Fasteignamatið 2018: Hvar er hækkun og hvar er lækkun?

Heild­ar­mat allra fast­eigna á land­inu hækkar um 13,8% árið 2018. Hækkunin er hins vegar mis­mun­andi eftir land­svæðum. Jón Ævar Pálma­son verk­fræð­ing­ur hefur tekið upp­lýs­ing­arnar saman.

Í byrjun mán­aðar birti Þjóðskrá Íslands nýtt fast­eigna­mat allra fast­eigna á Íslandi, sem lagt verður til grund­vallar álagn­ingu opin­berra gjalda fyrir árið 2018. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu hækkar heild­ar­mat allra fast­eigna á land­inu um 13,8% en hækk­unin er nokkuð mis­mun­andi eftir land­svæðum. Fast­eigna­mat­inu er ætlað að lýsa mark­aðs­verði fast­eigna miðað við stöð­una í febr­úar síð­ast­liðnum.

Upp­lýs­ing­arnar hér birt­ast einnig á vefnum Actuary.is. Þetta er í þriðja skiptið sem Actuary.is birtir fast­eigna­mat­skortið, sem sýnir hlut­falls­hækkun allra íbúð­ar­eigna á land­inu milli ára. Myndin hér að neðan sýnir hlut­falls­hækkun fast­eigna­mats fyrir árið 2018 frá fyrra mati. Rauðir lita­tónar táknar hækkun en bláir lita­tónar lækkun. Hægt er að þysja inn á ein­staka bæi eða bæj­ar­hluta með stækk­un­ar­gler­inu.

Miklar hækk­anir ein­kenna breyt­ing­una í ár. Mest hækkar fast­eigna­mat á Húsavík þar sem mið­gildi hækk­unar er 42,0%. Í sex öðrum póst­núm­erum hækkar fast­eigna­matið um meira en 20 pró­sent. Það eru Ölfus, Hofsós, Fljót, Akranes og Varma­hlíð auk Breið­holts-póst­núm­er­anna 109 og 111 í Reykja­vík.

Í fjórum póst­núm­erum lækkar mið­gildi fast­eigna­mats frá fyrra ári. Mest lækkun er í dreif­býli Dalvíkur þar sem fast­eigna­matið lækkar um 3,0%. Þar á eftir koma Hólmavík, Staður (póst­númer 510) og Kefla­vík­ur­flug­völlur (235 Keflavík). Í Bol­ung­ar­vík stendur mið­gildi fast­eigna­mats í stað.

Hér er einnig hægt að skoða kortið.

Taflan hér á eftir sýnir hlut­falls­breyt­ingu fast­eigna­mats eftir póst­núm­erum. Miðgildi breyt­ing­anna táknar að helm­ingur fast­eigna hækkar meira og helm­ingur minna. Fast­eigna­mat fjórð­ungs fast­eigna breyt­ist minna en fyrstu fjórð­ungs­mörkin sýna og fjórð­ungur fast­eigna hækkar meira en þriðju fjórð­ungs­mörkin segja til um.

Breyt­ingar á fast­eigna­mati 2018
PÓSTNÚMER1. FJÓRÐUNGURMIÐGILDI3. FJÓRÐUNGUR
101 Reykja­vík - Miðbær/Vest­ur­bær14.2%15.7%16.8%
103 Reykja­vík - Kringlan/Hvassa­leiti11.4%12.4%13.7%
104 Reykja­vík - Laug­ar­dalur16.6%18%20%
105 Reykja­vík - Hlíðar15%17.6%19.4%
107 Reykja­vík - Vest­ur­bær15%15.9%16.9%
108 Reykja­vík - Aust­ur­bær15.3%16.1%16.8%
109 Reykja­vík - Bakkar/Selja­hverfi19%20.6%21.7%
110 Reykja­vík - Árbær/Selás16.4%17.6%18.6%
111 Reykja­vík - Berg/Hólar/Fell20%20.8%22.1%
112 Reykja­vík - Graf­ar­vogur15.7%16.7%17.5%
113 Reykja­vík - Graf­ar­holt14.9%16.4%17.7%
116 Reykja­vík - Kjal­ar­nes16.8%18.9%20.1%
170 Sel­tjarn­ar­nesi14.2%17.4%21.3%
190 Vogum17.9%19%20.2%
200 Kópavogi17.6%18.9%20.3%
201 Kópavogi13.8%15.2%16.4%
203 Kópavogi11.3%12.3%13.4%
210 Garðabæ10.2%11.8%15.1%
220 Hafn­ar­firði15.7%17.1%18.5%
221 Hafn­ar­firði16.7%17.8%18.9%
225 Álfta­nesi15.2%15.9%16.6%
230 Reykja­nesbæ14.6%15.9%27.4%
233 Reykja­nesbæ14%14.8%15.5%
235 Reykja­nesbæ-1.3%-0.3%0.3%
240 Grinda­vík17.8%19.1%20.4%
245 Sand­gerði10.1%10.9%11.9%
250 Garði8.7%9.5%10.7%
260 Reykja­nesbæ15.7%16.4%25.3%
270 Mos­fellsbæ13.9%15.8%18.1%
271 Mos­fellsbæ15.1%16.3%17.9%
276 Mos­fellsbæ11.4%11.6%12.4%
300 Akranesi16.3%22.8%25.7%
301 Akranesi10.9%11.8%12.9%
310 Borg­ar­nesi4.1%5.4%9%
311 Borg­ar­nesi4.2%4.6%5%
320 Reykholt í Borg­ar­firði3.2%4.1%4.8%
340 Stykk­is­hólmi5.3%6.2%7.5%
345 Flatey á Breiða­firði17.1%18.1%19.1%
350 Grund­ar­firði4%6.2%7%
355 Ólafsvík9.1%10.1%11%
356 Snæ­fellsbæ3%3.5%4.2%
360 Hell­issandi10.3%11.2%12.4%
370 Búðardal2.3%3.2%4.2%
371 Búðardal2.4%3.4%4.1%
380 Reyk­hóla­hreppi2.9%3.8%4.7%
400 Ísafirði4.2%11.7%13.4%
401 Ísafirði9.4%9.4%9.5%
410 Hnífsdal4.4%5%6.1%
415 Bol­ung­ar­vík-1.1%0%1%
420 Súðavík4.9%5.3%5.8%
425 Flateyri8%9.1%10.3%
430 Suð­ur­eyri12.1%13.4%14.9%
450 Pat­reks­firði10.2%11.6%13.6%
451 Pat­reks­firði9.2%13.4%14.6%
460 Tálkna­firði6.3%7%7.5%
465 Bíldudal8.6%9.4%10.4%
470 Þingeyri12.7%13.9%14.9%
471 Þingeyri3.4%13%15.2%
500 Stað-3.8%-1.6%0.6%
510 Hólmavík-3%-1.6%-0.4%
512 Hólmavík5.9%6.8%10.2%
520 Drangs­nesi13%14.2%16.4%
524 Árnes­hreppi8.6%8.7%8.7%
530 Hvamms­tanga16.1%17.3%19.4%
531 Hvamms­tanga0.8%2.1%2.9%
540 Blöndu­ósi14.2%15.1%16.7%
541 Blöndu­ósi-0.5%1.4%2%
545 Skaga­strönd11.2%12.7%13.8%
550 Sauð­ár­króki14.8%16.5%17.7%
551 Sauð­ár­króki6.5%12.5%20.3%
560 Varma­hlíð16.3%20.4%24.5%
565 Hofsós15.5%16.7%17.6%
566 Hofsós23.2%24.9%26.2%
570 Fljótum21.1%23%24%
580 Siglu­firði6.6%14.3%15.5%
600 Akureyri9.6%12%13.5%
601 Akureyri7.5%9%18.9%
603 Akureyri10.9%12.3%13.3%
610 Grenivík2.5%4.1%4.9%
611 Grímsey15.1%15.7%16%
620 Dalvík4.6%5.9%7%
621 Dalvík-4.3%-3%4.7%
625 Ólafs­firði16.4%17.5%18.5%
630 Hrísey-0.8%0.2%1.3%
640 Húsavík37.2%42%44%
641 Húsavík6.2%8.9%10.1%
645 Foss­hólli8%9.4%10.1%
650 Laugum9.1%9.9%11%
660 Mývatni8.5%9.6%10.2%
670 Kópa­skeri5%5.7%6.4%
671 Kópa­skeri5.2%6.6%7.9%
675 Rauf­ar­höfn-0.9%7.1%8.2%
680 Þórshöfn6.8%7.8%9%
681 Þórshöfn3.2%3.9%5.6%
685 Bakka­firði12%12.7%13.6%
690 Vopna­firði10.4%11.4%12.4%
700 Egils­stöðum2.5%3.6%5.3%
701 Egils­stöðum6%7%7.8%
710 Seyð­is­firði9%10.3%11.4%
715 Mjó­a­firði4.6%6.9%7.8%
720 Borg­ar­firði (eystri)15.9%18.6%19.1%
730 Reyð­ar­firði6.2%7%7.8%
735 Eski­firði6.1%7.3%8%
740 Nes­kaup­stað4.9%6.4%7.7%
750 Fáskrúðs­firði2%3.1%3.5%
755 Stöðv­ar­firði3%3.7%4.2%
760 Breið­dals­vík7.8%8.9%9.5%
765 Djúpa­vogi9.7%10.8%11.7%
780 Höfn í Horna­firði15.6%16.4%17.5%
781 Höfn í Horna­firði6.2%7.6%9.9%
785 Öræfum6.1%7%7.9%
800 Selfossi15.9%17%18.1%
801 Selfossi11.4%16.6%18.6%
810 Hvera­gerði18.2%19.8%20.2%
815 Þor­láks­höfn2.8%3.8%4.3%
816 Ölfus21.3%28.3%29%
820 Eyr­ar­bakka4.5%5.7%6.3%
825 Stokks­eyri8.5%9.5%10.5%
840 Laug­ar­vatni9%9.7%10.7%
845 Flúðum9.7%10.9%13.7%
850 Hellu5.5%6.3%7%
851 Hellu9.1%10.4%11.1%
860 Hvols­velli6.2%7%8.1%
861 Hvols­velli9.6%10.4%11.2%
870 Vík1.7%5.5%6.5%
871 Vík7.5%8.2%9.2%
880 Kirkju­bæj­ar­klaustri5.3%7%7.9%
900 Vest­manna­eyjum3.6%4.3%5.4%

Fast­eigna­matið hefur verið upp­fært fyrir árið 2018. Hér að neðan sjást breyt­ing­arnar á fast­eigna­mat­inu frá fyrra ári eftir póst­núm­erum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár