Framlag Kjarnans á árinu 2014

Kjarninn er fimm ára í vik­unni. Af því til­efni verður rifjað upp það helsta sem hann hafði til mál­anna að leggja á hverju því starfs­ári sem hann hefur verið til, á hverjum degi í þess­ari viku. Í dag er farið yfir árið 2014.

Ýmsar breyt­ingar voru gerðar hjá Kjarn­anum í kringum ára­mótin 2013/2014 til að skerpa á per­sónu­leika mið­ils­ins. Á meðal þeirra var sú að pistla­vett­vang­ur­inn „Kjaftæði“ hóf göngu sína. Þar skrif­uðu ýmsir pistla­höf­undar sem nær allir áttu það sam­eig­in­lega að hafa ekki látið neitt af sér kveða á þeim vett­vangi áður, hníf­beitta, hæðna og stór­skemmti­lega þjóð­fé­lags­á­deilupistla.

Sá sem vakti mesta athygli var Hrafn Jónsson, sem varð á skömmum tíma vin­sæl­asti og fyndn­asti pistla­höf­undur íslenska inter­nets­ins, sann­kall­aður John Oliver hins bundna máls. Kjaftæð­ispistlar Hrafns gengu svo vel að Kjarninn gaf þá út á bók í lok árs 2016, sem heitir „Útsýnið úr fíla­beins­turn­inum – Kjör­tíma­bil með augum Hrafns Jóns­sonar.“

Í jan­úar 2014 greindi Kjarninn frá því að með ítar­legum hætti frá ýmsum hliðum fjár­fest­inga­leiðar Seðla­banka Íslands og þeim áhrifum sem hún hafði. Á meðal þeirra upp­lýs­inga sem komu þá fram voru hversu margir inn­lendir aðilar hefðu nýtt sér leið­ina og hvað þeir væru að kaupa.

Fjár­fest­inga­leiðin var gíf­ur­lega umdeild fram­kvæmd sem Seðla­bank­inn beitti til minnka hina svoköll­uðu snjó­hengju, krónu­eignir erlendra aðila sem fastar voru innan fjár­magns­hafta og gerðu stjórn­völdum erfitt fyrir að vinna að frek­ari losun þeirra hafta. Sam­kvæmt henni gátu þeir sem sam­þykktu að koma með gjald­eyri til Íslands skipt þeim í íslenskar krónur á hag­stæð­ara gengi en ef þeir myndu gera það í næsta banka. Mun hag­stæð­ara gengi.

Þeir sem tóku á sig „tap­ið“ í þessum við­skiptum voru aðilar sem áttu krónur fastar innan hafta en vildu kom­ast út úr íslenska hag­kerf­inu með þær. Þeir sem „græddu“ voru aðilar sem áttu erlendan gjald­eyri en voru til­búnir að koma til Íslands og fjár­festa fyrir hann. Seðla­bank­inn var síðan í hlut­verki milli­göngu­að­ila sem gerði við­skiptin mögu­leg. Líkt og verslun sem leiddi heild­sala og neyt­endur sam­an.

Alls fóru fram 21 útboð eftir fjár­fest­inga­leið­inni frá því í febr­úar 2012 til febr­úar 2015, þegar síð­asta útboðið fór fram. Alls komu um 1.100 millj­ónir evra til lands­ins á grund­velli útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar, sem sam­svarar um 206 millj­örðum króna.

94 inn­lendir aðilar komu með pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi í gegnum útboð fjár­fest­ing­ar­leiðar Seðla­banka Íslands. Pen­ingar þeirra námu 35 pró­sent þeirrar fjár­hæðar sem alls komu inn í landið með þess­ari leið, en hún tryggði um 20 pró­sent afslátt á eignum sem keyptar voru fyrir pen­ing­anna á Íslandi. Alls fengu þessir aðilar 72 millj­arða króna fyrir þann gjald­eyri sem þeir skiptu í íslenskar krónur sam­kvæmt skil­málum útboða fjár­fest­ing­ar­leið­ar­inn­ar. Afslátt­ur­inn, eða virð­is­aukn­ing­in, sem þeir fengu með þessu umfram það ef þeir hefðu skipt gjald­eyr­inum á skráðu gengi Seðla­bank­ans er um 17 millj­arðar króna.

Seðla­bank­inn hefur aldrei viljað upp­lýsa um hverjir það voru sem fengu að nýta sér þessa leið og segir að honum sé það ekki heim­ilt vegna þagn­ar­skyldu­á­kvæðis í lögum um starf­semi bank­ans.

GAMMA og ungir fangar

Fast­eigna­mark­að­ur­inn var kom­inn á mikið flug á árinu 2014 og margir sem sáu tæki­færi til að hagn­ast mjög á því sem var að eiga sér stað á þessum tíma. Kjarninn birti í lok jan­úar úttekt á íbúða­upp­kaupum sjóða á vegum GAMMA. Á þeim tíma voru íbúð­irnar orðnar 350 og Gísli Hauksson, þáver­andi for­stjóri GAMMA, sagði í sam­tali við Kjarnann að mark­miðið væri að koma á fót öfl­ugu leigu­fé­lagi að skand­in­av­ískri fyr­ir­mynd. Hann vildi ekki upp­lýsa hverjir það væru sem hefðu fjár­fest í þessu verk­efni GAMMA en sagði að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins væru þar fyr­ir­ferða­miklir.

Forsíða Kjarnans í lok janúar 2014 vakti mikla athygli.
Forsíða Kjarnans í lok jan­úar 2014 vakti mikla athygli.

GAMMA hélt áfram að bæta hratt við íbúðum og keypti nú í öðrum hverfum líka. Til varð Almenna leigu­fé­lagið. Það hagn­að­ist um 1,5 millj­arð króna á árinu 2017 og eignir félags­ins voru metnar á 42 millj­arða króna í lok þess árs og íbúð­irnar sem það átti orðnar vel yfir eitt þús­und tals­ins.

Kjarn­inn skrif­aði tölu­vert um þjón­ustu­samn­ing­inn sem gerður var við með­ferð­ar­heim­ilið Háholt snemma árs 2014. Til hafði staðið að loka heim­il­inu í ljósi þess að eft­ir­spurnin eftir plássi þar var nær engin var ein­ingin ekki talin rekstr­ar­hæf.

Áður en að því kom tók ný rík­is­stjórn við í land­inu, rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks. Og þann 8. nóv­em­ber 2013 fól vel­ferð­ar­ráðu­neyt­ið, sem nú var stýrt af Eygló Harð­ar­dótt­ur, Barna­vernd­ar­stofu að ganga til við­ræðna um nýjan samn­ing um rekstur með­ferð­ar­heim­ilis í Háholti þar sem gert yrði ráð fyrir að heim­ilið fengi það tíma­bundna hlut­verk að vista fanga undir 18 ára aldri sem dæmdir væru til óskil­orðs­bund­innar refs­ing­ar.

Sam­komu­lagið sem um ræðir var fyrst og fremst rök­stutt með því að vista ætti fanga undir aldri sem dæmdir höfðu verið til óskil­orðs­bund­innar refs­ingar á Háholti. Það yrði nokk­urs konar fang­elsi fyrir unga glæpa­menn, enda kveði Barna­sátt­máli Sam­ein­uðu þjóð­anna á um að börn megi ekki afplána með full­orðn­um. Sam­komu­lagið var und­ir­ritað 6. des­em­ber 2013 og í kjöl­farið var gerður þjón­ustu­samn­ingur sem gildir til 1. sept­em­ber 2017.

Einn ein­stak­lingur var vistaður á Háholti í kjöl­far dóms frá því að þjón­ustu­samn­ing­ur­inn var gerð­ur. Sú vist stóð yfir í nokkra mán­uði.

Þjón­ustu­samn­ing­ur­inn við Háholt kost­aði um og yfir 150 millj­ónir króna á ári, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Barna­vernd­ar­stofu. Sam­an­lagt kost­uðu árin þrjú sem hann náði yfir því á milli 450-500 millj­ónir króna. Á þeim tíma hafa að jafn­aði 1-3 ein­stak­lingar verið vistaðir á Háholti að jafn­aði. Inn­rit­aðir ein­stak­lingar voru sex á árinu 2014, þrír árið 2015 og sex á árinu 2016. Til sam­an­burðar má nefna að 112 ein­stak­lingar voru inn­rit­aðir í með­ferð­ar­úr­ræði Barna­vernd­ar­stofu á árinu 2016 til við­bótar við 47 sem nutu með­ferðar á árinu, en höfðu inn­rit­ast 2015.

Karlar sem stýra fé og leyniskýrslur

Í febr­úar 2014 birti Kjarninn í fyrsta sinn nið­ur­stöðu í úttekt sinni á því hvernig kynja­skipt­ing er hjá þeim sem stýra fé eða stunda fjár­fest­ingar á Íslandi. Hún náði til æðstu stjórn­enda við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða. Nið­ur­staða var slá­andi: karlar stýra 93 pró­sent þeirra.

Kjarninn hefur fram­kvæmt úttekt­ina á hverju ári síðan þá, nú síð­ast í febr­úar 2018. Nið­ur­staðan var sú karlar stýra enn pen­ingum á Íslandi, og þar með ráða þeir hvaða hug­myndir fá að verða að veru­leika. Fyrir hverja níu karla sem sitja í æðstu stjórn­enda­stöðum í íslenskum pen­inga­heimi er ein­ungis ein kona í sam­bæri­legri stöðu. Staðan hefur ekk­ert lag­ast á síð­ustu fimm árum þrátt fyrir laga­breyt­ingar og mikla opin­bera áherslu á jafnan hlut kynj­anna.

Kjarninn var meðal nokk­urra fjöl­miðla á heims­vísu sem birtu afhjúp­andi umfjöllun um leyni­skýrslu um TISA-við­ræð­urnar svoköll­uðu, en með TISA-sam­komu­lagi milli þjóð­ríkja heims­ins var mark­miðið að akua frelsi í við­skiptum. Í skjöl­unum sem Kjarninn birti kom meðal ann­ars fram að starfs­menn fjár­mála­fyr­ir­tækja ættu að fá sér­með­ferð þegar þeir væru á ferða­lagi milli landa og að rík­is­stjórnir gætu ekki leyst til sín eignir sem áður höfðu verið einka­væddar.

Þöggun háskólamanna

Í maí greindi Kjarninn frá áður óbirtri nið­ur­stöðu könn­unar sem sýndi að sjötti hver háskóla­maður sagð­ist hafa komið sér hjá því að tjá sig við fjöl­miðla vegna ótta við við­brögð valda­fólks úr stjórn­mála- og efna­hags­lífi. Þá taldi meiri­hluti aðspurðra háskóla­manna að akademísku frelsi fræði- og vís­inda­manna á Íslandi starfi ógn af gagn­rýni eða hót­unum frá valda­fólki í stjórn­málum og efna­hags- og atvinnu­lífi.

Í umfjöllun Kjarnans greindi Jón Steins­son, þá dós­ent í hag­fræði við Columbia-háskóla, frá því að vegna opin­berrar gagn­rýni sem hann hefði sett fram á ann­ars vegar Davíð Oddsson og Sjálf­stæð­is­flokk­inn og hins vegar kvóta­kerfið hafi skila­boðum verið komið til hans um að hann væri búinn að brenna allar brýr að baki sér og gæti aldrei fengið vinnu á Íslandi. Jón sagði líka frá því að áhrifa­maður í íslensku atvinnu­lífi hefði send bréf til deild­ar­for­seta Columbia-háskól­ans þar sem hann gerði athuga­semdir við skrif Jóns í íslenska miðla.„Ef þessir menn reyna ða hafa áhrif á yfir­mann hag­fræði­deildar í Columbia, sem þeir hafa aug­ljós­lega engin tök á, þá getur maður bara ímyndað sér hvernig það er þegar ein­hver í háskólum á Íslandi skrifar eitt­hvað svona.“

Allir dagar verða Kjarnadagar

Í októ­ber urðu eðl­is­breyt­ingar á starf­semi Kjarnans þegar nýr og öfl­ugur frétta­vefur Kjarnans var settur í loftið. Samhliða var útgáfu staf­ræna tíma­rits­ins hætt og rit­stjórn Kjarnans hóf að sinna dag­legri frétta­þjón­ustu. Viðmiðin voru þó áfram þau sömu: áhersla á gæði og dýpt. Samhliða fór líka í loftið morg­un­póstur Kjarnans, sem hefur notið mik­illa vin­sælda alla tíð síðan.

Leiðréttingin var stærsta kosningamál Framsóknarflokksins 2013.
Leið­rétt­ingin var stærsta kosn­inga­mál Fram­sókn­ar­flokks­ins 2013.

Mánuði síðar var útfærsla á stærsta máli þáver­andi rík­is­stjórnar, Leið­rétt­ing­unni, kynnt. Laga­frum­vörp vegna aðgerð­ar­innar höfðu verið lagt fram í mars sama ár. Kjarninn hefur alla tíð verið í far­ar­broddi við að greina afleið­ingar þeirra aðgerðar sem sner­ist um að greiða tugi millj­arða króna úr rík­is­sjóði til hluta þeirra lands­manna sem skuld­uðu verð­tryggð lán á ákveðnu tíma­bili. Það gerði hann í nóv­em­ber 2014 líka með ítar­legum frétta­skýr­ingum, dæmum sem sýndu að leið­rétt­ingin var í sumum til­vikum að lenda hjá fólki sem þurfti ekk­ert á henni að halda og greindi í skoð­ana­skrifum.

Borgun og lekamálið

Hinn 27. nóv­em­ber 2014 flutti Kjarn­inn fréttir af því að Lands­bank­inn hefði selt 31,2 pró­sent hlut í Borg­un, bak við luktar dyr, til val­inna fjár­festa. Nákvæmar upp­lýs­ingar fylgdu frétt­inni, sem Magnús Hall­dórs­son skrif­aði, um eig­end­urna sem fengu að kaupa hlut­inn í lok­uðu sölu­ferli, og var hún byggð á stofn­fund­ar­gerð­um, samn­ingum um við­skipt­in, og upp­lýs­ingum sem aflað hafði verið með sjálf­stæðri heim­ild­ar­vinn­u. Úr varð eitt stærsta frétta­mál síð­ustu ára sem end­aði með því að banka­stjóri Lands­bank­ans var rek­inn úr starfi og að Lands­bank­inn höfð­aði mál til að reyna að end­ur­heimta það fé sem hann taldi sig hafa verið svik­inn um í mál­inu.

Undir lok árs var svo stærsta frétta­mál árs­ins 2014, leka­málið svo­kall­aða, leitt til lykta með því að Hanna Birna Krist­jáns­dóttir, þáver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra, sagði af sér emb­ætti. Það gerð­ist í kjöl­far þess að Gísli Freyr Val­dórs­son, fyrr­ver­andi aðstoð­ar­maður hennar, hafði játað að leka trún­að­ar­upp­lýs­ingum úr ráðu­neyt­inu um hæl­is­leit­endur til fjöl­miðla í nóv­em­ber 2013. Fyrir það hlaut hann skil­orðs­bund­inn dóm. Kjarninn tók virkan þátt í umfjöllun um málið, sem var ein­stakt í Íslands­sög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár