir að það bæði rík­is­sjóður og not­endur lyfja muni njóta góðs af sam­starfi við hin Danmörk og Noreg um inn­kaup á lyfjum. Innkaup verði hag­stæð­ari og öryggi í afhend­ingu meira.

„Ef ég skrúfa vænt­ing­arnar upp þá getur hún skilað umtals­verðum fjár­hags­legum árangri fyrir ríkið.“

Þetta segir Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra um sam­starf Íslands, Dan­merkur og Noregs á sviði lyfja­mála sem stað­fest var með und­ir­ritun sam­komu­lags í Reykja­vík í apríl. Hún segir að ávinn­ing­ur­inn verði bæði fyrir not­endur lyfja og skatt­greið­endur. Innkaup verði hag­stæð­ari og þar af leið­andi verði minni hluta af fjár­magni rík­is­sjóðs í lyf en öryggi í lyfjainn­kaupum muni einnig aukast vegna sam­taka­mátt­ar­ins sem fæst með sam­starf­inu.

Svandís var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar, rit­stjóra Kjarnans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neðan.

Svandís benti á að í fyrra hafi kostn­aður hins opin­bera vegna inn­kaupa á svoköll­uðu S-lyfjum, sem eru sjúkra­hús­lyf, verið 7,5 millj­arðar króna. Á þessu ári er áætlað að hann veðri tíu millj­arðar króna. Hún segir það ekki flókið reikn­ings­dæmi að ef útgjöld halda áfram að aukast á slíkum hraða þá muni ganga mjög hratt á aðra þætti heil­brigð­is­þjón­ust­unnar og alls opin­bera kerf­is­ins. „ Við verðum að reyna að stilla saman strengi til þess að ná þessu og þetta var veru­legur áfangi. Það hefur verið að þessu keppt í mörg herr­ans ár.“

[adspot]Byrjað verður smátt með inn­kaup á mjög dýrum lyfjum en vonir standi til þess að hægt verði að landa stærri samn­ingum þegar fram líða stundir.

Aðspurð hvort að þetta sam­starf muni leiða til þess að milli­liðir milli hins opin­bera sem kaup­anda lyfja, og fram­leið­enda þeirra sem selj­anda, verði ein­fald­lega snið­gengnir í fram­tíð­inni og keypt yrði beint frá fram­leið­anda, segir Svandís að það gæti orðið hluti af lausn­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

lyfjamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár