Bjarni vildi að Jóhanna segði af sér vegna brots á jafnréttislögum

Bjarni Bene­dikts­son spurði Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur hvort hún íhug­aði ekki að segja af sér eftir að Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að því að hún hefði brotið jafn­rétt­islög. Nefndin segir Bjarna hafi brotið sömu lög og Jóhanna spyr hvað hann ætli að gera.

Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór

Bjarni Bene­dikts­son, núver­andi for­sæt­is­ráð­herra, spurði Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, ítrekað að því hvort hún hygð­ist ekki segja af sér emb­ætti eftir að Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála komst að þeirri nið­ur­stöðu að hún hefði brotið jafn­rétt­islög árið 2011. Nú hefur sama nefnd kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hafi brotið gegn jafn­rétt­islögum þegar hann var fjár­mála­ráð­herra.

[links]Jóhanna spyr á Facebook-síðu sinni hvað Bjarni ætli sér að gera nú þegar nefndin hafi úrskurðað að hann hafi brotið jafn­rétt­islög.

„Bjarni Bene­dikts­son spurði mig ítrekað hvort ég teldi ekki til­efni til afsagnar þegar Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála taldi mig hafa brotið jafn­rétt­islög árið 2011. Í því til­viki hafði karl verið met­inn hæf­astur en konan, sem kærði, hafði verið í fimmta sæti í hæfn­is­mati. Síðar kom fram í áliti Umboðs­manns Alþingis að kæru­nefndin hefði ekki sýnt fram á að ég hefði brotið jafn­rétt­islög. Í til­viki Bjarna voru kona og karl metin jafn­hæf og karl­inn ráð­inn. Bjarni taldi það á sínum tíma óskilj­an­lega þrjósku af mér að við­ur­kenna ekki ein­fald­lega að ég hefði brotið jafn­rétt­islög. Pólitísk ábyrgð væri ráð­herr­ans og því til­efni til afsagnar, að hans mati,“ segir Jóhanna.

Ábyrgðin er ráðherrans

Bjarni, þá í stjórn­ar­and­stöðu sem for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, spurði Jóhönnu meðal ann­ars um málið í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á þing­inu í mars 2011. „Nú ber ég það upp við hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra hvort hún sé ekki örugg­lega alvar­lega að íhuga afsögn. Er það ekki eina leiðin fyrir ráð­herr­ann til að standa undir þeim stóru orðum sem hafa fallið bæði um jafn­rétt­islög­gjöf­ina og um ráð­herra­á­byrgð í gegnum árin?“ spurði Bjarni.

Jóhanna svar­aði því til að hún teldi engin efni til að segja af sér, enda hafi hún talið fylli­lega fag­lega staðið að ráðn­ingu skrif­stofu­stjóra í ráðu­neyti hennar.

„Það gengur ekki fyrir hæst­virtan for­sæt­is­ráð­herra að tína það til sem ein­hver rök í þessu máli að það sé í lagi að ganga gegn nið­ur­stöðu kæru­nefndar jafn­rétt­is­mála vegna þess að sér­fræð­ingur sem kom að mál­inu hafi kom­ist að annarri nið­ur­stöðu. Þetta stenst enga skoðun. Ábyrgðin er ráð­herr­ans,“ sagði Bjarni þá.

[adspot]

Líkt og Kjarninn greindi frá í gær hefur Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála nú kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Bjarni hafi brotið jafn­rétt­islög þegar hann skip­aði karl í emb­ætti skrif­stofu­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu í fyrra. Kona sem sótti um starfið kærði skip­un­ina til kæru­nefnd­ar­innar þar sem hún taldi sig hafa verið hæf­ari en hann til að gegna starf­inu. Hún væri með tölu­vert meiri og víð­tæk­ari reynslu en sá sem var skip­að­ur. Í ljósi þess að fimm karlar og þrjár konur skipi emb­ætti skrif­stofu­stjóra hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu og ein kvenn­anna sé sett tíma­bundið í for­föllum karl­kyns skrif­stofu­stjóra halli á konur hvað varðar skipan í emb­ætti skrif­stofu­stjóra hjá ráðu­neyt­inu. Því taldi konan að henni hafi verið mis­munað á grund­velli kyn­ferðis og vís­aði í lög um jafna stöðu og jafnan rétt karla og kvenna því til stuðn­ings.

Kæru­nefnd jafn­rétt­is­mála tók undir þetta og sagði fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið ekki hafa sýnt fram á að aðrar ástæður en mis­munun á grund­velli kyn­ferðis hafi legið til grund­vallar því að konan var ekki skipuð í starf­ið. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár