Þroskahjálp skorar á Seltjarnarnesbæ að draga hækkanirnar til baka

Lands­sam­tökin Þroska­hjálp segja að fréttir af 45 pró­sent hækkun húsa­leigu félags­legra íbúða á Sel­tjarn­ar­nesi séu slá­andi og skora á bæj­ar­fé­lagið að draga hækk­an­irnar til baka

Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður Þroskahjálpar.
Bryndís Snæ­björns­dóttir, for­maður Þroska­hjálpar. Mynd: RÚV

Landssamtökin Þroskahjálp skora á Seltjarnarnesbæ að draga til baka „óhóflegar“ hækkanir á leigu félagslegra íbúða og leita leiða til þess að mæta hallarekstri bæjarins án þess að það bitni á þeim sem höllum fæti standa. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá samtökunum.

[links] Kjarninn greindi frá því í dag að bæj­ar­stjórn Sel­tjarn­ar­nes­bæj­ar ­hefði sam­þykkti í gær að hækka húsaleigu félagslegra leiguíbúða á Seltjarnarnesi um 45 pró­sent í áföngum á næstu sex mán­uð­um. Þegar þessar hækk­anir hafa komið til fram­kvæmda verður leigan á eins her­bergja íbúð 75.833 krón­ur á mánuði, leiga á tveggja her­bergja íbúð 117.537 krón­ur, leiga á þriggja her­bergja íbúð í 148.375 krónur og ­fjög­urra her­bergja á 173.625 þús­und.

Í fréttatilkynningu Þroskahjálpar segir að þessar fréttir séu sláandi einkum í ljós þess að Seltjarnarnesbær nýti ekki útsvarsstofn sinn að fullu og að meðaltekjur íbúa sveitarfélagsins séu einna hæstar í landinu.

„Það er ólíðandi að hækka útgjöld þeirra sem minnst hafa á milli handanna áður en tekjustofnar sveitarfélaga eru fullnýttir og er sveitarfélagið með þessari ákvörðun að hlífa þeim sem efnameiri eru á kostnað fólks sem nýta þarf félagslegan stuðning,“ segir í fréttatilkynningunni.

Þroskahjálp skorar því á Seltjarnarnesbæ að draga hækkanirnar til baka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

velferðarmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár