Landsliðið bauð dreng sem svikinn var um miða að hitta sig í gærkvöldi

Íslenska landsliðið hyllir áhorfendur sína eftir að hafa lokið keppni á EM. Margir sem keyptu miða af íslenskum þriðja aðila komust ekki á leikinn og þeir sem gerðu það horfðu flestir á þessi fagnaðarlæti frá hinum enda stúkunnar.
Íslenska lands­liðið hyllir áhorf­endur sína eftir að hafa lokið keppni á EM. Margir sem keyptu miða af íslenskum þriðja aðila komust ekki á leik­inn og þeir sem gerðu það horfðu flestir á þessi fagn­að­ar­læti frá hinum enda stúkunnar. Mynd: EPA

Níu ára drengur, sem ætl­aði að sjá leik Íslands og Frakk­lands á EM í París á sunnu­dag með föður sínum, fékk ekki mið­anna sem greitt hafði verið fyrir og komst þar af leið­andi ekki inn á völl­inn. Vinur föður hans fannst fara ósann­gjarnt að börn væru svikin með þessum hætti og setti í sam­band við Hannes Þór Hall­dórs­son, lands­liðs­mark­mann, með það í huga að gera eitt­hvað fyrir dreng­inn. Úr varð að hann kom og hitti lands­liðs­menn­ina þar sem þeir snæddu með eig­in­konum sínum og kærustum eftir heim­kom­una í gær og fékk hann auk þess árit­aðan bolta.

Faðir drengs­ins setti inn stöðu­upp­færslu á Facebook-svæði sem kall­ast „Ferða­grúbba fyrir EM 2016“ á sunnu­dags­kvöld þar sem hann lýsti reynslu feðganna. Þar sagði hann að kvöldið, sem hefði átt að vera ynd­is­leg stund með níu ára drengnum hans, hefði breyst í martröð þar sem þeir hefðu ekki fengið mið­ana sem þeir hefði verið lofað og búið var að greiða fyrir. Ástæðan var sú að Björn Stein­bekk, sem hafði selt feðg­unum og fjöl­mörgum öðrum miða langt yfir opin­beru sölu­verði knatt­spyrnu­sam­bands Evrópu (UEFA), gat ekki afhent þá þegar á hólm­inn kom.

Óskar Páll Elfars­son, vinur föður drengs­ins, setti síðan inn stöðu­upp­færslu á Facebook í gær­kvöldi þar sem hann greindi frá því að honum hefði þótt „hrika­lega ósann­gjarnt að svíkja börn svona illa.“ Á Vísi kemur fram að hann hafi í kjöl­farið sent skila­boð á Hannes Þór Hall­dórs­son og úr hafi orðið að drengnum var boðið að koma og hitta lands­liðs­hetj­urnar í gær­kvöldi þar sem hluti liðs­ins árit­aði einnig bolta og færði honum að gjöf.

Miðarnir komu ekki frá UEFA

Athafna­mað­ur­inn Björn Stein­bekk seldi á fjórða hund­ruð Íslend­ingum miða á leik íslenska liðs­ins gegn Frakk­landi á sunnu­dag. Mjög illa gekk að afhenda mið­anna þegar komið var til Parísar og á end­anum fengu nokkrir tugir Íslend­ingar, meðal ann­ars nokkur börn, ekki miða þrátt fyrir að hafa verið búnir að borga fyrir þá hátt verð. Margir þeirra sem fengu miða hjá Birni voru mjög ósáttir með þá þar sem að mið­arnir voru ekki á þeim svæðum vall­ar­ins sem lofað hafði verið heldur sat fólk sem ferð­að­ist saman á víð og dreif um stúk­una Frakk­lands­megin. 

Björn hélt því fram við RÚV í gær að hann hafi verið blekktur af starfs­manna miða­sölu UEFA sem hafi lofað honum 400 miðum til sölu. Hann sendi tölvu­póst sem honum hafði borist á frétta­stofu RÚV til að und­ir­byggja mál sitt. Tölvu­póst­ur­inn er und­ir­rit­aður af „Nicole“. Þegar íslenskir fjöl­miðlar höfðu sam­band við UEFA fékkst þar stað­fest að engin Nicole starfi fyrir miða­sölu sam­bands­ins og að mið­arnir sem Björn seldi hafi ekki komið frá því.

Í Morg­un­blað­inu í dag kemur fram að Björn ætli sér að end­ur­greiða þeim sem telja sig eiga kröfu til hans og að hann hafi tekið frá upp­hæð til þess.

Í fjölda­pósti sem Björn sendi frá sér til þeirra sem voru sviknir um miða segir: „Vil byrja á að biðj­ast afsök­unar á hvernig fyrir málum er komið. Hins­vegar veit ég að það skiptir litlu hvað ég segi heldur miklu frekar að gripið sé til aðgerða og ábyrgð sýnd í verki. Forum Lögmenn hafa tekið að sér að ann­ast öll sam­skipti varð­andi kröfur vegna end­ur­greiðslu á miðum. Á sama tíma hefur Forum lög­menn tekið við, til varð­veislu, á meðan þetta mál verður leyst, fjár­hæð sem ég tel að sam­svari þeim miða­fjölda sem ekki fékkst afhentur.“

Á meðal þeirra sem keyptu miða af Birni voru með­limir í Tólfunni, stuðn­ings­manna­sveit íslenska lands­liðs­ins, sem höfðu ferð­ast til Frakk­lands með styrkjum frá íslenskum fyr­ir­tækjum til að taka þátt í að stýra stuðn­ingi við íslenska lands­liðið. Í Morg­un­blað­inu segir að nokkrir þeirra hafi ekki náð að sjá leik­inn og aðrir sátu annað hvort einir eða langt frá íslensku stuðn­ings­mönn­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

em2016

Fréttirem2016

Starfs­fólk KSÍ fær bón­us­greiðslur vegna EM

Starfs­fólk Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands (KSÍ) fær greitt launa­upp­bót sökum álags í tengslum við þátt­töku A-lands­liðs karla á EM í Frakk­landi í sumar, þar sem liðið komst í átta liða úrslit. Uppbótin mun sam­svara mán­að­ar­launum hvers starfs­manns. Stjórn KSÍ sam­þykkti þetta á fundi í júlí. Frá mál­inu er greint í Frétta­blað­inu í dag. Geir Þor­steins­son, for­maður KSÍ, bar fram til­lög­una þegar hún...
Fréttirem2016

Eft­ir­spurn eftir gist­ingu í Frakk­landi jókst mest meðal Íslend­inga

Tífalt fleiri Íslend­ingar leit­uðu eftir gist­ingu í Frakk­landi á fyrri hluta þessa árs en í fyrra á vef Hotels.com, enda náði íslenska landsiðið í knatt­spyrnu langt á Evr­ópu­meist­ara­mót­inu sem fram fór í Frakk­landi í júní. Sam­an­borið við önnur lið sem náðu jafn langt og Ísland í keppn­inni juk­ust leitir Íslend­inga mest. Að jafn­aði fjölg­aði leitum að hót­el­her­bergjum í Frakk­landi um...
Pistillem2016

Þórður Snær Júlíusson

Þegar Arnór Ingvi tryggði Portú­gölum Evr­ópu­meist­ara­titil

Úrslita­leikir hafa til­hneig­ingu til að vera leið­in­legir. Þeir sem hafa ekki verið það eru telj­andi á fingrum ann­arar handar. Mexíkó 1986, kannski úrslita­leikur EM 2000, úrslita­leikur meist­ara­deild­ar­innar í Istanbúl árið 2005 koma upp í hug­ann. Þótt ýmsir leikir hafi inni­haldið hádramat­ísk augna­blik, t.d. magn­aður sigur Manchester United á Bayern Munich árið 1999, þá var leik­ur­inn sjálfur að mestu hund­leið­in­legur. Úrslita­leikur...
Erlentem2016

Portúgal Evr­ópu­meist­arar eftir sigur á Frökkum

Portúgal er Evr­ópu­meist­ari eftir að hafa sigrað Frakk­land 1-0 í úrslita­leik EM 2016. Eina mark leiks­ins var skorað af vara­mann­inum Eder, sem á 109 mín­útu leiks­ins. Heima­menn í Frakk­landi höfðu þótt mun sig­ur­strang­legri fyrir leik­inn og sig­ur­líkur þeirra þóttu ekki minnka þegar Cristiano Ronaldo, einn besti knatt­spyrnu­maður sög­unnar, þurfti að fara meiddur af velli um miðjan fyrri hálf­leik. Fyrir leik­inn...
Erlentem2016

Kolbeinn við það að verða kos­inn leik­maður EM á vef Sky

Kolbeinn Sig­þórs­son, fram­herji íslenska lands­liðs­ins og franska liðs­ins Nantes, er í efsta sæti í kosn­ingu á leik­manni EM hjá Sky. Kolbeinn hefur fengið yfir 20 þús­und atkvæði en Antoine Griezmann, helsta stjarna franska lands­liðs­ins, situr í öðru sæti með um 18 þús­und atkvæði. EM lýkur síðar í dag með úrslita­leik heima­manna í Frakk­landi gegn liði Portúgal. Íslenska lands­liðið datt sem...

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár