Spáir svipaðri verðbólgu út árið

Ekki er talið að umvand­anir stjórn­mála­manna til verka­lýðs­for­yst­unnar muni skila sér í lægri verð­bólgu í nýrri verð­spá Hag­fræði­stofn­unar HÍ. Stofn­unin spáir stöðugri verð­bólgu næstu mán­uð­ina og minnk­andi atvinnu­leysi á seinni hluta árs­ins.

Verð­bólga mun hald­ast yfir 4 pró­sent allt árið, þrátt fyrir að nokkuð muni draga úr launa­hækk­unum frá árinu á undan, en atvinnu­leysi mun hald­ast undir 4 pró­sentum á seinni hluta árs­ins. Þetta kemur fram í nýrri verð­spá Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands.

Ráðamenn hika við að beita aðhaldi

Samkvæmt spánni er aðhald pen­inga­stefn­unnar þessa stund­ina minna en ekk­ert, þar sem raun­vextir eru nei­kvæðir. Enn fremur ýtir efna­hags­stefna hins opin­bera undir eft­ir­spurn, þó að atvinnu­leysi hafi minnkað mikið um mitt nýliðið ár og hag­vaxt­ar­horfur séu góðar.

Stofn­unin segir að reyna muni meira á stjórn efna­hags­mála en venju­lega á næstu mán­uðum, þar sem almennir kjara­samn­ingar renna út undir lok árs. „En ráða­menn hika við að beita efna­hags­legu aðhaldi. Þeir aðhyll­ast sárs­auka­minni lausnir, eins og áminn­ingar um ábyrgð verka­lýðs­fé­laga og aðgerð­ar­pakka sem eiga að koma í stað­inn fyrir launa­hækk­anir,“ bætir hún við.

Slíkar umvand­anir munu lík­lega breyta litlu, sam­kvæmt stofn­un­inni, þar sem reynslan af kjara­samn­ingum hér­lendis sýni að kaup­kröfur ráð­ast öðru fremur af ástandi á vinnu­mark­aði.

Laun og húsnæðisverð hækka hraðar

Verðspá stofn­un­ar­innar byggir á vænt­ingum um að meg­in­vextir Seðla­bank­ans hækki hægt og endi í 3,5 pró­sentum í lok árs, sem er svipað spám Lands­bank­ans frá því í haust. Einnig er búist við minnk­andi verð­bólgu í við­skipta­löndum, líkt og alþjóða­stofn­anir gera ráð fyrir, auk þess sem lág­marks­laun muni hækka um 5 þús­und krónur.

Að þessum for­sendum gefnum telur Hag­fræði­stofnun að verð­bólga hald­ist svipuð og verið hefur út þetta ár, eða yfir 4 pró­sentum. Einnig er búist við að launa­hækk­an­irnar verði minni en í fyrra, en þó meiri en verð­bólgan.

Til við­bótar við miklar launa­hækk­anir telur stofn­unin að hús­næð­is­verð, sem hún segir aðal­lega ráð­ast af vaxta­stig­inu, muni hækka heldur hraðar en almennt verð­lag.

Stofn­unin bætir einnig við frá­viks­spám, þar sem nokkur óvissa ríkir um verð­lags­þróun erlendis, en sam­kvæmt Efnahags- og fram­fara­stofn­un­inni (OECD) eru meiri líkur á að verð­bólgan sé van­metin heldur en ofmetin. Haldist verð­bólgan í við­skipta­löndum Íslands í 5 pró­sentum á þessu ári mætti búast við að verð­lag muni verða rétt yfir 5 pró­sentum hér­lendis í lok árs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

verðbólga

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár