Hinn klofni fjórflokkur

Það blasir við öllum sem sjá að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn er klofin í herðar niður. En hann er ekki eini fjór­flokk­ur­inn sem glímir við slíkan klofn­ing. Þvert á móti má segja að allir fjórir flokk­arnir hafi klofnað með einum eða öðrum hætti á síð­ustu fimm árum.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur stofnað nýjan póli­tískan vett­vang utan um sjálfan sig. Þótt Fram­fara­fé­lagið, sem hann stofn­aði nýverið, sé ekki hefð­bund­inn stjórn­mála­flokkur er ljóst að vett­vang­ur­inn er búinn til svo að Sig­mundur Davíð geti verið for­maður, og að hans umdeildu póli­tísku áherslur fái að vera ráð­andi afl.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hafn­aði póli­tík Sig­mundar Davíðs á flokks­þingi í októ­ber, þegar hann tap­aði fyrir Sigurði Inga Jóhanns­syni í for­manns­kosn­ingum. Staða flokks­ins var þá, og er reyndar enn, ekki beysin. Flokk­ur­inn beið afhroð í síð­ustu þing­kosn­ingum og hlaut sína verstu útreið í 100 ára sögu sinni. Enginn flokkur vildi fara í form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður við Framsókn þrátt fyrir stjórn­ar­kreppu og fylgi flokks­ins mælist enn mjög lágt í könn­unum, þrátt fyrir miklar óvin­sældir sitj­andi rík­is­stjórnar.

Sig­mundur Davíð gengur út frá því að staðan sé sitj­andi for­manni, Sigurði Inga, að kenna. Hann vill meina að hópur sem hann kallar flokks­eig­enda­fé­lag Fram­sókn­ar­flokks­ins hafi tekið sig saman og ýtt sér til hliðar í flokknum með belli­brögðum. Þar hefur Sig­mundur Davíð meðal ann­ars nefnt tvo fyrr­ver­andi for­menn flokks­ins, þau Valgerði Sverr­is­dóttur og Jón Sig­urðs­son. Þau kann­ast hvor­ugt við sam­særið sem Sig­mundur Davíð virð­ist sann­færður um. Til við­bótar má nefna annan for­mann, Guðna Ágústs­son, sem kom fram opin­ber­lega skömmu fyrir flokks­þingið í fyrra og kall­aði eftir því að Sig­mundur Davíð myndi víkja úr for­ystu Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Aðrir Fram­sókn­ar­menn horfa á stöð­una öðrum augum. Þeir telja að aðstæður flokks­ins séu fyrst og síð­ast Sigmundi Davíð að kenna. Hann beri ábyrgð á Wintris-mál­inu, því að hann hafi þurft að víkja úr rík­is­stjórn og þar af leið­andi afhroði flokks­ins í kosn­ing­unum í októ­ber 2016. Sigurður Ingi er þar á meðal. Mörgum stuðn­ings­mönnum hans finnst for­mað­ur­inn hafa sýnt Sigmundi Davíð mikið lang­lund­ar­geð und­an­farna mán­uði. Sig­mundur Davíð sé sífellt að henda fram hálf­kveðnum vísum um að hann hafi verið beittur miklum órétti af óheið­ar­legu fólki innan flokks þegar hann var settur af sem for­maður.

Sigurður Ingi brást loks við á mið­stjórn­ar­fundi fyrr í maí­mán­uði. Í ræðu sinni þar sagði hann: „En það virð­ist ekki öllum gefið að geta sætt sig við það sem flokks­menn ákveða með lýð­ræð­is­legum aðferð­um. Í Morg­un­blað­inu í gær mátti lesa hvaða augum sumir líta flokk­inn okkar og ákvarð­anir okkar flokks­manna. Þar segir ein­hver að rán hafi átt sér stað í haust og þeir, sem á að hafa verið rænt frá, fyr­ir­gefi ekki slíkan gjörn­ing, ekki núna, ekki seinna! Auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, hefur verið við­haft af minna til­efni. Það sem ég spyr mig að er; er þetta sam­vinnu­maður sem talar svona, þetta er ekki sér­lega fram­sókn­ar­leg nálg­un? Og hvaða fyr­ir­gefn­ingu er verið að tala um, við hvern á að segja „sor­rí“? Hin almenna fram­sókn­ar­mann, meiri­hluta full­trúa á flokks­þingi? Á flokks­þingi í haust var tek­ist á. Svo virð­ist sem sumir líti á nið­ur­stöðu þess þings sem ein­hvers konar svik við hluta flokks­ins. Það er að segja, að meiri­hlut­inn hafi svikið minni­hlut­ann. Og nú sé bara spurn­ingin hvenær þau svik verði leið­rétt.“

Enginn vafi var um hverjum pillan var ætluð. Sig­mundur Davíð var í kjöl­farið spurður hvernig honum hafi þótt ræða for­manns­ins. Hann svar­aði: „Ekkert sér­stök“.

Sigmundur Davíð finnur sig ekki í aftursætinu

Það er því djúp­stæður klofn­ingur í Fram­sókn­ar­flokknum. Áhrifa­fólk innan hans er flest á bandi Sigurðar Inga en á fram­halds­stofn­fundi Fram­fara­fé­lags Sig­mundar Davíðs í lok maí mátti sjá stór númer í flokks­starf­inu á und­an­förnum árum á meðal fund­ar­manna. Þar ber helst að nefna Gunnar Braga Sveins­son, sem enn situr á þingi, og fyrr­ver­andi þing­menn­ina Vigdísi Hauks­dóttur og Þorstein Sæmunds­son. Auk þess voru á fund­inum þrír fyrr­ver­andi aðstoð­ar­menn ráð­herra í síð­ustu rík­is­stjórn, þau Jóhannes Þór Skúlason, Sunna Gunnars Mart­eins­dóttir og Matthías Imsland.

Mitt á milli er síðan Lilja Alfreðs­dóttir, vara­for­maður flokks­ins. Henni hefur tek­ist að taka ekki afstöðu með fylk­ing­unum fram til þessa. Lilja vinnur bæði náið með Sigurði Inga en var mjög náin sam­starfs­maður Sig­mundar Davíðs á síð­asta kjör­tíma­bili. Hún var til að mynda ráð­inn tíma­bundið sem verk­efna­stjóri í for­sæt­is­ráðu­neyt­inu á meðan að Sig­mundur Davíð sat þar. Í því starfi lék Lilja lyk­il­hlut­verk í upp­gjör­inu við kröfu­hafa föllnu bank­anna.

Það er verst geymda leynd­ar­mál íslenskra stjórn­mála að Lilja er að máta sig við for­manns­stól­inn í Fram­sókn­ar­flokknum. Hún hefur þegar gefið það út að hún íhugi fram­boð á næsta flokks­þingi, sem verður lík­lega haldið í jan­úar 2018. Þeir eru ekki margir sem telja að Lilja sé ekki þegar búin að gera upp hug sinn hvað það varðar.

Erfitt er að sjá að Sigurði Inga tak­ist að friða stuðn­ings­menn Sig­mundar Davíðs innan Fram­sókn­ar­flokks­ins. Og ómögu­legt verður að telj­ast að Sig­mundur Davíð geti sam­einað flokk­inn að baki sér að nýju tak­ist honum að verða for­maður aftur. Það þurfi því annan til að stíga inn og græða sárin. Þá komi fyrst í ljós hvort fall Fram­sókn­ar­flokks­ins sé ein­ungis bundið við per­són­urnar í for­ystu­sveit flokks­ins eða hvort það hafi líka eitt­hvað að gera með frammi­stöðu hans í rík­is­stjórn og póli­tískar áherslur að gera.

Lilja Alfreðsdóttir var fengin til að gegna stöðu utanríkisráðherra sem utanþingsráðherra eftir að Sigmundur Davíð sagði af sér sem forsætisráðherra. Hún hefur síðan verið kjörin á þing og sem varaformaður Framsóknarflokksins.
Lilja Alfreðs­dóttir var fengin til að gegna stöðu utan­rík­is­ráð­herra sem utan­þings­ráð­herra eftir að Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra. Hún hefur síðan verið kjörin á þing og sem vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Komist Sig­mundur Davíð ekki aftur í áhrifa­stöðu innan Fram­sókn­ar­flokks­ins verður að telj­ast lík­legt að hann muni að minnsta kosti íhuga það gaum­gæfi­lega að breyta hug­mynda­verk­smiðj­unni sinni, Fram­fara­fé­lag­inu, í fram­boð. Og þar með kljúfa Fram­sókn­ar­flokk­inn form­lega.

Klofningur hjá hinum líka

Það ástand sem er innan Fram­sókn­ar­flokks­ins er auð­vitað eitt­hvað sem allir stóru stjórn­mála­flokk­arnir á Íslandi – hinn svo­kall­aði fjór­flokkur – þekkir af eigin raun, þótt klofn­ing­ur­inn þar sé ekki endi­lega jafn per­sónu­legur og jafn víð­feðmur og hjá Framsókn nú um stundir.

Fjór­flokk­ur­inn (Sjálf­stæð­is­flokkur, Fram­sókn­ar­flokkur, Sam­fylk­ing og Vinstri græn) fékk framan af lýð­veld­is­tím­anum alltaf um og yfir 90 pró­sent allra atkvæða. Þetta breytt­ist þó mjög í kosn­ing­unum 2013 þegar sam­an­lagt fylgi flokk­anna fjög­urra datt niður í 74,9 pró­sent. Í kosn­ing­unum 2016 féll það svo niður í 62 pró­sent. Í þeim kosn­ingum fengu átta flokkar stofn­aðir eftir 2012 38 pró­sent atkvæða.

Sumir þeirra eru ein­stakir og sann­ar­lega nýtt afl. Ber það kannski fyrst og síð­ast að nefna Pírata, sem ekki er hægt að segja að hafi klofnað frá neinum hinna hefð­bundnu stjórn­mála­flokka. En hluti þeirra á sann­ar­lega rætur sínar að rekja til hefð­bundnu flokk­anna.

Und­ir­bún­ingur að stofnun Við­reisnar hófst til að mynda nán­ast sam­hliða því þings­á­lykt­un­ar­til­laga um að umsókn að Evr­ópu­sam­band­inu yrði dregin til baka var lögð fram. Að hinu nýja póli­tíska afli stóðu Sjálf­stæð­is­menn sem töldu sig frjáls­lynd­ari og alþjóða­sinn­að­ari en ráð­andi öfl í flokknum. Þessi hópur taldi sig svik­inn. Honum hafði verið lofað að kosið yrði um áfram­hald við­ræðna í aðdrag­anda kosn­inga 2013. Þegar á hólm­inn var komið sagði Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, það hins vegar vera „póli­tískan ómögu­leika“.

Viðreisn var í kjöl­farið form­lega stofnuð og bauð fram í haust­kosn­ing­unum 2016. Flokknum gekk vel, fékk 10,5 pró­sent fylgi og sjö þing­menn kjörna. Í hópnum sem rataði á þing var til að mynda fyrr­ver­andi vara­for­maður flokks­ins, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins (sem alltaf hafa haft náin tengsl við Sjálf­stæð­is­flokk­inn), fólk sem hafði verið fyr­ir­ferða­mikið í ung­liða­starfi Sjálf­stæð­is­flokks­ins og auð­vitað for­mað­ur­inn sjálfur, Eng­ey­ing­ur­inn Benedikt Jóhann­es­son, náfrændi Bjarna Bene­dikts­sonar. Við blasir að margir sem áður höfðu nær alltaf kosið Sjálf­stæð­is­flokk­inn töldu sig nú vera með annan val­kost. Á end­anum röt­uðu svo móður- og dótt­ur­fé­lagið saman í rík­is­stjórn. Og þar hefur verið barið á Viðreisn fyrir að gefa eftir öll helstu stefnu­mál sín sem aðskildu flokk­inn frá Sjálf­stæð­is­flokknum, nú síð­ast í dóm­ara­mál­inu svo­kall­aða, þar sem þing­menn Við­reisnar studdu ákvörðun Sigríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um að skipa dóm­ara í Lands­rétt í and­stöðu við til­lögu dóm­nefndar.

Flokkurinn sem gleymdi til hvers hann var og Gunnar Smári

Sam­fylk­ingin átti einu sinni að verða turn í íslenskum stjórn­málum, og náði að vera það um nokk­urra ára skeið. Í síð­ustu kosn­ingum var flokk­ur­inn hins vegar nán­ast dott­inn út af þingi. Lík­leg­asta skýr­ingin er sú að kjós­endur trúa ekki að flokk­ur­inn standi fyrir jöfnuð og vel­ferð, líkt og sós­í­alde­mókrat­ískir flokkar gefa sig út fyrir að gera. Þvert á móti virt­ust margir afskrifa Sam­fylk­ing­una sem flokk sem gerði sér allt of dælt við auð­valdið og hengdi allar sínar vonir á að aðild að Evr­ópu­sam­band­inu myndi leysa öll vanda­mál á Íslandi. Jafn­að­ar­manna­flokk­ur­inn hafði ein­fald­lega gleymt að standa með verka­lýðnum sem bjó hann til.

Logi Einarsson tók við sem formaður Samfylkingarinnar þegar flokkurinn var í sárum. Hans bíður afar erfitt uppbyggingarstarf. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Logi Ein­ars­son tók við sem for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar þegar flokk­ur­inn var í sárum. Hans bíður afar erfitt upp­bygg­ing­ar­starf. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

Hnignun Sam­fylk­ing­ar­innar hefur haft marg­vís­leg áhrif. Ein þau skýr­ustu er til­urð Bjartrar fram­tíðar. Sá flokkur er reyndar frjáls­lynd­ari og lík­lega mark­aðs­sinn­aðri en uppi­staðan í Sam­fylk­ingin, að minnsta kosti í orði. En hann fiskar sann­ar­lega í sömu tjörn og gamli jafn­að­ar­mannaris­inn og margir fyrr­ver­andi Sam­fylk­ing­ar­menn hafa verið áber­andi í flokks­starfi Bjartrar fram­tíðar, t.d. Guðmund Stein­gríms­son (fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra) og Róbert Marshall, sem sat á þingi fyrir Sam­fylk­ing­una. Flokk­ur­inn hefur, ásamt fyr­ir­renn­ara sínum Besta flokknum, átt þátt í gera nán­ast út af við Sam­fylk­ing­una. Eða að minnsta kosti ýta henni í þá nafla­skoðun sem nú virð­ist eiga sér stað, og hefur skilað sér í nýjum for­manni og smá­vægi­lega auknu fylgi. Staðan er þó þannig að Sam­fylk­ingin hefur ein­ungis þrjá þing­menn og er minnsti flokk­ur­inn á Alþingi. Staða sem hefði þótt óhugs­andi fyrir örfáum árum síðan.

En það er gjörn­inga­veður að mynd­ast vinstra megin við Sam­fylk­ing­una líka. Vinstri græn hafa getað átt það svæði án mik­illa vand­kvæða hingað til og til­raunir til stofn­unar nýrra vinstri flokka hafa flestar ekki gengið mjög vel. Flokkar á borð við Alþýðu­fylk­ing­una (0,3 pró­sent atkvæða 2016) og Dögun (1,7 pró­sent atkvæða 2016) hafa ekki ruggað bátnum mikið. Það er helst að Flokkur fólks­ins (3,5 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2016) hafi aðeins náð að hrista búrið í villtasta vinstr­inu. Þetta hefur gerst þrátt fyrir að oft örli meira á Fram­sókn­ar­stefnu og íhalds­semi en hreinni vinstri­mennsku í verkum Vinstri grænna. Þá ber að minn­ast á að á kjör­tíma­bil­inu 2009-2013 yfir­gáfu nokkrir þing­menn Vinstri græna og einn þeirra, Lilja Mós­es­dóttir, stofn­aði stjórn­mála­aflið Samstöðu sem mæld­ist um tíma með yfir 20 pró­sent fylgi. Fljótt fjar­aði hins vegar undan því fram­boði.

Nú er hins vegar mögu­lega kom­inn aðili sem gæti hrært upp í vinstr­inu, Sós­í­alista­flokkur Íslands. Hann var stofn­aður 1. maí síð­ast­lið­inn. Í grófum dráttum ætlar flokk­ur­inn sér að koma sér fyrir í því tóma­rúmi sem hann telur Vinstri græn og Sam­fylk­ing­una ekki vera sinna, og verða flokkur launa­fólks­ins í land­inu. Í stefnu­skrá Sós­í­alista­flokks­ins eru sett fram fimm skýr bar­áttu­mál: mann­sæm­andi kjör fyrir alla lands­menn, aðgengi að öruggu og ódýru hús­næði, aðgengi að gjald­frjálsu heil­brigð­is­kerfi, að gjald­frjálsri menntun á öllum skóla­stigum og að gjald­frjálsu vel­ferð­ar­kerfi sem mætir ólíkum þörfum fólks­ins í land­inu, stytt­ing vinnu­vik­unnar og end­ur­upp­bygg­ing skatt­heimt­unnar með það fyrir augum að „auð­stéttin greiði eðli­legan skerf til sam­neysl­unnar en álögum sé létt af öðrum“.

Á stofn­fund Sós­í­alista­flokks­ins mættu nokkur hund­ruð manns en það velk­ist eng­inn í vafa um að flokk­ur­inn hverf­ist fyrst og síð­ast um hvata­mann­inn að stofnun hans, Gunnar Smára Egilsson. Hann hafði áður verið rit­stjóri og einn aðal­eig­andi Frétta­tím­ans, sem sigldi í rekstr­ar­legt strand snemma á þessu ári án þess að til væri fé til að gera upp laun við alla starfs­menn.

Sós­í­alista­flokk­ur­inn hefur ekki verið mældur í neinum opin­berum mæl­ingum og athyglin á flokknum hefur dreg­ist saman sam­hliða því að nýja­brumið hefur skol­ast af. En það verður athygl­is­vert að sjá hvort hann muni ná að kroppa umtals­vert fylgi af Vinstri grænum. Þar er nefni­lega eftir miklu að slægj­ast. VG hefur mælst með allt að fjórð­ungs fylgi í könn­unum á und­an­förnum mán­uðum, og er því að mæl­ast mjög svip­aður að stærð og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, sem hefur nær alltaf verið stærsti flokkur lands­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár