Rúm 72 prósent væntra kjósenda VG jákvæð í garð aðildar Íslands að NATO

Jákvæðni í garð aðildar að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu er nú minni hjá kjós­enda­hópum Sam­fylk­ingar, Pírata, Flokks fólks­ins og Sós­í­alista­flokks­ins en á meðal væntra kjós­enda VG, sam­kvæmt nýrri könnun frá Maskínu.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Samkvæmt könnun sem Maskína vann fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið undir lok maí­mán­aðar eru tæp­lega 71 pró­sent land­manna jákvæð í garð aðildar Íslands að Atl­ants­hafs­banda­lag­inu (NATO) og hefur jákvæðnin í garð aðildar auk­ist mikið frá fyrri sam­bæri­legum mæl­ingum.

Athygli vekur, er nið­ur­stöð­urnar eru brotnar niður eftir stuðn­ingi við stjórn­mála­flokka, að jákvæðni í garð aðildar að banda­lag­inu var umfram lands­með­al­tal hjá þeim hópi svar­enda sem sagð­ist ætla að kjósa Vinstri græn. Flokk­ur­inn er sá eini á þingi sem hefur það bein­línis á stefnu­skrá sinni að Ísland ætti að ganga úr NATO.[links]

Það virð­ist þó litlu skipta um þessar mundir, en 72,3 pró­sent þeirra sem segj­ast ætla að kjósa flokk­inn eru jákvæð í garð aðildar Íslands að banda­lag­inu. Einungis 6,4 pró­sent þeirra sem sögð­ust ætla sér að kjósa Vinstri græn sögð­ust nei­kvæð gagn­vart aðild Íslands að banda­lag­inu.

Þetta er gjör­breytt staða frá fyrri mæl­ingum. Í könnun sem Maskína fram­kvæmdi í mars 2020 voru 35,4 pró­sent væntra kjós­enda Vinstri grænna jákvæð í garð NATO-aðildar Íslands og 30,1 pró­sent þeirra sögð­ust nei­kvæð. Í mæl­ingu Maskínu í maí 2021 sögð­ust 38,4 pró­sent kjós­enda Vinstri grænna svo jákvæð í garð aðildar og 24,7 pró­sent nei­kvæð.

Kjósendur Sósíalistaflokks neikvæðastir í garð aðildar

Jákvæðni í garð NATO meðal væntra kjós­enda Sam­fylk­ingar, Pírata og Flokks fólks­ins var lægri en í væntum kjós­enda­hópi Vinstri grænna, og mælist á bil­inu 63-65 pró­sent í könnun Maskínu. Þau sem sögð­ust ætla að kjósa Sós­í­alista­flokk­inn voru síst jákvæð í garð aðildar – ein­ungis 48 pró­sent væntra kjós­enda flokks­ins sögð­ust jákvæð gagn­vart aðild­inni að banda­lag­inu.

[adspot]

Nei­kvæðni í garð aðildar Íslands að NATO mælist mest hjá væntum kjós­endum Sós­í­alista­flokks, en næst mest hjá kjós­endum Pírata og þá Sam­fylk­ingar, Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins.

Kjós­endur Við­reisnar eru allra jákvæð­astir í garð NATO-aðildar, eða 95,5 pró­sent vænts kjós­enda­hóps flokks­ins. Næst komu kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks, en um 92 pró­sent þeirra eru jákvæðir í garð aðildar og um 80 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks.

Könnun Maskínu fyrir utan­rík­is­ráðu­neytið var fram­kvæmd dag­ana 19.-27. maí, en hún var lögð fyrir Þjóðgátt Maskínu, sem er þjóð­hópur fólks sem dreg­inn er með til­viljun úr Þjóðskrá. Svar­endur voru 957 tals­ins. Spurt var út í við­horf almenn­ings til ýmissa þátta í utan­rík­is­þjón­ustu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atlantshafsbandalagið

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár