Fasteignamat í Reykjavík hækkar mest í Breiðholti

Fast­eigna­matið hækkar í öllum póst­núm­erum Reykja­víkur. Mest hækkar það í Breið­holti en minnst í Miðbæ og Vesturbæ.

Efra Breiðholt er það hverfi í Reykjavík sem hækkar mest í nýju fasteignamati.
Efra Breið­holt er það hverfi í Reykja­vík sem hækkar mest í nýju fast­eigna­mati. Mynd: Samfylkingin á Flickr

Breið­holtið er það hverfi Reykja­víkur sem sér hvað mest hækkun fast­eigna­mats fyrir árið 2018 miðað við árið 2017. Í póst­núm­eri 111, þar sem oft kall­ast Efra Breið­holt, er hækkun fast­eigna­mats­ins 20,8 pró­sent að mið­gildi. Í póst­núm­eri 109, sem oft er kallað Neðra Breið­holt og Selja­hverfi, er hækk­unin 20,6 pró­sent að mið­gildi.

[links]Ef litið er til allra póst­núm­era í Reykja­vík er með­l­hækkun fast­eigna­mats­ins 17,2 pró­sent á milli ára. Á lands­vísu er hækk­unin aðeins minni eða 13,8 pró­sent. Hækkunin er svo nokkuð mis­mun­andi eftir land­svæðum. Heild­ar­mat fast­eigna á Íslandi verður 7.288 millj­arðar króna sam­kvæmt nýju fast­eigna­mati árið 2018.

Fast­eigna­matið hækkar á 98,3 pró­sent allra skráðra eigna en lækkar á 1,7 pró­sent eigna frá fyrra ári.

[adspot]

Öll hverfi í höfuðborginni hækka

Fast­eigna­matið hækkar í öllum póst­núm­erum Reykja­víkur. Minnst hækkar það í Kringl­unni og Hvassa­leiti eða um 12,4 pró­sent að mið­gildi. Næst minnst hækkar fast­eigna­matið í Miðbæ og Vesturbæ eða um tæp­lega 16 pró­sent að mið­gildi.

Hægt er að skoða hækkun fast­eigna­mats í öllum póst­núm­erum á Íslandi hér á vef Kjarnans.

Til hvers er fasteignamatið?

Þjóðskrá Íslands heldur utan um fast­eigna­matið. Það byggir á upp­lýs­ingum úr þing­lýstum kaup­samn­ingum auk fjöl­margra ann­arra þátta sem hafa áhrif á verð­mæti fast­eigna. Nýtt fast­eigna­mat mið­ast við verð­lag í febr­úar 2017 og það tekur gildi á síð­asta degi árs­ins.

Til­gangur fast­eigna­mats­ins er fyrst og fremst að skapa grund­völl fyrir álagn­ingu opin­berra gjalda, svosem fast­eigna­gjöld og erfða­fjár­skatt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár