Íslendingar með fjórðu hröðustu breiðbandstengingu í heimi

Ísland kemur vel út í alþjóð­legum sam­an­burði þegar hraði breið­bandsteng­ingar er skoð­aður, sam­kvæmt nýjum lista SpeedTest.

Breiðbandstengingin er hröð á Íslandi.
Breið­bandsteng­ingin er hröð á Íslandi. Mynd: Pexels

Nett­teng­ing með breið­bandi var sú fjórða hrað­asta í heimi á Íslandi í júlí, en hún var ein­ungis hrað­ari í Singapúr, Suður-Kóreu og Hong Kong. Þetta kemur fram í nýbirtum lista SpeedTest.

Fyrir þremur dögum síðan til­kynnti SpeedTest heims­listana sinn þar sem löndum er raðað eftir hraða netteng­ingar þeirra, ann­ars vegar með breið­bandi og hins vegar í gegnum síma. Þetta er í fyrsta skiptið sem fyr­ir­tækið birtir slíkan lista á alþjóða­vísu, en sam­kvæmt til­kynn­ingu munu þeir birt­ast mán­að­ar­lega héðan í frá.

Listinn tekur saman próf­anir allra not­enda SpeedTest og aðgreinir þær eftir tíma og löndum. Samkvæmt fyr­ir­tæk­inu nær fjöldi próf­ana hund­ruðum millj­óna, en úr næst góð mynd af með­al­hraða netteng­ingar þegar allar próf­anir eru safn­aðar saman.

Heims­listi Speedtest nær til yfir 190 landa, en til þess að telj­ast með á honum þurfa lönd að hafa meira en 3.333 próf­anir frá meira ein 670 ein­stökum not­endum á hverjum mán­uði.

Í fjórða sæti

Ísland kemur vel út í alþjóð­legum sam­an­burði þegar litið er á teng­ingu með breið­bandi í júlí, en sam­kvæmt list­anum var með­al­hraði nið­ur­hals hér á landi sá fjórði hæsti í heim­inum, 110,52 mega­bitar á sek­úndu. Hraðasta breið­bandsteng­ingin var í Singapúr, en þar náði með­al­hrað­inn 154,38 mega­bitum á sek­úndu. Í öðru og þriðja sæti voru svo Suður-Kórea með 125,69 mega­bita á sek­úndu og Hong Kong með 117,21 mega­bita á sek­úndu.

Þegar kemur að hraða netteng­ingar í gegnum síma nær Ísland þó aðeins í tíunda sætið, en með­al­hraði síma­n­ið­ur­hals náði 36,84 mega­bitum á sek­úndu í júlí. Símnetið var hrað­ast í Noregi, en þar var með­al­hraði nið­ur­hals 52,59 mega­bitar á sek­úndu.

Venes­ú­ela hlýtur þann vafa­sama heiður að vera landið með hæg­ustu breið­bandsteng­ingu í heimi, en hún náði ein­ungis 3,20 mega­bitum á sek­úndu í júlí. Botns­ætið í sím­nets­hraða vermir svo Írak, en þar var með­al­hrað­inn 3,03 mega­bitar á sek­úndu í síð­asta mán­uði.

Lista yfir tíu hröð­ustu breið­bandsteng­ing­arnar má finna hér að neðan:

Breiðbandstengingar í júlí 2017, samkvæmt SpeedTest

Sæti Land Nið­ur­hals­hraði í Mb/s
1 Singapúr 154,38
2 Suður-Kórea 125,69
3 Hong Kong 117,21
4 Ísland 110,52
5 Rúmenía 91,48
6 Macau 80,11
7 Sviss 74,20
8 Svíþjóð 73,66
9 Banda­ríkin 70,75
10 Litháen 67,29
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

internetið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár