Isavia svaraði ekki fyrirspurn um skuldir flugfélaga í vanskilum

Þing­maður spurði sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra hversu háar gjald­fallnar skuldir flug­fé­laga við Isavia hefðu verið 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Rík­is­fyr­ir­tækið vildi ekki veita upp­lýs­ingar um það.

Isavia rekur meðal annars alþjóðaflugvöllinn í Keflavík.
Isavia rekur meðal ann­ars alþjóða­flug­völl­inn í Keflavík. Mynd: Bára Huld Beck

Isavia veitir ekki upp­lýs­ingar um hverjar skuldir flug­fé­laga við fyr­ir­tækið sem komnar væru fram yfir gjald­daga og/eða eindaga 1. nóv­em­ber síð­ast­lið­inn. Þetta kemur fram í svari Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Jóns Stein­dórs Valdi­mars­sonar, þing­manns Við­reisnar, um málið sem birt hefur verið að vef Alþingis.

Í svari Sigurðar Inga segir að sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Isavia séu „ein­göngu gefnar upp fjár­hags­legar upp­lýs­ingar miðað við dag­setn­ingar í árs- og árs­hluta­reikn­ingum félags­ins.“

Jón Steindór spurði ráð­herr­ann einnig hvort hann teldi það ásætt­an­legt að Isavia veitti ein­stökum flug­fé­lögum greiðslu­frest án trygg­inga á háum fjár­hæðum sem væru í van­skilum. Í svari Sigurðar Inga er rakið hvernig almennt greiðslu­fyr­ir­komu­lag Isavia sé í þessum efnum og greint frá því að hvert flug­fé­lag hafi mánuð í gjald­frest eftir að gjald­fall­inn gjöls séu tekin saman í lok fyrri mán­aðar. Inn­heimta t.d. lend­inga­gjalda geti því spannað allt að tvo mán­uði.

Siðan segir í svar­inu: „Alltaf geta komið upp til­vik eða aðstæður sem leiða til þess að ekki er greitt á réttum tíma, enda er flug­rekstur sveiflu­kenndur rekstur. Alla jafna kemur það ekki að sök og greiddir eru drátt­ar­vextir af því sem gjald­fallið er. Eðlilegt þykir að til­vik sem þessi geti komið upp og er brugð­ist við því í sam­ræmi við það sem hér hefur verið sagt. Síðan ber að líta til þess að félagið hefur ríkar stöðv­un­ar­heim­ildir til að tryggja greiðslur ef því er að skipta.“

Undir lok svars­ins segir að Isavia sé fyr­ir­tæki í rekstri á mark­aði með sér­staka stjórn. Fyr­ir­tækið sjálft taki því ákvarð­anir um það sem spurt sé um. „Ráðherra hefur ekki sér­staka skoðun á fyr­ir­komu­lagi fyr­ir­tæk­is­ins í þessum efnum.“

Því haldið fram að WOW air skuldaði Isavia

Isavia er opin­bert hluta­­­fé­lag og að öllu leyti í eigu íslenska rík­­­is­ins. Fyr­ir­tækið ann­­­ast rekstur og upp­­­­­bygg­ingu allra flug­­­valla á Íslandi auk þess sem það stýrir flug­um­ferð á íslenska flug­­­­­stjórn­­­­­ar­­­svæð­inu. Isavia á fjögur dótt­­­ur­­­fé­lög. Þau eru Frí­höfnin ehf., Tern­Sy­stems ehf., Domavia ehf. og Suluk APS.

Á síð­ari hluta árs­ins 2018 var erfið staða íslenskra flug­fé­laga mikið til umfjöll­unar. Rekstur Icelandair gekk illa vegna ytri aðstæðna og rangra við­skipta­á­kvarð­ana sem teknar höfðu verið, en félagið átti umtals­vert eigið fé til að takast á við þær aðstæður. Staða WOW air var sýnu alvar­legri, enda félagið í miklum lausa­fjár­erf­ið­leikum vegna þreng­inga í rekstri.

Um miðjan sept­em­ber 2018 greindi Morg­un­blaðið frá því að WOW air skuld­aði Isavia um tvo millj­arða króna í lend­ing­ar­gjöld. Þar af er um helm­ingur skuld­ar­innar þegar gjald­fall­inn sam­kvæmt frétt­inni.

Skúli Mogensen, for­stjóri og eig­andi WOW air, brást við með stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hann sagði að frétt Morg­un­blaðs­ins sé röng. Í stöðu­upp­færsl­unni er hins vegar ekki borið til baka að WOW air hefði skuldað Isavia fé né að sú skuld væri gjald­fall­inn heldur ein­ungis að sú skuld hafi aldrei verið yfir tvo millj­arða króna.

Kjarninn spurði Isavia í kjöl­farið um hversu mikið WOW air skuld­aði fyr­ir­tæk­inu. Í svari þess sagði að Isavia veiti ekki upp­lýs­ingar um það hverjar tekjur fyr­ir­tæk­is­ins eru af við­skiptum við ein­stök flug­fé­lög. Það veiti heldur ekki upp­lýs­ingar um hvort ein­hver flug­fé­lög séu í van­skilum með lend­ing­ar­gjöld sín við Isavia en tók fram að félagið vinni „með við­kom­andi félögum að lausn mála ef upp koma til­vik þar sem van­skil verða á lend­ing­ar­gjöldum með hags­muni Isavia að leið­ar­ljósi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár