Vaxandi ójöfnuður hefur rofið samfélagssáttmálann

Stig­vax­andi ójöfn­uður elur af sér þjóð­ern­ispopúl­isma og ein­angr­un­ar­hyggju að sögn vara­for­manns Við­reisnar. Alþjóð­lega er krafa innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að ráð­ast í klass­íska stétt­ar­bar­áttu.

Drífa Snædal og Þorsteinn Víglundsson voru gestir Þórðar Snæs Júlíussonar í síðasta sjónvarpsþætti Kjarnans.
Drífa Snædal og Þor­steinn Víglunds­son voru gestir Þórðar Snæs Júl­í­us­sonar í síð­asta sjón­varps­þætti Kjarnans. Mynd: Hringbraut

Þrátt fyrir að alþjóða­væð­ing og aukið við­skipta­frelsi hafi skilað heilt yfir miklu hærri lands­fram­leiðslu á mann í flestum ríkjum heims þá hefur ójöfn­uður auk­ist. Lág- og milli­tekju­hópar hafa setið sér­stak­lega eftir og afleið­ingin er meðal ann­ars aukin upp­gangur þjóð­ern­ispopúl­isma og ein­angr­un­ar­hyggju.

Þetta sagði Þor­steinn Víglunds­son, vara­for­maður Við­reisnar, í sjón­varps­þætti Kjarnans á mið­viku­dag. Þáttinn má sjá í heild sinni hér að neðan.

Þor­steinn sagði það engum vafa und­ir­orpið að ójöfn­uður væri að aukast. Ef ekki yrði tekið á því þá grafi það undan því lýð­ræð­is­lega umboði sem stjórn­völd í hverju landi hafa til þess að halda opnu við­skiptaum­hverfi. Þetta sjá­ist á þróun mála víða í Austur-Evrópu, í Banda­ríkj­unum og því að

Brexit

hafi verið sam­þykkt í Bret­landi. „Þarna er

þjóð­ern­ispopúl­ismi

að rísa upp og kjósa gegn við­skipta­frels­inu, þrátt fyrir ávinn­ing­inn sem af því hefur hlot­ist, og kjósa aftur ein­angr­un­ar­stefn­una sem við reyndum fyrir tæpri öld síðan og virk­aði bara ekki vel.“

Drífa Snædal, fram­kvæmda­stjóri Starfs­greina­sam­bands Íslands, var einnig gestur þátt­ar­ins. Hún sagði að það væri alþjóð­leg krafa í í verka­lýðs­hreyf­ing­unni að fara með bar­áttu hennar „back to basics“ í átt að hefð­bund­inni stétta­bar­áttu. „Við sjáum það að ójöfn­uður hefur auk­ist takt­fast upp frá 1980. Þessi átt sem við vorum að fara að auka jöfnuð í heim­inum og í hinum vest­rænu sam­fé­lögum, að sá sam­fé­lags­sátt­máli var rof­inn. Eftir því sem ójöfn­uður eykst því meiri verður krafan. Því meiri verður vit­undin um að það sé stétta­skipt­ing. Og því meiri verður krafan um rót­tæka stétta­bar­áttu.“

Drífa sagði að fréttir eins og þær sem borist hafa um miklar hækk­anir á launum æðstu emb­ætt­is­manna og ofur­launum for­stjóra fyr­ir­tækja í einka­geir­anum væru sem olía á eld­inn. „Fólk situr eftir með þá til­finn­ingu að hér er að verða stig­vax­andi ójöfn­uður. Fólk er ekki að bera sann­gjarnt úr býtum fyrir þá vinnu sem það innir af hendi. Það er greini­lega til pen­ingur til skipt­anna og þá verður þessi nún­ingur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár