Mynd: Pexels

Engar nýjar sprungur í glerþakinu – Heimsmeistari í jafnrétti heldur konum frá peningum

Karlar stýra pen­ingum á Íslandi, og þar með ráða þeir hvaða hug­myndir fá að verða að veru­leika. Fyrir hverja níu karla sem sitja í æðstu stjórn­enda­stöðum í íslenskum pen­inga­heimi er ein­ungis ein kona í sam­bæri­legri stöðu.

Ísland stærir sig af því að vera leið­andi ríki í heimunum þegar kemur að jafn­rétti kynj­anna. Eins­konar heims­meist­ari í jafn­rétti. Hér á landi hafa verið sett lög til að jafna hlut kynj­anna í stærri fyr­ir­tækjum og í fyrra var sam­þykkt jafn­launa­vottun. Unnið hefur verið að kynj­aðri fjár­laga­gerð frá árinu 2009 og hvergi í heim­inum ríkir meira jafn­rétti á vinnu­mark­aði sam­kvæmt úttektum.

Í stjórn­málum hafa jafn­rétt­is­mál færst frá því að vera jað­ar­stefna yfir því að vera hluti af meg­in­straumi og, að minnsta kosti í orði, á meðal helstu stefnu­mála allra stærstu stjórn­mála­flokk­anna. Óleið­réttur launa­munur kynj­anna er enn 16,1 pró­sent körlum í hag, og þeir eru enn tvisvar sinnum lík­legri til að vera með yfir milljón krónur á mán­uði í laun, en bilið er sífellt að minnka.

Íslenskir ráða­menn þeyt­ast um heim­inn á ráð­stefnur á vegum mik­il­vægra alþjóða­stofn­ana og tala um hvað við sem þjóð séum með­vituð um jafn­rétti kynj­anna, og hvernig við séum að beita okkur umfram aðrar þjóðir til að ná því mark­miði.

En það er eitt svið sem konur eru sjald­séðar á. Mik­il­vægt svið sem tryggir umtals­vert völd og áhrif á sam­fé­lagið. Þar sem sýslað er með þús­undir millj­arða króna og ákvarð­anir teknar um hverjir fái tæki­færi til að láta hug­myndir sínar verða að veru­leika og hverjir ekki.

Það svið er íslenski fjár­mála­geir­inn. Karlar stýra nefni­lega nán­ast öllum pen­ingum á Íslandi. Og hafa alltaf gert það.

Nið­ur­stöður úttekt­ar­innar birt­ust einnig í Mannlífi sem kom út í dag, 16. febr­úar.

Nýtt ár, sama niðurstaða

Ný úttekt Kjarnans sýnir að karlar sitja nán­ast einir að stýr­ingu fjár­magns á Íslandi. Af 90 æðstu stjórn­endum við­skipta­banka, spari­sjóða, líf­eyr­is­sjóða, skráðra félaga, óskráðra trygg­inga­fé­laga, lána­fyr­ir­tækja, verð­bréfa­fyr­ir­tækja og -miðl­ana, fram­taks­sjóða, orku­fyr­ir­tækja, greiðslu­stofn­ana, Kaup­hallar og lána­sjóða eru 81 karlar og níu konur. Ein konan mun auk þess, að öllum lík­indum, láta af störfum í nán­ustu fram­tíð og þar með verða þær átta. Ofan­greindur hópur stýrir þús­undum millj­arða króna.

Það að fyrir hverja níu karla sem stýri pen­ingum á Íslandi sé ein kona er ekki nýtt af nál­inni. Þannig hefur staðan verið árum saman.

Kjarninn hefur fram­kvæmt úttekt­ina síð­ast­lið­inn fimm ár. Þegar hún var fram­kvæmd fyrst, í febr­úar 2014, voru störfin sem hún náði yfir 88 tals­ins. Þá sátu 82 karlar í þeim störfum en sex kon­ur. Árið 2015 voru störfin 87, karl­arnir 80 og kon­urnar sjö. 2016 voru störfin 92, karl­arnir 85 og kon­urnar sjö. Í fyrra var nið­ur­staðan nán­ast nákvæm­lega sú sama og í ár, 80 karlar og átta konur.

Fjölgun kvenna í stjórnum skilar sér ekki

Lög um kynja­kvóta í stjórnum fyr­ir­tækja tóku að fullu gildi hér á landi í sept­­em­ber 2013 og sam­­kvæmt þeim ber fyr­ir­tækjum með 50 eða fleiri starfs­­menn að tryggja að hlut­­fall hvors kyns í stjórn sé ekki undir 40 pró­­sent­­um. Árið eftir það náði hlut­­fall kvenna í stjórnum fyr­ir­tækja af þess­­ari stærð hámarki, fór upp í 33,2 pró­­sent, en hefur síðan farið lækk­­andi aft­­ur. Í árs­lok 2016 var hlut­fallið til að mynda 32,3 pró­sent.

Hlutfall karla og kvenna sem stýra pen­ingum á Íslandi:
2014: 82 karlar 6 konur
2015: 80 karlar 7 konur
2016: 85 karlar 7 konur
2017: 80 karlar 8 konur
2018: 81 karlar 9 konur

Það er því ljóst að setn­ing þeirra laga hefur ekki skilað þeim árangri sem vænst var. Og úttekt Kjarnans sýnir svart á hvítu að fjölgun kvenna í stjórnum stærri fyr­ir­tækja hefur ekki skipt neinu máli varð­andi fjölgun í lyk­il­stöður í fjár­mála­geir­anum.

Ástandið verst hjá verðbréfafyrirtækjum

Hjá við­skipta­bönk­unum fjórum er kynja­hlut­fallið jafnt, en karl stýrir síðan Íbúða­lána­sjóði sem er stór­tækur lán­veit­andi á hús­næð­is­mark­aði. Hjá þeim fjórum spari­sjóðum sem enn eru starf­andi er þremur stýrt af körlum og öllum fimm lána­fyr­ir­tækjum lands­ins er stýrt af körlum utan Lykils, þar sem konan Lilja Dóra Hall­dórs­dóttir situr við stjórn­völ­inn.

Fyrir hverja níu karla sem stýra peningum á Íslandi er ein kona.
Fyrir hverja níu karla sem stýra pen­ingum á Íslandi er ein kona.

Staða kvenna er verst þegar kemur að verð­bréfa­fyr­ir­tækjum og rekstr­ar­fé­lögum verð­bréfa­sjóða. Þar er um að ræða milli­liði sem taka við hund­ruð millj­ónum króna af fjár­festum, sér­stak­lega líf­eyr­is­sjóðum, og fjár­festa fyrir það fé.

Alls eru átján verð­bréfa­fyr­ir­tæki eða rekstr­ar­fé­lög verð­bréfa­sjóða skráð eft­ir­lits­skyld hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu. Þeim eru öllum stýrt af körlum. Og þegar litið er yfir starfs­manna­list­ann er ljóst að kynja­hlut­fallið lag­ast ekki mikið þegar neðar í skipu­ritið er komið.

For­stjóri Kaup­hallar Íslands er karl, kaup­fé­lags­stjór­inn sem stýrir einu inn­láns­deild sam­vinnu­fé­lags er karl, for­stjóri eina óskráða trygg­inga­fé­lags­ins er karl, ein­ungis ein kona er á meðal æðstu stjórn­enda sex inn­heimtu­að­ila og greiðslu­stofn­ana, tveimur stærstu leigu­fé­lögum lands­ins sem rekin eru með hagn­að­ar­sjón­ar­mið er stýrt af einni konu og einum karli og allir for­stjórar orku­fyr­ir­tækja lands­ins eru karlar.

Þá eru allir æðstu stjórn­endur skráðra fyr­ir­tækja á Íslandi, hvort sem þau eru skráð á aðal­markað eða First North, karlar.

Lífeyrissjóðunum stýrt af körlum

Áhrifa­mestu leik­end­urnir á íslenskum fjár­mála­mark­aði eru líf­eyr­is­sjóð­irnir lands­manna. Þeir eru alls 24, þótt sumir séu saman í stýr­ingu. Alls eru greið­endur í sjóð­ina 250 þús­und. Samkvæmt nýj­ustu hag­tölum Seðla­banka Íslands var hrein eign þeirra 3.892 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót.

Líf­eyr­is­sjóð­irn­ir eru allt um lykj­andi í íslensku við­skipta­lífi. Þeir eiga um þriðj­ung af heild­ar­fjár­munum á Íslandi og spár gera ráð fyrir að eign­ar­hlutur þeirra muni aukast á næstu árum. Er gert er ráð fyrir því að sjóð­irnir skili 3,5 pró­sent raun­á­vöxtun á ári mun hlutur þeirra í heild­ar­fjár­muna­eign á Íslandi fara í 35 pró­sent árið 2030 og í tæp 40 pró­sent árið 2060. Þeir hafa stækkað mjög hratt á fáum árum og og áttu árið 2016 70 pró­sent allra mark­aðs­skulda­bréfa og víxla á Íslandi ásamt því að eiga 41 pró­sent allra skráðra hluta­bréfa í íslensku kaup­höll­inni.

Úttekt Kjarn­ans í ár náði til 17 stjórn­enda líf­eyr­is­sjóða sem sumir hverjir stýra fleiri en einum sjóði. Af þessum 17 eru 15 karlar en tvær kon­ur. Þrír stærstu sjóð­irnir stýra um 50 pró­sent af fjár­magn­inu sem er til staðar í íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu. Þeim er öllum stýrt af körl­um.

Þarf 35 kvenkyns forsætisráðherra í röð til að jafna stöðuna

Á Íslandi búa 170.910 konur. Þær eru 49 pró­sent þjóð­ar­innar. Framan af lýð­veld­is­tím­anum hall­aði mjög á hlut kvenna að flestu leyti. Þeirra hlut­verk var talið vera á heim­il­inu og stjórn­kerfi sam­fé­lags­ins gerðu bein­línis ráð fyrir því. Með vit­und­ar­vakn­ingu og ötulli jafn­rétt­is­bar­áttu hefur þessi staða breyst mikið á und­an­förnum ára­tugum.

Í fyrra sátu til að mynda 30 konur á Alþingi og höfðu aldrei verið fleiri. Sú staða breytt­ist í kosn­ing­unum í haust þegar kjörnum konum fækk­aði í 24. Kynja­skipt­ingin er mjög mis­jöfn eftir flokkum. Þrír flokkar eru með mun fleiri karla í sínu þing­liði en konur. Þar ber fyrst að nefna Mið­flokk­inn. Sex þing­menn hans eru karlar en ein­ungis ein kona situr á þingi fyrir þann flokk. Fjórir af fimm þing­mönnum Flokks fólks­ins eru karlar en aðeins ein kona. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, stærsti flokkur lands­ins er ekki langt undan. Í þing­flokki hans eru þrettán karlar og fjórar konur.

Í rík­is­stjórn er kynja­hlut­fallið líka körlum í hag. Þar sitja sex karlar og fimm konur. For­sæt­is­ráð­herra er hins vegar konan Katrín Jak­obs­dóttir. Það er í annað sinn í lýð­veld­is­sög­unni sem kona situr í því emb­ætti. Sú fyrsta var Jóhanna Sig­urð­ar­dóttir sem var for­sæt­is­ráð­herra 2009-2013.

Katrín fjall­aði um þessa stöðu í ræðu sinni á Við­skipta­þingi í vik­unni. Þar sagði hún m.a.: „Mörgum erlendum fjöl­miðlum finnst mjög merki­legt að ég sé kven­kyns og virð­ast þeir halda að þar með sé Ísland ein­hvers konar jafn­réttispara­dís. Þessir ágætu karl­kyns fjöl­miðla­menn verða alltaf mjög kúnstugir í framan þegar ég bendi þeim á að til þess að það geti orðið rétt­nefni þyrftum við helst að fá svona um það bil 35 konur í röð sem for­sæt­is­ráð­herra. Þeim finnst ég greini­lega frek til fjár­ins. Enda kona en eins og allar konur í salnum vita er allt best þegar þær taka ekki of mikið pláss og gera bara það sem til er ætl­ast af þeim. Eða þannig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

konur

Mest lesið undanfarið ár